Mosfellingur - 22.12.2022, Blaðsíða 50
Heilsumolar gaua
- Aðsendar greinar50
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Takk fyrir
HeilsuHreysTið
Inntakið í þessum pistil er fengið
að láni hjá vini mínum Halla Nels
sem í miðjum snjómokstri fékk góða
ábendingu frá eldri manni um að
hann ætti að vera þakklátur fyrir að
hafa heilsu til að moka svona mikið
og af svona miklum krafti. Halli hætti
að vorkenna sjálfum sér og bölva því
að þurfa að standa í þessu veseni
enn og aftur og snjómoksturinn varð
allur léttari eftir spjallið við þann
gamla.
Það er akkúrat á svona stundum,
þegar veðurguðirnir minna
hressilega á sig, sem við sem erum
heilsuhraust eigum að nota orku
okkar í að gera gagn. Fyrir okkur sjálf
og aðra. Við getum lagst í tuð og vor-
kennt okkur fyrir að veðrið á eyjunni
okkar hér lengst norður í Atlantshafi
dirfist að trufla dagskrána okkar í lok
árs. Við getum líka tekið Halla okkur
til fyrirmyndar. Nýtt okkur það að
við höfum heilsu til að gera gagn og
verið þakklát fyrir það.
Þessu tengt, við sem höfum
heilsu til að æfa okkur og styrkja
dags daglega eigum að gera það.
Punktur. Ef ekki til þess að líða betur
á líkama og sál, þá til þess að geta
gert gagn þegar samfélagið þarf á
okkur að halda. Þetta tvennt finnst
mér vera megintilgangur þess að æfa
reglulega, að líða betur og geta gert
gagn. Geta hjálpað sjálfum sér og
öðrum. Líkamsrækt á ekki að snúast
um speglafegurð og fituprósentu,
ekki það að það sé neitt að því að
líta út eins og fegursti karlmaður
Mosfellsbæjar frá upphafi, Baldvin
Jón Hallgrímsson, en hann getur svo
sem lítið að því gert, blessaður.
Setjum okkur heilsuhreystismark-
mið fyrir næsta
ár. Sama hvar við
erum í dag, það
er alltaf hægt að
spyrna sér upp á
við. Verum eins
klár í desem-
berlægðirnar á
næsta ári og við
mögulega getum.
Æfum!
Nýr meirihluti Framsókn-
arflokksins, Samfylkingar
og Viðreisnar hefur sam-
þykkt sína fyrstu fjárhags-
áætlun, fyrir árið 2023.
Fjárhagsáætlunin nýtur
sannarlega góðs af faglegu
og góðu starfi starfsfólks
Mosfellsbæjar og bæjar-
stjórnar undanfarinna ára
og það eru möguleikar á
að halda áfram að auka og
bæta þjónustu og viðhalda
þannig velsæld og ánægju
íbúa Mosfellsbæjar. Það
er óvissa varðandi horfur
í efnahagsmálum og því
mikilvægt að sýna ábyrgð í fjármálastjórn-
un, forgangsraða rétt og að gera raunhæfar
áætlanir bæði á tekju- og útgjaldahlið.
Fjárhagsstaða Mosfellsbæjar er góð, þrátt
fyrir tímabundna erfiðleika í efnahagsmál-
um og ljóst að nýr meirihluti tekur við góðu
búi. Margt af því sem tilgreint er í fjárhags-
áætlun fyrir árið 2023 er áframhaldandi
vinna á góðum verkum fyrri meirihluta
fyrir utan stórfelldar skattahækkanir sem
eru alfarið í boði nýs meirihluta.
