Mosfellingur - 22.12.2022, Page 36
- Íþróttir36
j a k o s p o r t ( N a m o e h f ) - k r ó k h á l s 5 f - 1 1 0 á r b æ r Sími: 566 7310 - jakosport@jakosport.is - jakosport.is
AftureldingAr
vörurnAr
fást hjá okkur sport íslandi
Ungmennafélagið Afturelding óskar
Mosfellingum nær og fjær gleðilegra
jóla og farsældar á komandi ári.
Þökkum fyrir samstarfið á árinu sem er að líða og förum með eftirvæntingu inn í nýtt íþróttaár.
Úrvalsdeildirnar í blaki eru komnar í jóla-
frí en næstu leikir verða spilaðir 11. og 13.
janúar 2023.
Strákarnir sitja þægilega í 2. sæti deild-
arinnar eftir 8 leiki af 14. Stelpurnar okkar
sitja í 4. sæti eftir 7 umferðir.
Strákarnir standa vel að vígi eins og
staðan er núna og stelpunar eiga þó nokk-
uð inni eftir meiðsli og veikindi sem hafa
hrjáð liðið í haust.
Um miðjan janúar fer fram umferð í neðri
deildum Íslandsmóts BLI að Varmá en þar
á Afturelding eitt lið í 2. deild kvenna, tvö
lið í 3. deild karla, tvö lið í 4. deild kvenna
og eitt lið í 5. deild kvenna.
Þar snýst baráttan um að halda sér í efri
helmingnum eftir fyrstu 2 helgarmótin til
að fá að spila um efstu sætin í deildinni.
Blakdeild Aftureldingar óskar öllum bæj-
arbúum gleðilegra jóla og farsældar á nýju
ári með von um að sjá sem flesta á leikjum
deildarinnar 2023.
Handbolti.is óskar lesendum sínum og auglýs
endum gleðilegra jóla og farsældar á komandi
ári um leið og þakkað er fyrir lestur, stuðning
og hvatningu á árinu sem er að líða.
Karlalið aftureldingar
sem situr í 2. sæti
Blakliðin komin í jólafrí • Aftureldingarstelpurnar í 4. sæti
Strákarnir standa vel að vígi
Fyrirlestur með Loga Geirs
BUR ætlar tvisvar á vorönn að bjóða upp á áhugaverða fyrir-
lestra fyrir sína iðkendur og foreldra þeirra. Þeir munu fjalla
um ýmis málefni tengd iþróttum.
Þann 10. janúar kl. 19:30 í Krikaskóla verður sá fyrri og mun
Logi Geirson sjá um hann. Skemmtileg tímasetning þar sem
HM í handbolta hefst 11. janúar þar sem Ísland ætlar sér stóra
hluti.
Fyrirlesturinn fjallar um markmiðsetningu hugarfar,
mataræði, jákvæð samskipti og sjálfstraust svo eitthvað sé nefnt. Þetta er frábær og
skemmtilegur fyrirlestur sem enginn má missa af. Það verður frítt á fyrirlesturinn fyrir
iðkendur Aftureldingar en mjög hóflegt gjald fyrir foreldra.
HM í handbolta hefst 11. janúar. Í tilefni þess ætlar BUR (barna- og
unglingaráð Aftureldingar) að bjóða öllum sem vilja prufa að æfa
handbolta frítt í janúar. Nú er um að gera að láta sjá sig á æfingum,
þar sem stjörnurnar fæðast.
Frítt að prufa handbolta í janúar
Mikið um að vera hjá BUR á nýju ári
Badmintondeild Aftureldingar hélt
fjölmennt unglingamót í nóvember og er
gaman að segja frá því að okkar maður úr
Aftureldingu Sigurjón Gunnar Guð-
mundsson sigraði sinn flokk.
Sigurjón sigraði
á fjölmennu móti