Víkurfréttir - 04.01.2023, Blaðsíða 13
Ljósahús Suðurnesjabæjar árið
2022 er Hólagata 13 í Sandgerði
og jólahús Suðurnesjabæjar árið
2022 er Heiðarbraut 8 í Garði. Sér-
stakar viðurkenningar fengu íbúar
við Dynhól 1 í Sandgerði og Staf-
nesveg 32 í Sandgerði.
Viðurkenningar fyrir fallegar jóla-
skreytingar í Suðurnesjabæ voru
afhentar 22. desember þegar full-
trúar ferða-, safna- og menningar-
ráðs, Oddný Kristrún Ásgeirsdóttir
og Hlynur Þór Valsson, heimsóttu
íbúa þeirra húsa sem hlutu viður-
kenningar í ár.
„Þeir sem hafa farið um götur
Suðurnesjabæjar sjá strax að íbúar
hafa verið duglegir við að skreyta hjá
sér og lífga upp á skammdegið með
fallegum ljósum. Val á ljósa- og jóla-
húsum var í höndum ferða-, safna-
og menningarráðs Suðurnesjabæjar
líkt og undanfarin ár og fá eigendur
og íbúar húsanna gjafabréf frá HS
Veitum sem nýtist í niðurgreiðslu á
rafmagni,“ segir í tilkynningu.
Jóla- og ljósahús Suðurnesja-
bæjar 2022 verðlaunuð
Dynhóll 1 í Sandgerði
Stafnesvegur 32 í Sandgerði
Heiðarbraut 8 í Garði.
Hólagata 13 í Sandgerði.
Störf í boði
hjá Reykjanesbæ
Umsóknir í auglýst störf skulu berast rafrænt gegnum vef
Reykjanesbæjar. Þar eru jafnframt nánari upplýsingar um auglýst
störf. Hægt er að notast við QR kóða til að fara beint inn á vefinn
Hljómahöll – Veitingastjóri
Alþjóðateymi Reykjanesbæjar - Málstjóri
Garðasel - Aðstoðarmatráður
Hefur þú áhuga á að starfa við liðveislu?
Viltu starfa hjá Reykjanesbæ? Almenn umsókn
Viðburðir í janúar
LISTASAFNIÐ Í JANÚAR
Vinnustofa
krakkaklúbbs
Vinnustofa krakkaklúbbs Listasafns
Reykjanesbæjar verður haldin einn
sunnudag í janúar. Listasafnið heldur
eina fasta vinnustofu alla mánuði til vors
með nýjum safnakennara í hvert skipti.
BÓKASAFNIÐ 2.-6. JANÚAR
Jóla - kósý í
Átthagastofu
Síðustu dagar á Jóla-kósý í
Átthagastofu bókasafnsins. Þar má
finna jólahús, jólatré og pakka og flottar
skreytingar með amerísku ívafi. Síðasti
sýningardagur er 6. janúar.
Kynnið ykkur alla dagskrána
á Visit Reykjanesbær
Skoðaðu viðburðadagatalið okkar á Visit Reykjanesbær til að sjá hvaða áhugaverðu viðburðir eru
framundan. Á heimasíðunni má einnig finna fjölbreyttar upplýsingar um
Reykjanesbæ og hvað er í boði fyrir bæjarbúa og gesti.
www.visitreykjanesbaer.is
Þrettándagleði
6. janúar
Hátíðin hefst kl. 18:00 með blysför frá Myllubakkaskóla þar
sem gengið verður í fylgd álfakóngs, drottningar og hirðar
þeirra að hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Þar tekur Grýla
gamla á móti hersingunni, álfar munu syngja þrettándasöngva
og alls kyns kynjaverur verða á sveimi á svæðinu. Þrettánda-
brennan verður á sínum stað við Ægisgötu og boðið upp á heitt
kakó til að ylja sér.
Í lok dagskrár verða jólin kvödd að hætti Björgunarsveitarinnar
Suðurnes með glæsilegri flugeldasýningu. Karlakór Keflavíkur,
Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Skátafélagið
Heiðabúar, Björgunarsveitin Suðurnes og lúðrasveit Tónlistar-
skóla Reykjanesbæjar taka þátt í dagskránni.
Heimskonur hittast reglulega í
Bókasafninu, fyrsta laugardag hvers
mánaðar kl. 12.00. Heimskonur er
hópur fyrir konur af erlendum uppruna
sem vilja hittast og eiga saman notalega
samverustund. Hópurinn er einnig opinn
konum af íslenskum uppruna.
BÓKASAFNIÐ 7. JANÚAR
Laugardagshittingur
Heimskvenna
Eftir viðburðarríkan desember fögnum við nýju
ári og kveðjum jólin með hefðbundnum hætti
þann 6. janúar. Þrumandi þrettándagleði verður
haldin með blysför frá Myllubakkaskóla að
hátíðarsvæði við Hafnargötu 12. Þar tekur við
dagskrá undir stjórn Grýlu og þrettándabrenna
þar sem hægt verður að ylja sér með heitt kakó.
Púkar og allskyns kynjaverur verða á sveimi.
Að þrettándagleði lokinni tekur rútínan við og
fastir viðburðir verða á sínum stað að nýju. Þar ber
helst að nefna vinnustofu Krakkaklúbbs Listasafns
Reykjanesbæjar sem verður í lok janúar ásamt
gjörningum. Einnig eru fastir liðir í Bókasafninu og
má þar nefna foreldramorgna, heimskonuhitting,
notalega sögustund og leshring. Njótum
hversdagsleikans í janúar með gleði í hjarta.
Foreldramorgnar eru í Bókasafni
Reykjanesbæjar alla fimmtudags-
morgna frá klukkan 11.00- 12.00.
Notalegar stundir foreldra og ungbarna
í hverri viku. Við hittumst í barnadeildinni
á efri hæð safnsins.
BÓKASAFNIÐ Í JANÚAR
Foreldramorgnar
Notalegt spjall
Laugardaginn 28. janúar klukkan
11.30 verður Notaleg sögustund í
Bókasafni Reykjanesbæjar. Halla
Karen les upp úr bókinni um Rauðhettu
og syngur nokkur lög með. Aðgangur
ókeypis og öll hjartanlega velkomin!
BÓKASAFNIÐ 28. JANÚAR
Notaleg sögustund
með Höllu Karen
Gjörningar þeirra Vena Naskrecka og
Michael Richardt munu standa yfir allt
sýningartímabil You Are Here / Jestes
tutaj / Du er her / Þú ert hér.
LISTASAFNIÐ Í JANÚAR
Gjörningar í
Listasafninu
vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM // 13