Víkurfréttir - 15.02.2023, Blaðsíða 13

Víkurfréttir - 15.02.2023, Blaðsíða 13
BÍLSTJÓRI REYJANESBÆR-REYKJAVÍK Vegna aukinna verkefna getum við bætt við okkur bílstjóra. Fjölskylduvænn vinnutími, frá kl. 7:00 til 15:00 alla virka daga. Starfið felst í útkeyrslu á skólamáltíðum frá Reykjanesbæ til Reykjavíkur. Starfið fellst einnig í vöruflutningum, frá- gangi í lok dags og öðrum tilfallandi verkefnum á Suður- nesjum og á höfuðborgarsvæðinu. Hæfniskröfur: • Reynsla sem nýtist í starfi • Ökuréttindi C • Íslenskukunnátta er skilyrði • Jákvæðni og snyrtimennska skilyrði • Frumkvæði er mikilvægt • Sveigjanleiki er mikilvægur Til greina kemur að ráða inn aðila sem ekki er með meiraprófið og kosta viðkomandi í meiraprófið ef hann fellur inn í Skólamatar-fjölskylduna. Skólamatur óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður: SENDILL Við óskum eftir að ráða sendil til starfa. Fjölskylduvænn vinnutími, frá kl. 7:00 til 15:00 alla virka daga. Starfið felst í að keyra starfsfólk frá Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæðið og tilbaka í lok vinnudags Starfið felst einnig í útkeyrslu á vörum og að ferja mat á milli staða. Hæfniskröfur: • Reynsla sem nýtist í starfi • Meiraprófið eða gamlaprófið kostur. • Íslenskukunnátta er skilyrði • Jákvæðni og snyrtimennska skilyrði • Frumkvæði er mikilvægt • Sveigjanleiki er mikilvægur Umsækjendur eru beðnir að skila inn ferilskrá með upp- lýsingum um reynslu og fyrri störf. Óskað er eftir að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Fyrirspurnir um starfið og umsóknir berist í gegnum ráðingakerfi Alfreðs. Skólamatur ehf. er fjölskylduvænt fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu og framreiðslu á máltíðum fyrir mikilvægasta fólkið. Ný gufu- og eimböð á útivistar- svæðinu við Bláa lónið, ásamt tveimur misháum fossum, er meðal þess sem sótt er um bygg- ingarleyfi fyrir til skipulagsyfir- valda í Grindavík. Eldvörp ehf. hafa sótt um byggingarleyfi fyrir fyrri áfanga að endurbótum baðaðstöðu Bláa Lónsins. Í fyrsta áfanga eru ný gufu- og eimböð á útivistarsvæðinu, ásamt tveimur misháum fossum. Í seinni áfanga, sem sótt verður um byggingarleyfi fyrir síðar, er um að ræða stækkun og endurbætur baðálmu við Bláa Lónið. Skipulagsnefnd Grindavíkur staðfestir að byggingaráformin eru í samræmi við skipulag. Skipulagsnefnd Grindavíkur hafnar því að fjarskiptamastur eða fjar- skiptaloftnet verði sett á Grunn- skóla Grindavíkur við Ásabraut 2 í Grindavík. Skipulagsnefnd leggur til við Íslandsturna, sem sendi nefndinni fyrirspurn um stað- setningu á fjarskiptaloftneti, að þeir skoði að setja upp loftnet við hafnarsvæði. „Lagt er til að fjarskiptafyrirtækin komi sér saman um staðsetningu á hafnarsvæðinu,“ segir í fundargerð nefndarinnar og sviðsstjóra falið að vinna málið áfram með það að mark- miði að finna stað sem aðilar geta nýtt sameiginlega. Skipulagsnefnd hafnaði á sama fundi umsókn um byggingarleyfi frá Íslandsturnum við Víkurbraut 25, þ.e. að fjarskiptamastur verði sett við húsið. „Lagt er til að fjarskipta- fyrirtækin komi sér saman um stað- setningu á hafnarsvæðinu,“ segir í afgreiðslu málsins. Viðgerð er hafin á gervigrasinu í Hópinu í Grindavík í samræmi við úttekt fagaðila en bregðast þurfti strax við skemmdum eins og áætlað var í fjárhagsáætlun. Meirihluti B, D og U-lista í bæjar- ráði Grindavíkur bókaði m.a. um málið á síðasta fundi. Þar segir m.a.: „Að viðgerð lokinni, ef mat á ástandi gervigrassins er verra en áætlað var, verður aðilum falið að undirbúa útboð og kanna afhendingartíma á nýju gervigrasi.