Víkurfréttir - 04.01.2023, Síða 15
Heimsmeistari í backhold
Njarðvíkingurinn Heiðrún Fjóla Pálsdóttir
keppti um heimsmeistaratitilinn í opnum
flokki kvenna í backhold. Heiðrún gerði sér
lítið fyrir og vann flokkinn og er því heims-
meistari kvenna 2022.
Heiðrún byrjaði að æfa júdó sem barn með
pabba sínum í Grindavík og hefur æft með
glímudeild Njarðvíkur síðustu ár. Á myndinni,
sem er af af Facebook-síðu Heiðrúnar, má sjá
hana kyssa heimsmeistarabikarinn.
Heimsmeistarinn Elsa Pálsdóttir á verðlaunapalli.
Mynd af Facebook-síðu Massa
Varði heimsmeistaratitilinn
Kraftlyftingakonan Elsa Pálsdóttir varði
heimsmeistaratitil sinn á heimsmeistaramóti
öldunga sem fram fór í St. Johns í Kanada.
Elsa varð heimsmeistari í -76 kg. flokki M3
með seríuna 132,5-65-160 = 357,5. Fékk gull í
hnébeygju, réttstöðu og samanlögðu og silfur
í bekkpressu. Elsa var með persónulega bæt-
ingu og bætingu á Íslandsmeti í bekkpressu í
flokkum M3 og M2.
Þá gerði hún sér lítið fyrir og varði titilinn
á Evrópumótinu í klassískum kraftlyftingum
sem fram fór í Vilníus í Lettlandi, þar sem hún
var stigahæst í M3 þvert á þyngdarflokka og
vann til gullverðlauna í öllum þremur grein-
unum
Team DansKompaní vann til fjölda verð-
launa á heimsmeistaramótinu í dansi. At-
riðið Yfir Vestfirðina vann heimsmeist-
aratitil í flokknum Children Small Group
Song & Dance. Dansarar í atriðinu voru þær
Aðalbjörg Ósk, Andrea Ísold, Bryndís Björk,
Emma Rún, Freyja Marý, Heiðrún Lind, Katla
Dröfn, Rebekka Dagbjört, Sonja Rós og Val-
gerður Pálína.
Helga Ásta Ólafsdóttir, eigandi Dans-
Kompaní, segir árangur skólans í keppninni
hafa farið fram úr fram úr vonum. „Í úrslita-
keppninni unnum við þennan heimsmeistara-
titil, sem er algjörlega sturlaður árangur, en það
má líka nefna að níu af atriðum skólans voru
í topp tíu. Við lentum með eitt atriði í tíunda
sæti, eitt í áttunda, eitt í fimmta, þrjú í fjórða
sæti og svo var eitt atriði sem fékk bronsverð-
laun, eitt silfur og svo gullverðlauna atriðið.
Allir þrjátíu og átta dansararnir voru í einu eða
fleiri atriðum af þessum níu atriðum. Þannig
að allir keppendur skólans voru í topp tíu,“
segir Helga Ásta.
Team
DansKompaní
á heimsmeistaramótinu
Stórkostlegur
árangur
Atriðið Pólar Express vann einnig til silfurverðlauna
í flokknum Mini Small Group Song & Dance. Þær
Ástrós Tekla, Elísabet, Halla Björk, Heiðdís, Helena
Rós, Hugrún, Hildigunnur, Pálína Hrönn, Valgerður
Ósk og Viktoría Sól voru dansarar í því atriði.
Valur Axel og Jórunn með bronsverðlaunin
sín. Myndir af Facebook-síðu DansKompaní
Hefur sett 101 Íslandsmet
Katla Ketilsdóttir setti fjórtán Íslandsmet
á Evrópumótinu í ólympískum lyftingum í
Tírana í Albaníu. Katla keppti í -64 kg flokki
kvenna og lenti hún í ellefta sæti. Þyngsta lyfta
Kötlu í snörun var 88 kg en hún lyfti þyngst
106 kg í jafnhendingu og fékk hún allar sínar
lyftur gildar. Þess má geta að Katla hefur sett
101 Íslandsmet síðan hún byrjaði í íþróttinni.
Katla Ketilsdóttir hefur
sett 101 Íslandsmet í
ólympískum lyftingum.
Mynd af Instagram-síðu Kötlu
Matthías Örn og Peter „Snakebite“
Wright takast í hendur eftir leikinn.
