Víkurfréttir - 15.02.2023, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 15.02.2023, Blaðsíða 16
Mundi Strákarnir á Sturlu GK geta núna fengið sjóveikistöflur fyrir næsta túr afgreiddar beint í bílinn ... Apóteki Suðurnesja verður lokað kl 19 á miðvikudagskvöld og mun síðan opna á ný undir nafn Lyfja- vals (Apótek Suðurnesja) á Aðal- atorgi föstudaginn 17. febrúar kl. 9. Um er að ræða bílaapótek með fjórum bílalúgum sem verða opnar alla daga frá 9 til 21. Opið verður inn í apótekið frá 9 til 18 alla daga. ,,Þetta er mjög spennandi og við hlökkum mikið til,“ segir Tanja Va- selinovic, sem verið hefur lyfsölu- leyfishafi í Apóteki Suðurnesja und- anfarin ellefu ár. Hún segir gaman að geta boðið upp á lengri opnunar- tíma og nýtt og glæsilegt apótek á þessum mjög svo spennandi stað. ,,Við munum kappkosta að veita sem allra besta þjónustu hér eftir sem hingað til. Við erum með framúrskarandi starfsfólk á ólíkum aldri sem vill þjónusta gamla og nýja viskiptavini sem allra best. Bílalúg- urnar eru þægilegar fyrir alla, ekki síst þá sem eiga erfitt með gang, eru með börn í bílnum eða fyrir þá sem vilja bara sitja í hlýjunni meðan við afgreiðum lyf eða aðrar vörur,“ segir Tanja. Tanja segir Aðaltorg vera mjög spennandi kost fyrir apótekið, ekki síst í ljósi þess mikla fjölda sem fer um þetta svæði á hverjum degi, svo ekki sé talað um að heilsugæsla verði opnuð nánast á bílaplaninu innan einhverra mánaða. ,,Það verður vissulega skrítið að flytja af Hringbrautinni en vonandi fylgja gömlu góðu viðskiptavinirnir okkur bara á nýjan stað, auk þess sem nýir munu bætast í hópinn,“ segir Tanja og minnir á heimasíðuna, lyfjaval.is, þar sem hægt er að panta lyfin og sækja þau svo í lúguna. Bílaapótekið opnað við Aðaltorg á föstudaginn Húsnæði Lyfjavals við Aðaltorg í Reykjanesbæ. tix.is ATH! Breyttur opnunartími Nú er opið í hádeginu Virka daga: 11:00 – 18:00 Laugardaga: 11:00 – 14:00 Í tilefni konudagsins er 20% afsláttur af allri gjafavöru dag- ana 15.–19. febrúar Einnig á Bustod.is

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.