Víkurfréttir - 04.01.2023, Blaðsíða 1
16 SÍÐUR Í ÞESSARI VIKU • STÆRSTA FRÉTTA- OG AUGLÝSINGABLAÐIÐ Á SUÐURNESJUM
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
studlaberg.is // 420-4000
Drög að viðauka við samning milli
heilbrigðisráðuneytis og Reykja-
nesbæjar um byggingu hjúkr-
unarheimilis á Nesvöllum í Reykja-
nesbæ voru lögð fram á síðasta
fundi bæjarráðs Reykjanesbæjar.
Viðaukinn felur meðal annars í sér
fjölgun hjúkrunarrýma úr 60 í 80.
Bæjarráð samþykkti viðaukann
á fundinum og felur Kjartani Má
Kjartanssyni bæjarstjóra að undir-
rita samninginn.
Velferðarráð Reykjanesbæjar tók
m.a. fjölgun hjúkrunarrýma til um-
fjöllunar á fundi ráðsins í desember,
þar sem meirihluti ráðsins bókaði:
„Meirihlutinn í velferðarráði fagnar
því að samkvæmt fundargerð öld-
ungaráðs sem haldinn var þann 8.
desember sl. er unnið að nýju hjúkr-
unarheimili. Einnig að á 1395. fundi
bæjarráðs Reykjanesbæjar þann 1.
desember sl. hafi verið samþykkt að
fjölga hjúkrunarrýmum úr 60 í 80.
Þarna er verið að horfa í að þörfin
sé brýn og nauðsynleg svo að vinda
þarf ofan af biðlistum og horfa til
framtíðar. En til þess að allt þetta
gangi upp þurfa Reykjanesbær og
heilbrigðisráðuneytið að vinna
vel saman t.d. að deiliskipulagi og
komast að samkomulagi um kostn-
aðarskiptingu milli sveitarfélagsins
og ríkisins.“ Undir bókunina rita þau
Sigurrós Antonsdóttir, Andri Fannar
Freysson og Birna Ósk Óskarsdóttir.
Fjölga nýjum
rýmum úr 60 í 80
Enn stærra hjúkrunarheimili á Nesvöllum
Vetur konungur hefur heldur betur minnt a sig síðustu daga. Mesti snjór á
Suðurnesjum í áratugi hefur fallið frá því í vikunni fyrir jól. Berta Svansdóttir
tók þessa táknrænu vetrarmynd í Reykjanesbæ af vetrarsól og snjó.
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra,
Betsý Ásta Stefánsdóttir, formaður
Ungmennaráðs Reykjanesbæjar og
Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður Félags
eldri borgara á Suðurnesjum tóku fyrstu
skóflustunguna að hjúkrunarheimilinu
um miðjan maí á síðasta ári. VF-mynd/pket.
Gleðilegt nýtt ár!
Hver verður maður ársins á Suðurnesjum 2022? Ábendingum um verðuga
einstaklinga til að hljóta nafnbótina „Suðurnesjamaður ársins 2022“ má
senda á tölvupóstfangið vf@vf.is. Á síðasta ári hlutu Björgunarsveitin Þor-
björn og Slysavarnadeildin Þórkatla í Grindavík nafnbótina.
Hver er Suðurnesjamaður ársins 2022?
Íþrótta- og tómstundaráð Suður-
nesjabæjar leggur til við bæjar-
stjórn Suðurnesjabæjar að farið
verði í tilraunaverkefni á vorönn
2023 þar sem boðið verður upp á
frían frístundaakstur milli kl. 13:30
og 16:30 á milli byggðarkjarna í
Suðurnesjabæ og til Reykjanes-
bæjar.
Þátttaka barna í íþróttum og frí-
stundabíll voru til umræðu á síðasta
fundi íþrótta- og tómstundaráðs
Suðurnesjabæjar. Freyja Þorvaldar-
dóttir starfsmaður Maskínu var
gestur á fundinum og kynnti niður-
stöður könnunar sem lögð var fyrir
í október og nóvember 2022 fyrir
foreldrum grunnskólabarna um frí-
stundastarf og frístundaakstur í
Suðurnesjabæ.
Skoða frían frí-
stundaakstur í
Suðurnesjabæ
Gönguskíðagarpar á Suðurnesjum
geta nú notast við gönguskíðabraut
við golfvöllinn á Ásbrú og á golfvell-
inum í Leiru en þar voru opnaðar
brautir á dögunum. Í tilkynningu
á síðu Reykjanesbæjar kemur fram
að sporin séu ekki fullkomin eftir
fyrstu umferð en til stendur að laga
þau þegar færi gefst.
Gönguskíðabrautir á
Ásbrú og í Leiru opnar
„Eftir samdráttartíma frá falli
WOW Air 2019 og síðan heims-
faraldur Covid-19 sem hófst í árs-
byrjun 2020, sem olli samdrætti
í atvinnustarfsemi og miklu at-
vinnuleysi á svæðinu þá hefur á
örstuttum tíma orðið alger við-
snúningur. Eftir að öll höft voru af-
lögð og alþjóðaflug fór aftur á flug,
hafa umsvif á alþjóðaflugvellinum
í Suðurnesjabæ aukist mjög mikið
með jákvæðum
áhrifum á ýmsa
a f l e i d d a a t -
vinnustarfsemi
og m.a. leitt til
fjölgunar starfa.
G e r t e r rá ð
fyrir að mikil
aukning verði
á umsvifum á og við flugvöllinn í
nánustu framtíð, en nú standa yfir
miklar framkvæmdir við stækkun
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar til að
mæta þeim auknu umsvifum sem
fyrirsjáanlegt er að verði,“ segir
Magnús Stefánsson, bæjarstjóri í
Suðurnesjabæ, í áramótapistli sem
hann skrifar á vef sveitarfélagsins.
Þá segir í pistlinum: „Sjávarútveg-
urinn hefur gengið vel og atvinnu-
starfsemi almennt hefur gengið vel
á árinu. Allt hefur þetta orðið til að
fjölga störfum og skapa eftirspurn
eftir vinnuafli, sem hefur haft mjög
jákvæð áhrif ef litið er til atvinnu-
stigs og atvinnuþátttöku á svæðinu.
Með mikilli fjölgun ferðamanna
sem sækja Ísland heim hefur ferða-
þjónustan blómstrað á nýjan leik og
fjölgaði veitingastöðum í Suðurnes-
jabæ á árinu þegar tveir nýir veit-
ingastaðir hófu starfsemi.“
— Sjá nánar á vf.is.
– segir Magnús Stefánsson bæjarstjóri í Suðurnesjabæ í áramótapistli
Aukin umsvif á alþjóðaflugvellinum í Suðurnesjabæ
5.–8. janúar
Miðvikudagur 4. janúar 2023 // 1. tbl. // 44. árg.