Mynd af Facebook-síðu Matthíasar
Vonaði bara að ég myndi
ekki gera mig að fífli
– sagði Matthías Örn Friðriksson, þrefaldur
Íslandsmeistari í pílukasti, eftir að hafa mætt
ríkjandi heimsmeistara, Peter „Snakebite“
Wright, á Nordic Darts Masters.
Matthías mætti ofjarli sínum í viðureigninni
gegn heimsmeistaranum en auk þess að hitta
sjálfur illa þá sýndi Peter Wright enga miskunn
og gekk á lagið. Hann var með hæsta meðaltal
keppenda þetta kvöld og vann leikinn 6:0.
SKÓLAFÉLAGSRÁÐGJAFI VIÐ GRUNNSKÓLA SUÐURNESJABÆJAR OG VOGA
Fjölskyldusvið Suðurnesjabæjar óskar eftir að ráða skólafélagsráðgjafa í fullt starf við grunnskóla Suðurnesjabæjar og
sveitarfélagsins Voga. Grunnskólar sveitarfélaganna eru þrír, Gerðaskóli, Sandgerðisskóli og Stóru-Vogaskóli. Um er
að ræða nýja stöðu vegna innleiðingar laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna. Viðkomandi þarf að hafa
menntun og starfsréttindi félagsráðgjafa ásamt þekkingu á úrræðum bæði ríkis og sveitarfélaga.
Viðkomandi verður starfsmaður Suðurnesjabæjar sem er næst stærsta sveitarfélagið á Suðurnesjum með um 3.900
íbúa og 280 starfsmenn.
Helstu verkefni og ábyrgð
■ Nemendaráðgjöf m.a. vegna félaglegs, námslegs
og/eða tilfinningalegs vanda
■ Foreldraráðgjöf vegna nemenda.
■ Ráðgjöf og handleiðsla við starfsmenn skóla
vegna nemenda.
■ Samþætt þjónstua í þágu farsældar barna,
tengiliður skóla.
■ Sjálfstyrkinganámskeið fyrir minni og stærri
hópa.
■ Forvarnarvinna í samráði við skólastjóra og
þátttaka í mótun forvarnaráætlana.
■ Samvinna við aðila innan skóla og utan sem
tengdir eru málefnum einstakra nemenda og/eða
nemendahópa.
■ Þátttaka í mótun og þróun úrræða fyrir
nemendur.
■ Þáttaka í viðbragðsteymi skólanna sem virkjað er
þegar alvarleg mál koma upp.
■ Fundarseta í nemendaverndarráðum skólanna.
Menntunar- og hæfniskröfur
■ Háskólapróf í félagsráðgjöf og starfsréttindi
félagsráðgjafa á Íslandi.
■ Þekking og reynsla af viðtalstækni er æskileg og
reynsla af því að ræða við börn er skilyrði.
■ Þekking og vinnsla með greiningartæki er kostur
(s.s. Estermat)
■ Geta til að nýta viðurkennda vísindalega
þekkingu við úrlausn mála.
■ Áhugi á að vinna að velferð barna og ungmenna.
■ Krafa er um lipurð í samskiptum, jákvæðni og
sveigjanleika.
■ Hæfni til að tjá sig í ræðu og koma frá sér
vönduðum skriflegum texta.
■ Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæði í
vinnubrögðum.
■ Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera
með gott orðspor, að framkoma og athafnir á
vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð og gild ökuréttindi
Nánari upplýsingar um starfið veita Bryndís Guðmundsdóttir, deildarstjóri fræðsluþjónustu, bryndis@sudurnesjabaer.is
og Guðrún Björg Sigurðardóttir, sviðsstjóri fjölskyldusviðs, netfang gudrun@sudurnesjabaer.is eða í síma 425-3000.
VILT ÞÚ MÓTA FRAMTÍÐINA MEÐ OKKUR?
Umsóknarfrestur er til
og með 20. janúar 2023.
Launakjör eru sam-
kvæmt kjarasamningi
Sambands íslenskra
sveitarfélaga við Fé-
lagsráðgjafafélags
Íslands.
Áhugasamir ein-
staklingar, án tillits til
kyns, eru hvattir til að
sækja um.
Umsókn skal fylgja
starfsferilskrá og
kynningarbréf þar
sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starf
skólafélagsráðgjafa.
Umsóknum skal skilað á
rafrænu formi á Alfreð.
vÍkurFrÉttir á SuðurnESjuM // 15