Mosfellingur - 08.12.2022, Qupperneq 28
- Mosfellingurinn Elva Björg Pálsdóttir28
Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Harpa Hrund Bjarnadóttir og úr einkasafni.
Markmið félagsstarfs eldri borg-
ara í Mosfellsbæ er að fyrir-
byggja félagslega einangrun
aldraðra og finna hæfileikum, reynslu
og þekkingu þátttakanda farveg. Ferða-
lög, handmennt, hreyfing, kórstarf, list-
sköpun og spilamennska eru dæmi um
starfsemina.
Forstöðumaður félagsstarfsins er Elva
Björg Pálsdóttir tómstunda- og félags-
málafræðingur, hún segir að í félags-
starfinu sé ávallt stefnt að því að auka
fjölbreytni bæði í námskeiðshaldi og
hópstarfi þannig að sem flestir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi.
Elva Björg er fædd á Þingeyri við Dýra-
fjörð 7. mars 1975. Foreldrar hennar eru
Jóhanna Ström húsmóðir og Páll Björns-
son skipstjóri. Elva á þrjú systkini, Jónínu
f. 1966, Viktor f. 1968 og Birnu f. 1980.
Heppin að eiga góðar minningar
„Ég er alin upp á Þingeyri við fallegasta
fjörð landsins, Dýrafjörð. Það eru mikil
forréttindi að hafa fengið að alast upp úti á
landi, mikið frjálsræði og allir pössuðu vel
hver upp á annan.
Á þessum árum bjuggu um 500 manns í
þorpinu en það hefur verið talsverð fólks-
fækkun síðan þá. Snjóavetur voru miklir og
við fórum ekki mikið á milli byggðarlaga en
nú er búið að byggja bæði brýr og göng svo
allt er þetta orðið auðveldara.
Ég er svo heppin að eiga bara góðar
æskuminningar, ég á góða fjölskyldu og
vini. Ég gat oft verið stríðin og var dugleg
við að vera leiðinleg við yngstu systur
mína sem fór oft í fýlu út í mig og fór þá
út á kletta sem voru við húsið okkar og tók
með sér ferðatösku og allt. Þetta fannst mér
alltaf afar fyndið en það skal taka fram að
við erum bestu vinkonur í dag,“ segir Elva
og brosir.
Góður tími á Núpi
„Ég gekk í grunnskólann á
Þingeyri, þar lék maður við
krakka á öllum aldri því árgang-
arnir voru misstórir. Það voru
um 100 krakkar í skólanum og í mínum
bekk vorum við fimm.
Þegar ég var fimmtán ára þá urðum við að
fara í heimavistarskólann á Núpi til að klára
10. bekkinn en skólinn er staðsettur hinum
megin í firðinum. Það er auðvitað skrítið til
þess að hugsa að hafa farið svona ung að
heiman en mér fannst það aldrei neitt til-
tökumál, það var ekkert annað í boði. Þarna
var auðvitað margt brallað misgáfulegt eins
og að fara í kökuslag í matsalnum eða vatns-
slag á heimavistinni og eftir á að hyggja var
þetta ekki gáfuleg iðja. Frá Núpi á ég mínar
bestu æskuminningar, ég kynntist yndisleg-
um krökkum og kennurum alls staðar að á
landinu. Þar kynntist ég einnig eiginmanni
mínum honum Finnboga og við
höfum verið saman allar götur
síðan.
Á sumrin vann ég í sjoppunni í
Kaupfélaginu en ég starfaði einnig í saltfisk-
verkun og á sjúkrahúsinu á Patreksfirði.“
Ætlaði að verða gullsmiður
Ég spyr Elvu hvað hún hafi farið að gera
eftir útskrift úr gagnfræðaskóla? „Ég flutti
suður og fór í Iðnskólann í Reykjavík og hóf
nám í grunndeild málmiðna því ég ætlaði í
gullsmíði. Ég hætti svo í því og kláraði tann-
tækninám við Fjölbrautaskólann í Ármúla
en varð svo stúdent af hönnunarbraut frá
Fjölbrautaskólanum í Breiðholti. Leið mín
lá síðan í Háskóla Íslands þaðan sem ég
kláraði tómstunda- og félagsmálafræði og
nú er ég hálfnuð í námi í öldrunarfræðum
við sama skóla.“
Þetta var okkur þungbær reynsla
Eiginmaður Elvu Bjargar heitir Finnbogi
Helgi Snæbjörnsson ættaður frá Patreks-
firði. Hann er menntaður vélfræðingur og
starfar sem vélstjóri á frystitogara. Þau eiga
fjóra syni, Alexander Almar f. 1995, Ágúst
f. 2001 l. 2001, Aron Atla f. 2002 og Alvar
Auðun f. 2007.
