Fréttir - Eyjafréttir - 21.09.2022, Síða 31
21. september 2022 | | 31
s. 481 3328 / 849 5777
/Alþrif Hreingerningarþjónusta
Óslar Liz og Birgitta Ósk Valdimarsdóttir.
Fjárfestingar VSV frá árinu 2010
• Fjárfestingar á tímabilinu 2010-2021 hafa verið um 22 millj-
arðar króna, mest af því í varanlegum rekstrarfjármunum, en
einnig í fyrirtækjum í greininni.
• Á árunum 2015-2018 fjárfesti Vinnslustöðin fyrir 8,5 milljarði
í uppbyggingu á uppsjávarvinnslu félagsins sem jók skilvirkni
og áreiðanleika vinnslunnar auk þess að opna leiðir inn á nýja
markaði fyrir afurðir félagsins. Þær helstu voru:
- Nýtt uppsjávarvinnsluhús
- Frystigeymsla
- Mjölgeymsluhús
- Hráefnistankar
- Endurnýjun tveggja uppsjávarveiðiskipa
• Á árinu 2017 fékk Vinnslustöðin skipið Breka VE heim, sem
var fyrsta nýsmíði félagsins frá stofnun þess árið 1946. Kost-
aði skipið heim komið um 1,5 milljarð króna.
• Auk þessara fjárfestinga í rekstrarfjármunum hefur félagið á
þessum tíma keypt og sameinast útgerðarfélögunum Glófaxa
ehf., Stíganda ehf. og keypt rest hlutafjár í Hugin ehf., sem
Vinnslustöðin átti minnihluta í áður.
• Framleiðslufyrirtækið Marhólmar ehf. var sett á laggirnar á
árinu 2012 sem framleiðir masago úr loðnuhrognum ásamt
fleiru.
• Saltfiskframleiðslufyrirtæki í Portúgal var keypt á árinu 2019.
Með þeim kaupum hefur framleiðsla á saltfiski í Vestmanna-
eyjum stóraukist og kom þetta eignarhald sér vel á erfiðum
tíma Covid-19.
• Vinnslustöðin fjárfesti í ýsuframleiðslufyrirtækinu Hólmaskeri
hf. í Hafnarfirði síðla árs 2021 og keypti nú síðast í sumar upp-
sjávarveiðiskipið Gullberg VE.