Víkurfréttir - 15.02.2023, Page 16
Mundi
Strákarnir á Sturlu GK geta núna
fengið sjóveikistöflur fyrir næsta
túr afgreiddar beint í bílinn ...
Apóteki Suðurnesja verður lokað
kl 19 á miðvikudagskvöld og mun
síðan opna á ný undir nafn Lyfja-
vals (Apótek Suðurnesja) á Aðal-
atorgi föstudaginn 17. febrúar kl.
9. Um er að ræða bílaapótek með
fjórum bílalúgum sem verða opnar
alla daga frá 9 til 21. Opið verður
inn í apótekið frá 9 til 18 alla daga.
,,Þetta er mjög spennandi og við
hlökkum mikið til,“ segir Tanja Va-
selinovic, sem verið hefur lyfsölu-
leyfishafi í Apóteki Suðurnesja und-
anfarin ellefu ár. Hún segir gaman
að geta boðið upp á lengri opnunar-
tíma og nýtt og glæsilegt apótek á
þessum mjög svo spennandi stað.
,,Við munum kappkosta að veita
sem allra besta þjónustu hér eftir
sem hingað til. Við erum með
framúrskarandi starfsfólk á ólíkum
aldri sem vill þjónusta gamla og nýja
viskiptavini sem allra best. Bílalúg-
urnar eru þægilegar fyrir alla, ekki
síst þá sem eiga erfitt með gang, eru
með börn í bílnum eða fyrir þá sem
vilja bara sitja í hlýjunni meðan við
afgreiðum lyf eða aðrar vörur,“ segir
Tanja.
Tanja segir Aðaltorg vera mjög
spennandi kost fyrir apótekið, ekki
síst í ljósi þess mikla fjölda sem fer
um þetta svæði á hverjum degi, svo
ekki sé talað um að heilsugæsla verði
opnuð nánast á bílaplaninu innan
einhverra mánaða.
,,Það verður vissulega skrítið að
flytja af Hringbrautinni en vonandi
fylgja gömlu góðu viðskiptavinirnir
okkur bara á nýjan stað, auk þess
sem nýir munu bætast í hópinn,“
segir Tanja og minnir á heimasíðuna,
lyfjaval.is, þar sem hægt er að panta
lyfin og sækja þau svo í lúguna.
Bílaapótekið
opnað við
Aðaltorg á
föstudaginn
Húsnæði Lyfjavals við Aðaltorg í Reykjanesbæ.
tix.is
ATH! Breyttur opnunartími
Nú er opið í hádeginu
Virka daga: 11:00 – 18:00
Laugardaga: 11:00 – 14:00
Í tilefni konudagsins
er 20% afsláttur af
allri gjafavöru dag-
ana 15.–19. febrúar
Einnig á Bustod.is