Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Page 10
10 | | 21. september 2022
Eyjablikk ehf. var stofnað í apríl
1997 af Stefáni Þ. Lúðvíkssyni
og Ísloft blikk- og stálsmiðju
þegar Stefán ákvað að flytja til
Vestmannaeyja, og var markmiðið
með stofnununni að hann hefði
eitthvað að gera eftir að hafa flust
til Eyjanna.
Árið 2000 keypti Eyjablikk sitt
eigið húsnæði að Flötum 27 sem
varð fljótlega of mikið. „Nú hefur
fyrirtækið yfir að ráða fyrsta
flokks 1000 fm húsnæði hvað
varðar aðbúnað fyrir starfsmenn
sem og rúmgóða og bjarta smiðju
með góðum tækjakosti og erum
við tilbúnir í öll þau verk sem við-
skiptavinir okkar fela okkur með
bros á vör,“ sagði Stefán.
Í dag er starfsfólk Eyjablikks
ehf. 20 talsins og eru unnin ýmis
verkefni bæði fyrir sjávarútveginn
og fólk í Vestmannaeyjum og á
fastalandinu.
Starfsmenn Eyjablikks,
Árni, Daði, Þórir og Victor
Eyjablikk þjónar fyrirtækjum
og einstaklingum
Leo Seafood ehf. er fiskvinnslu-
fyrirtæki í Vestmannaeyjum sem
hefur vaxið og dafnað með hverju
árinu. Var stofnað 15. október
2001 og hét þá Godthaab í Nöf
ehf. Hóf starfsemi í gömlu húsi
og fyrsta verkið var að koma því í
viðunandi horf. Það kostaði mörg
handtökin en tókst og vinnsla
hófst þann 1. febrúar 2002. Í
fyrstu voru starfsmenn 20. Tækja-
búnaður var uppgerð flökunarvél
og flæðilína sem keypt var notuð,
tveir frystiskápar og tveir frysti-
gámar þar sem fullunnar afurðir
voru geymdar.
Næstu árin jukust umsvifin jafnt
og þétt og starfsfólki fjölgaði,
um leið var aukið við húsnæðið.
„Byggður var frystiklefi og smá
saman fjölgaði vélum og tækjum í
takt við aukin umsvif.
Keypt var ný 24 stæða flæðilína
frá Marel og frystibúnaður var
endurnýjaður.
Reist var 650 fm viðbygging
norðan við Nöfina og þar settur
upp tækjabúnaður fyrir uppsjáv-
arvinnslu þar sem unninn var
makríll um nokkurt skeið,“ segir
Bjarni Rúnar Einarsson fram-
kvæmdastjóri Leo Seafood eins
og fyrirtækið heitir í dag.
Mikil uppbygging
Nafninu var breytt í júní 2018 til
að ná frekar til erlendra viðskipta-
vina enda mun einfaldara nafn.
„Seinni hluta árs 2018 hófust
framkvæmdir við uppsetningu á
nýjum lausfrysti frá Dantech og
Flexicut flakaskurðarvél frá Marel
sem hefur aukið samkeppn-
ishæfni og fjölbreytni framleiðslu
fyrirtækisins til muna,“ segir
Bjarni Rúnar og áfram var hús-
næðið stækkað.
Í nóvember 2018 voru fest kaup
á 1800 fm húsnæði á tveimur
hæðum að Hlíðarvegi 3 sem var í
eigu VSV. Þar er salur fyrir pökk-
un á lausfrystum afurðum ásamt
umbúðageymslum. Árið 2020 var
farið í miklar framkvæmdir og
reist 290 fm viðbygging á tveimur
hæðum. Á efri hæð í nýrri við-
byggingu eru bjartar og skemmti-
legar skrifstofur og mötuneyti
sem uppfyllir allar nútímakröfur
og stærðarinnar svalir. „Á neðri
hæðinni var vélasalur stækkaður
ásamt móttöku. Á sama tíma var
smíðað nýtt þak á allt húsið ásamt
því að húsnæðið var klætt að utan
þannig að í dag er fátt sem minnir
á gömlu Nöfina,“ segir Bjarni
Rúnar.
Fjölbreytt framleiðsla
„Við kaupum hráefni bæði í
beinum viðskiptum við útgerðir
og á fiskmörkuðum. Fyrirtækið
vinnur aðallega þorsk, ufsa og
ýsu. Þá höfum við verið að prófa
okkur áfram í vinnslu á karfa.
Framleiðslan eru fersk flök sem
flutt eru sjóleiðis og með flugi
í kældum umbúðum á markað í
Evrópu. Frystar afurðir eru flök
og flakahlutar á markað í Evrópu
og Bandaríkjunum og saltaðar
afurðir fara á Spánarmarkað.
Bein og hausar fara til vinnslu
hjá Löngu ehf. í Eyjum þannig að
allur fiskur sem við tökum inn er
fullnýttur.“
Starfsmenn Leo Seafood eru um
100 í dag og er unnið úr 5000 til
7000 tonnum af hráefni á ári. „Í
dag teljum við okkur vera með
fiskvinnslufyrirtæki í fremstu röð
hér á landi. Auðvitað eru sveiflur í
sjávarútvegi, bæði í öflun hráefnis
og sveiflur á mörkuðum erlendis.
Við byggjum á langri reynslu
og hæfu starfsfólki þannig að
ég sé ekki ástæðu til annars en
bjartsýni á framhaldið. Íslenskur
sjávarútvegur hefur ótrúlega að-
lögunarhæfni og menn eru ekkert
að fara á taugum þó stundum sé
vindurinn í fangið,“ sagði Bjarni
Rúnar að lokum.
Núverandi hluthafahópur sam-
anstendur af Sigurjóni Óskars-
syni, Daða Pálssyni, Gylfa Sigur-
jónssyni, Viðari Sigurjónssyni og
Þóru Hrönn Sigurjónsdóttur.
Leo Seafood Fyrirtæki í framlínu í vinnslu á fiski:
Allur fiskur fullnýttur
Þrír ættliðir saman Ester Ólafsdóttir,
dóttir hennar Elva Björk Einarsdóttir
og barnabarn Esterar, Hekla Sól
Jóhannsdóttir.
Fjárfest fyrir 1,6 milljarða. Frá árinu 2009 þangað til á síðasta ári eru fjár-
festinar Leo Seafodd samtals 1.637.198 milljónir króna. Og hefur fyrirtækið
tekið stór stökk á öllum sviðum fram á við á þessum tíma.