Víkurfréttir - 04.01.2023, Blaðsíða 10
2022 Í MYNDUM
Elsa Albertsdóttir var á árinu útnefnd
Skyndihjálparmaður ársins í tilefni af
112-deginum. Það er Rauði krossinn
sem stendur að valinu. Elsa sýndi
mögnuð viðbrögð þegar faðir hennar,
Albert Eðvaldsson fór í hjartastopp.
„Hún gerir nú lítið úr þessu en við-
brögð hennar björguðu lífi mínu. Þrjú
skyndihjálparnámskeið sem hún hafði
sótt komu að góðum notum þegar
hún þurfti að hnoða og bjarga kall-
inum,“ segir Albert Eðvaldsson, 57
ára fjölskyldufaðir úr Njarðvík en Elsa,
tuttugu og eins árs dóttir hans er talin
eiga stærsta þátt í því að hann er enn
meðal vor eftir að hafa farið í hjarta-
stopp í lok ágúst í fyrra.
Fyrsta skóflustunga var tekin að nýju
húsnæði Skólamatar var tekin í mars
en húsið verður tekið í notkun á þessu
ári. Axel Jónsson og Þórunn Halldórs-
dóttir eiginkona hans, eigendur Skóla-
matar, tóku fyrstu skóflustunguna að
viðstöddu starfsfólki Skólamatar.
Nýja húsnæðið er um 400 fermetra
viðbygging þar sem gert er ráð fyrir
eldhúsi á neðri hæð og skrifstofu og
matsal á efri hæð.
Kútmagakvöld Lionsklúbbs Grinda-
víkur var haldið hátíðlegt á árinu en
þetta var fyrsta stóra veislan sem
haldin var í Grindavík eftir að hömlum
vegna kórónuveirufaraldurs var aflétt.
Júlíus Guðmundsson, handhafi Súl-
unnar 2021, fagnaði á árinu með tón-
leikum í Frumleikhúsinu.
Stórbruni varð í Helguvík í apríl þegar
húsnæði og athafnasvæði Íslenska
gámafélagsins varð alelda. Slökkvi-
starf tók nokkra daga þar sem eldur
læsti sig í eldfima hauga á lóð fyrir-
tækisins.
Náttúruöflin héldu áfram að minna á sig á árinu 2022. Eldgos hófst í Meradölum við Fagradalsfjall þann 3. ágúst. Þegar
gosið hófst var það mun stærra en þegar gosið hófst í Geldingadölum árið áður. Talað var um að það væri fimm til tíu
sinnum stærra. Gosið stóð hinsvegar stutt yfir og var afstaðið um þremur vikum síðar. Eldgosið var mikið aðdráttarafl og
þúsundir lögðu leið sína að gosinu. Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, fór með Hákon Noregsprins að gosstöðvunum
þar sem Kristín Jónsdóttir, náttúruvársérfræðingur, fræddi þá um umbrotin.
Sumardeginum fyrsta var fagnað með skátamessu í Keflavíkurkirkju. Eydís
Eyjólfsdóttir lagar hér hálsklút séra Erlu Guðmundsdóttur sóknarprests í Kefla-
víkurkirkju fyrir athöfn í kirkjunni.
Hannes Friðriksson hafði ástæðu til að slá garð sinn við Freyjuvelli í Keflavík
þann 25. nóvember. Það var tveimur dögum fyrir fyrsta sunnudag í aðventu. Á
sama tíma var verið að þekja hluta Hafnargötunnar í Keflavík í gervisnjó vegna
kvikmyndatöku á True Detective sjónvarpsþáttunum.
Veðurhamurinn í upphafi ársins 2022 rataði í fréttirnar. Talsvert tjón varð í
Grindavík í sjávarflóðum. Sjórinn flæddi langt upp á land vestan Grindavíkur
þar sem ástadið á þjóðveginum var eins og sjá má hér að ofan vegna flóða.
Árið 2022 var sérstakt fyrir þær sakir
að þá var aftur hægt að halda bæjar-
hátíðir eftir höft kórónuveirufarald-
ursins. Grindvíkingar héldu upp á sjó-
mannadaginn með hátíðinni Sjóarinn
síkáti. Hluti af þeirri hátíð er að bæjar-
búum og gestum er boðið í skemmti-
siglingu með fiskiskipum úr grindvíska
flotanum. Hér er Páll Jónsson GK á
siglingu, fullur af fólki.
Ungbarnasund nýtur vinsælda á
Suðurnesjum og hefur verið kennt í
sundlaug Akurskóla í mörg ár en þar
var myndin tekin.
Nýju lífi var fagnað á fallegu sumar-
kvöldi á Garðskaga.
Ljósanótt var sett í byrjun september. Það var unga fólkið í bænum sem sá um
setningarathöfnina í skrúðgarðinum. Veðurguðirnir léku við hvern sinn fingur á
hátíðinni í ár, sem þótti takast með miklum ágætum og mannfjöldinn í bænum
hefur aldrei verið meiri, svo vitnað sér í elstu menn og þeirra minni.
Tjón af völdum myglu komst í fréttirnar á árinu. Mikið tjón er á Myllubakkaskóla
í Keflavík og hefur m.a. þurft að rífa hluta skólans vegna myglunnar. Þá kom
einnig upp mylgla í leikskólanum Sólborg í Sandgerði og víðar.
Tveir grunnskólar á Suðurnesjum fögnuðu 150 ára afmæli á árinu. Þetta eru
Stóru-Vogaskóli í Sveitarfélaginu Vogum og Gerðaskóli í Suðurnesjabæ. Boðið
var til afmælisveislu í báðum skólum. Nemendur og starfsfólk Gerðaskóla kom
saman af þessu tilefni og mynduðu töluna 150.
10 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM