Víkurfréttir - 04.01.2023, Qupperneq 6
Rétturinn
Ljúengur
heimilismatur
í hádeginu
Opið:
11-13:30
alla virka daga
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Ökuskóli allra landsmanna
Finndu næsta
námskeið inn á
www.aktu.is
Allir
réttindaflokkar
Verkleg kennsla í
boði víða um land
Bókleg kennsla á netinu
MEIRAPRÓF
Fjarkennsla
Heyrn // Hlíðasmára 19 // Kópavogur // heyrn@heyrn.is //
HEYRNARTÆKI // HEYRNARGREINING // RÁÐGJÖF
Heyrðu umskiptin,
fáðu heyrnartæki
til reynslu
HEYRN.IS
Nokkrir bátar réru á milli jóla og nýárs
Maður er varla búinn að skrifa pistil
um að árið 2022 sé liðið þegar árið
2023 er komið í gang. Þetta var líka
lítið frí fyrir suma því bæði jól og
áramót lentu á helgi.
Í Grindavík voru þrír bátar sem
réru á milli hátíða, það voru Óli
á Stað GK, Hulda GK og Daðey
GK. Hulda GK var með 17,5 tonn
í fjórum róðrum, Óli á Stað GK
var með 21,6 tonn í fjórum og
Daðey GK 16 tonn í tveimur. Voru
þetta einu bátarnir sem réru frá
Grindavík á milli hátíða.
Í Reykjanesbæ var enginn bátur
og engin löndun milli hátíða og í
raun voru landanir í desember í
Reykjanesbæ aðeins 22 sem er nú
vægast sagt hroðalega lítið. Allt
voru þetta landanir frá bátunum
hans Hólmgríms.
Í Sandgerði kom Pálína Þórunn
GK með 52 tonn í einni löndun
en togarinn var búinn að vera við
veiðar utan við Sandgerði. Færa-
báturinn Guðrún GK fór eina sjó-
ferð og vekur það nokkra athygli því
það er mjög sjaldgæft að færabátur
rói svona seint á árinu. Guðrún
GK kom með 1,4 tonn í land í einni
löndun.
Margrét GK var með 10,4 tonn í
einni löndun. Benni Sæm GK var
með 10 tonn í einni og Sigurfari GK
var með 12 tonn í þremur, báðir á
dragnót.
Ef við lítum aðeins á hafnirnar á
Suðurnesjunum fyrir árið 2022, þá
lítur það svona út:
Í Reykjanesbæ, Keflavík og
Njarðvík, voru landanir samtals 614
og var aflinn samtals um tæp 3.400
tonn. Svo til uppistaðan í löndunum
í þessum höfnum var frá bátunum
hans Hólmgríms; Maron GK, Hall-
dóri Afa GK og Grímsnes GK. Smá-
vegis makríll kom í Keflavík, eða
samtals 147 tonn í 91 löndun. Þessi
makríll var svo til eini makríllinn
sem veiddist á færi á landinu, auk
smávegis frá Ólafsvík.
Í Grindavík voru landanir alls
1.468 og var tæpum 33 þúsundum
tonna afla landað þar. Stór hluti af
þeim afla kemur frá frystitogurum
því Hrafn Sveinbjarnarsson GK og
Tómas Þorvaldsson GK lönduðu
langmestum hluta sínum þar, eða
tæpum 15 þúsund tonnum.
Langmestur hluti þessara
landana kom á vertíðinni og bát-
arnir skiptust á að landa þar og í
Sandgerði. Enginn uppsjávarfiskur
kom til Grindavíkur árið 2022 og í
raun kom enginn uppsjávarfiskur
á neinar hafnir á Suðurnesjunum
nema makríllinn sem minnst er á
hérna að ofan.
Sandgerði hefur um árabil verið
með stærri löndunarhöfnum
landsins og þar voru landanir alls
2438 og aflinn tæp 13 þúsund tonn.
Aðeins einn togari landaði þar
reglulega, Pálína Þórunn GK, en á
árum áður voru allt upp í fimm tog-
arar sem lönduðu þar reglulega, t.d.
Sveinn Jónsson GK, Ólafur Jónsson
GK, Berglín GK, Sóley Sigurjóns GK
og Haukur GK.
Hvorki rækja né humar kom á
land í Sandgerði og gerði það ekki
heldur í hinum höfnunum nema
smá rækja kom í Njarðvík þegar
Sóley Sigurjóns GK kom þangað
með um 4,5 tonn í lok rækjuver-
tíðar sinnar.
Heilt yfir held ég að Sandgerðis-
höfn og Grindavíkurhöfn geti verið
nokkuð sáttar við sinn hlut fyrir
árið 2022 en staðan lítur ekki eins
vel út fyrir Reykjanesbæ og höfnina
þar – og það væri mikill munur ef
loðnuverksmiðjan í Helguvík myndi
verða ræst aftur því það er frekar
ömurlegt að vita af því að loðnan
sem veiðist, þegar hún gengur
hérna í kringum Suðurnesin, fer öll
til vinnslu á Austurlandi eða í Vest-
mannaeyjum.
Samantekt: Heildarlandanir alls
4.520 og heildarafli alls um 49
þúsund tonn á Suðurnesjum árið
2022.
aFlaFrÉttir á SuðurnESjuM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319. Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmói 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421-0000. Ristjóri og ábyrgðarmaður: Páll Ketilsson, s. 893-3717, pket@vf.is. Fréttastjóri: Hilmar Bragi
Bárðarson, s. 898-2222, hilmar@vf.is Auglýsingastjóri: Andrea Vigdís Theodórsdóttir, s. 421-0001, andrea@vf.is. Blaðamenn: Jóhann Páll Kristbjörnsson, Thelma Hrund Hermannsdóttir og Sigurbjörn Daði Dagbjartsson.
Útlit og umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson og Hilmar Bragi Bárðarson. Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Júlíus Jón Jónsson, forstjóri HS Veitna, lét af störfum nú um áramótin eftir
rúman fjörutíu ára starfsferil hjá HS Veitum og Hitaveitu Suðurnesja.
Júlíus hóf störf hjá Hitaveitu Suðurnesja 1982 sem fjármálastjóri en varð
forstjóri áratug síðar. HS Veitur héldu honum kveðjuhóf skömmu fyrir
áramót í Stapa þar sem samstarfsmenn, stjórnarfólk og fleiri samglöddust
Júlíusi. Páll Ketilsson leit við og tók nokkrar myndir í hófinu.
Júlíus kvaddur eftir fjörutíu ár hjá HS
Júlíus Jón með Ingibjörgu Magnúsdóttur, eiginkonu sinni.
Guðný B. Guðmundsdóttir, formaður stjórnar HS Veitna,
færði Júlíusi gjöf frá fyrirtækinu.
Sveitarstjórnafólk, verktakar og samstarfsfólk var á meðal gesta.
6 // vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM