FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 2

FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 2
ÚTG: FÉLAG LÖGGILTRA ENDURSKOÐENDA © Aðsendar greinar í blaðinu eru á ábyrgð höfunda en að öðru leyti er útgáfa blaðsins á ábyrgð ritnefndar FLE. FLE blaðið má ekki afrita með neinum hætti, að hluta til eða í heild, þar með talið tölvutækt form, án skriflegs leyfis höfundarrétthafa. VINNSLA BLAÐSINS RITNEFND FLE: Ritnefnd FLE: Herbert Baldursson, formaður, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Kjartan Arnfinnsson og Birta Mogensen Prentun: Litróf Umsjón: Hrafnhildur Hreinsdóttir Janúar 2022, 44. árgangur 1. tölublað SKRIFSTOFA FLE, HELSTU UPPLÝSINGAR Skrifstofa FLE, Suðurlandsbraut 6, 108 Reykjavík, er opin virka daga kl. 9-15 Sími: 568 8118, Tölvupóstfang: fle@fle.is, Vefsíða FLE: www.fle.is Sigurður B. Arnþórsson, framkvæmdastjóri sigurdur@fle.is Hrafnhildur Hreinsdóttir, skrifstofustjóri fle@fle.is Enn á ný kemur út áhugavert FLE blað með greinum um endurskoðun, skattamál og reikningsskil. Við fjöllum um arðgreiðslur, spyrjum hvað viðskiptalífið væri án okkar endurskoðenda, rafmyntir og tækni tengdri þeim, nýja almannaheillaskrá og sígilt umræðuefni, sem er áhættumat. Síðast en ekki síst þá fjöllum við um hvernig lofts- lagsbreytingar eru að komast á verkefnaskrána hjá okkur. Loftlagsbreytingar verða sameiginlegt úrlausnarefni mannkyns næstu áratugi og hlaut því að koma að því að málið kæmi inn á borð okkar endurskoðenda, enda fátt mannlegt okkur óviðkomandi. Loftlagsbreytingar snerta nú þegar störf endurskoðenda, til dæmis í skýrslum með ársreikningnum, sérstökum grænum innlánum og grænum útlánum banka. Verkefni okkar vegna þessa vágests munu án efa aukast á næstu árum enda munu veðurfarsbreytingar hafa áhrif á rekstur ýmissa fyrirtækja og efna- hag þeirra. Og enn geisar veiran nú í byrjun janúar 2022 eins og enginn sé morgundagurinn og við erum í einangrun, sótt- kví, heimavinnandi eða í 10-20 manna hólfum á vinnustaðnum eftir því hvernig sóttvarnaraðgerðir standa hverju sinni. En breytingin sem hefur orðið frá því fyrir ári síðan er að við erum orðin svo vön þessum takmörkunum að við hristum þær af okkur, notum grímur og fjarfundi og vonum að veiran verði horfin eftir mánuð með örvunar- skammtinum góða. Hver veit? Það er allt í lagi að vona. En líkt og loftlagsbreytingar er COVID-19 vandamál alls mannkyns og verður ekki leyst nema með sameiginlegu átaki. Janúar 2022 Herbert Baldursson, Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, Kjartan Arnfinnsson og Birta Mogensen FYLGT ÚR HLAÐI

x

FLE blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: FLE blaðið
https://timarit.is/publication/1259

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.