Í Mosfellsbæ hefur verið rekin ábyrg
og fagleg fjármálastjórn undanfarin mörg
ár og styðjum við ávallt ábyrga fjármála-
stjórnun. Megin áherslumunur okkar og
meirihlutans varðandi þessa fjárhagsáætl-
un eru vanáætlaðar tekjur af byggingarétti
og lóðaúthlutun sem koma fram í áætlun-
inni. Þessi vanáætlun gerir það að verkum
að skattar og álögur verða stórhækkaðar á
íbúa á tímum verðbólgu, mikilla hækkana
á allri þjónustu sveitar-
félagsins og hárra vaxta.
Þar er alvarlegasta dæmið
hækkun fasteignagjalda
sem munu hækka um
15-18 % á næsta ári og á
sama tíma hrósar meiri-
hlutinn sér af því að lækka
fasteignaskattinn örlítið
sem dugir engan veginn
til vegna stórhækkaðs
fasteignamats á íbúðar-
og atvinnuhúsnæði. Auk
þessara hækkana á allri
þjónustu Mosfellsbæjar
eru uppi áform um frest-
anir á mjög mikilvægum
uppbyggingarverkefnum, svo sem bygg-
ingu leikskóla í Helgafellshverfi og nauð-
synlegrar uppbyggingar á íþróttasvæðinu
að Varmá. Þessar frestanir munu hækka
framkvæmdakostnað til muna sem er aug-
ljóslega mjög slæmt fyrir skattgreiðendur í
Mosfellsbæ.
Bæjarfulltrúar D-lista lögðu fram m.a.
eftirfarandi tillögur til breytingar á fjár-
hagsáætlun ársins 2023 sem voru felldar:
• Lagt er til að útsvar verði óbreytt og ekki
hækkað upp í löglegt hámark 14,52%
• Lagt er til að fasteigngjöld verði lækkuð
eins og undanfarin ár svo þau hækki ekki
umfram vísitölu, annars hækka gjöldin um
15-18 % eftir hverfum.
• Lagt er til að farið verði í framkvæmdir
við þjónustubygginguna að Varmá strax í
byrjun næsta árs í samræmi við fyrirliggj-
andi áætlanir.
• Lagt er til að hafnar verið strax fram-
kvæmdir við leikskólann í Helgafellslandi í
samræmi við fyrirliggjandi áætlanir
• Lag er til að FabLab smiðja verði sett á
stofn í Mosfellsbæ árið 2023 í samræmi við
tillögur sem fulltrúar í D-lista í bæjarráði
lögðu fram.
• Tillögu D-lista um hækkun frístundaá-
vísana til samræmis við hækkun vístölu var
vísað til bæjarráðs.
Svo virðist sem algjör kyrrstaða sé í
ákvarðanatöku og framkvæmdum hjá nýj-
um meirihluta. Boðleiðir virðast langar og
erfitt að taka ákvarðanir og að láta hlutina
ganga. Það verður vonandi breyting á
þessu á næstu misserum, það er að flokk-
anir nái að stilla saman strengi, sýna pólit-
ískt þor og láta verkin tala í ört stækkandi
sveitarfélagi.
Við bæjarfulltrúar D-lista í Mosfellsbæ
munum styðja góðar tillögur meirihlutans
sem fyrr og hvetja þau áfram til góðra verka,
en við munum einnig halda áfram að koma
okkar tillögum og stefnumálum á framfæri
og leggja þannig okkar af mörkum svo að
áfram verði best að búa í Mosfellbæ.
Við sendum bæjarbúum öllum okkar
bestu óskir um gleðileg jól og farsælt kom-
andi ár.
Bæjarfulltrúar D-lista.
Ásgeir Sveinsson
Jana Katrín Knútsdóttir
Rúnar Bragi Guðlaugsson
Helga Jóhannesdóttir
Fjárhagsáætlun nýs meirihluta
Lengri útgáfa af greininni
birtist á Mosfellingur.is
Að þekkja erfðarétt sinn og ganga
frá málum með gerð erfðaskrár
getur bæði verið skynsamlegt og
komið í veg fyrir ýmis vandamál
við andlát eða skilnað.
Erfðaskrá er formbundinn skrif-
legur löggerningur um hinsta vilja
einstaklingsins.