„Ég var komin tæpa sjö mánuði á leið
þegar ég þurfti að fæða son okkar en hann
fæddist andvana, við skírðum hann Ágúst.
Þetta var okkur hjónum erfið og þungbær
reynsla en saman komumst við í gegnum
þetta ásamt góðri aðstoð fjölskyldu og
vina þó að þetta auðvitað grói aldrei. Við
eigum einn engil á himninum sem passar
okkur fjölskylduna vel og hefur kennt okkur
hversu dýrmætt lífið er.
Við erum mjög samrýmd fjölskyldan og
okkur finnst afar gaman að ferðast bæði
innanlands sem utan og við sækjum mikið
í heimahagana vestur á firði. Við erum líka
dugleg að fara í göngutúra með hundana
okkar og skoða hér nokkur fell í leiðinni.
Ég hef svo nýtt tímann vel í alls kyns
handavinnu, mér finnst t.d ótrúlega gam-
an að renna leir og skapa í keramiki. Þess
á milli skrepp ég á kaffihús höfuðborgar-
svæðisins með systur minni og les gjarnan
blöðin í leiðinni.“
Hjá okkur er gleði alla daga
Elva Björg hefur starfað við ýmislegt
í gegnum tíðina, afgreitt í sjoppu, verið
verslunarstjóri, tanntæknir, dagmamma í
Mosfellsbæ og var um tíma aðstoðarmaður
iðjuþjálfa á Reykjalundi. Hún hóf störf sem
leiðbeinandi í handavinnu í félagsstarfi
aldraðra í Mosfellsbæ árið 2010 en tók svo
við sem forstöðumaður árið 2013.
„Það eru sannkölluð forréttindi að vinna
með eldri borgurum og ég nýt hvers dags,“
segir Elva brosandi. „Hér er ávallt stefnt að
því að auka fjölbreytni bæði í námskeiðs-
haldi og hópstarfi þannig að sem flestir geti
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Mitt starf er að vera fólkinu innan hand-
ar enda er ég fyrst og fremst að vinna fyrir
þau. Þau eiga jafnan frumkvæði að því sem
þau vilja gera og í sameiningu setjum við
upp skemmtilega dagskrá og hjá okkur er
gleði alla daga.
Við erum með góða aðstöðu á Eirhömr-
um en starfsemi okkar nær einnig út fyrir
húsakynnin. Hreyfing er það langvinsæl-
asta hjá okkur í dag enda kynslóðirnar að
breytast, fjölbreytnin að aukast og kröfurn-
ar í takt við tímann.“
Mosfellingur ársins 2021
Val á Mosfellingi ársins fer fram ár hvert
þar sem lesendum Mosfellings gefst kostur
á að tilnefna þá sem þeim þykja verðugir
að bera nafnbótina. Útnefningin er síðan
kunngjörð í fyrsta tölublaði hvers árs.
Elva Björg var valin Mosfellingur ársins
2021 og var mjög snortin yfir þeim tíðind-
um enda átti hún alls ekki von á þeim. „Ég
var fyrst og fremst mjög þakklát og tileink-
aði öllum eldri borgurum í Mosfellsbæ
þessa tilnefningu. Ég get sagt þér að það er
ekki sjálfgefið að starfa við það sem gefur
manni svona mikið í lífinu,“ segir Elva Björg
brosandi er við kveðjumst.
Við eigum einn engil á
himninum sem passar okkur
fjölskylduna vel og hefur kennt
okkur hversu dýrmætt lífið er.
Fjölskyldan: Aron Atli, Sigrún tengdadóttir, Alexander Almar, Alvar Auðunn, Elva Björg og Finnbogi Helgi.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Forréttindi að starfa
með eldri borgurum
HIN HLIÐIN
Hvaða hlutur er þér kærastur?
Giftingarhringurinn.
Besta ráð sem þú hefur nýtt þér?
Að vera alltaf samkvæm sjálfum mér.
Besta lykt í heimi? Útilykt, eins og t.d.
af nýþvegnum rúmfötum sem eru búin að
hanga úti á snúru.
Óvenjulegasta lífsreynslan?
Að fæða andvana barn.
Hvaða matur freistar þín?
Indverskur matur.
Eftirminnilegasta ferðalagið? Þegar við
fjölskyldan fórum öll saman til Florída.
Uppáhaldsvefsíða? mbl.is
Hverju myndir þú breyta á Íslandi ef
þú ættir þess kost? Að allir myndu
lifa við mannsæmandi kjör.
Elva Björg Pálsdóttir forstöðumaður félagsstarfs aldraðra í Mosfellsbæ nýtur hvers dags í starfi
elva björg og finnbogi ung að árum
gaman saman á eirhömrum