“ Bókun af fundi frístunda- og menningarnefndar var. lögð fyrir á fundi bæjarráðs. Í bókun fulltrúa M-listar við þá bókun segir að full- trúi M-lista leggur til að það verði farið í það strax að skipta út gervi- grasinu í Hópinu. Meirihluti B, D og U tekur undir bókun frístunda- og menningar- nefndar að skoða þann möguleika að skipta gervigrasinu í Hópinu út fyrr en áætlað var. „Viðgerð er hafin á gervigrasinu í samræmi við úttekt fagaðila en bregðast þurfti strax við skemmdum eins og áætlað var í fjár- hagsáætlun. Að viðgerð lokinni, ef mat á ástandi gervigrassins er verra en áætlað var, verður aðilum falið að undirbúa útboð og kanna afhending- artíma á nýju gervigrasi. Ákvörðun verður tekin um framhaldið í vinnu við fjárhagsáætlun í haust,“ segir í bókun meirihlutans. Heilbrigðisráðherra tekur vel í sam- eiginlegt erindi Grindavíkurbæjar og Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja um að heilsugæsla í Grindavík fái nýja aðstöðu á efri hæð félagsað- stöðu eldri borgara. Næsta skref er að fá svar frá fjármála- og efnahags- ráðuneytinu. Bæjarráð Grindavíkur lýsir ánægju sinni með velvilja ráðherra í garð verkefnisins og felur bæjar- stjóra að vinna málið áfram. Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða gamalla barna sem fá ekki daggæslu fyrir börn sín voru til um- fjöllunar á síðasta fundi bæjarráðs Grindavíkur. Meirihluti bæjarráðs leggur upp með að heimgreiðsl- urnar verði ekki skilyrtar, heldur val foreldra frá 12 mánaða aldri, að loknu fæðingarorlofi, þangað til barnið fer í daggæslu eða á leik- skóla. Bæjarráð vísar málinu til umfjöll- unar í félagsmálanefnd og fræðslu- nefnd Grindavíkur. Grindavíkurbær fagnar 50 ára kaupstaðarafmæli 10. apríl 2024 og er þegar farið að leggja grunn að hátíðarhöldum vegna þessara tímamóta. Frístunda- og menningarnefnd Grindavíkur leggur til við bæjarráð að skipuð verði afmælisnefnd sem í eiga sæti fimm fulltrúar. Fulltrú- arnir skulu endurspegla fjölbreytni samfélagsins í Grindavík. Sviðs- stjóra frístunda- og menningarsviðs hefur verið falið að vinna erindis- bréf fyrir nefndina. 50 ára kaupstaðar- afmæli Grindavíkur- bæjar undirbúið Heimgreiðslur til foreldra 12 mánaða barna verði val Ráðherra tók vel í erindi um heilsu- gæslu í Grindavík Fossar og ný gufu- og eimböð við Bláa lónið Vilja ekki loftnet á grunnskólann Viðgerð hafin í Hópinu GRINDAVÍK Sigurbjörn Daði Dagbjartsson sigurbjorn@vf.is N Ý S P R A U T U N O G B Í L A K J A R N I N N óska eftir að ráða í eftirtalda stöðu: B Í L A S A L I Bílakjarninn óskar að ráða bílasala í starfsstöð fyrirtækisins að Njarðarbraut 13 í Reykjanesbæ. Umsóknir sendist á netfang: sverrir@nysprautun.is Nýsprautun ehf er bíla-, réttinga- og sprautuverkstæði, Bílakjarninn ehf er bílasala en félögin eru samrekin bílaþjónustufyrirtæki í Reykjanesbæ, m.a. samstarfsaðilar Heklu hf. vÍkurfrÉttir á SuðurNeSJuM // 13

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.