Vissir þú að...
...hver sá sem er orðinn fullra 18 ára og
telst andlega heill getur ráðstafað eignum
sínum með erfðaskrá.
...langlífari maki á lögbundinn rétt til
setu í óskiptu búi með sameiginlegum
börnum sínum og hins skammlífara, nema
annað hafi verið ákveðið í erfðaskrá.
Ekki þarf samþykki sameiginlegra barna
þar um og skiptir þá engu hvort þau eru
fjárráða eða ófjárráða. Þess skal þó getið að
sækja þarf um leyfi til setu í óskiptu búi hjá
sýslumanni í því umdæmi sem viðkomandi
býr.
...langlífari maki á ekki rétt til að sitja í
óskiptu búi með börnum hins skammlífara,
nema þau eða forráðamenn þeirra, ef þau
eru yngri en 18 ára, samþykki það. Innan
þriggja mánaða frá 18 ára aldri getur barnið
síðan óskað eftir að búinu verði skipt.
Ef fjárráða stjúpniðjar, þ.e. 18 ára og
eldri, hafa samþykkt setu hins langlífara í
óskiptu búi, geta þeir krafist skipta á búinu
með eins árs fyrirvara. Þetta er hægt að
koma í veg fyrir með erfðaskrá.
...aðeins fólk í hjúskap getur gert
erfðaskrá sem heimilar eftirlifandi
maka að sitja í óskiptu búi. Sam-
búðarfólk getur það ekki.
...sambúðaraðilar eiga engan
erfðarétt eftir hvort annað og
skiptir þá lengd sambúðar eða
sameiginleg börn engu þar um. Að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum er hægt að
tryggja sambúðaraðila arf með erfðaskrá.
... þú getur gert arf barna þinn að séreign
gangi þau í hjúskap eða eru í hjúskap.
...skv. erfðalögum er öllum heimilt að
ráðstafa að vild einum þriðja eigna sinna
með erfðaskrá. Gildir þetta jafnt fyrir þá
sem eru í hjúskap og/eða eiga börn. Maki
sem situr í óskiptu búi getur aðeins ráðið
eignarhluta sínum með erfðaskrá.
...þeim sem ekki eiga skylduerfingja, þ.e.
börn eða maka, er heimilt að ráðstafa öllum
arfi sínum með erfðaskrá.
... fari skipti á dánarbúi fram eftir lát
beggja hjóna, fellur niður lögmæltur
erfðaréttur hins langlífara eftir hið skamm-
lífara.
...við andlát einstaklings verður til sjálf-
stæð lögpersóna, dánarbú, sem tekur tíma-
bundið við öllum réttindum og skyldum
hins látna. Huga þarf því vel að framtals-
skilum og skuldastöðu hins látna.
...óski erfingjar eftir einkaskiptum á
dánarbúi hins látna bera þeir persónulega
ábyrgð á öllum skuldum, einn fyrir alla og
allir fyrir einn, hvort sem þeim er um þær
kunnugt eða ekki.
Margrét Guðjónsdóttir lögmaður aðstoð-
ar við einkaskipti dánarbúa, hvort sem er að
sækja um leyfi til einkaskipta og koma fram
af hálfu erfingja í nafni dánarbúsins, sjá um
opinbera skýrslugerð, sölu eigna, úthlutun
til erfingja eða hvað annað sem dánarbúi
viðkemur þar til skiptum er lokið.
Verið velkomin.
Margrét Guðjónsdóttir lögmaður
MG Lögmenn
margret@mglogmenn.is - www.mglogmenn.is
Þekkir þú erfðarétt þinn?
AðsendAr greinAr
Greinum skal skila inn með
tölvupósti á netfangið
mosfellingur@mosfellingur.is
og skulu þær ekki vera
lengri en 500 orð.
Greinum skal fylgja fullt nafn
ásamt mynd af höfundi.
MOSFELLINGUR