FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 24
24 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Eftir óvenjuleg nánast tvö starfsár félagsins horfa nú hlutirn-
ir vonandi til betri vegar þannig að félagsmenn geti farið að
hittast í raunheimum. Allt erlent samstarf fór fram í gegnum
Teams, taka þurfti ákvarðanir um fyrirkomulag viðburða stund-
um með litlum fyrirvara og nefndastarf leið að vissu leyti fyrir
ástandið þó að Teams hafi verið notað í mörgum tilfellum. Heilt
yfir verð ég þó að segja það að starfsemin gekk vel í öllum
megin atriðum og ber þar ekki síst að þakka stjórn og nefndum
félagsins og síðast en ekki síst ykkur félagsmenn góðir.
VIÐBURÐIR
Hér verður farið yfir helstu atriði hvað varðar þá viðburði sem
félagið stóð fyrir á liðnu starfsári sem litaðist að miklu leyti af
Covid-19 ástandinu bæði hvað varðar form og framboð.
Félagið stóð fyrir samtals 16 viðburðum á starfsárinu sem
gáfu 45 einingar í endurmenntunar. Til samanburðar þá voru
14 viðburðir árið á undan sem gáfu 37 einingar. Heildarmæting
á liðnu starfsári var um 1.630 samanborið við rúmlega 900 á
starfsárinu á undan. Það má jafnframt geta þess að um 90%
af heildarmætingu liðins starfsárs var rafræn. Heildarmæting á
árunum fyrir Covid-19 hefur verið að meðaltali um 1.100.
Þetta er athyglisverð niðurstaða sem sýnir að áhrif Covid-19
voru meiri á síðasta starfsári heldur en á því ári sem við kveðj-
um núna. Megin ástæðan er sú að félagið tók þá ákvörðun í
byrjun þessa starfsárs að bjóða uppá streymi sem og upptök-
ur frá flestum atburðum félagsins. Þar var rennt blint í sjóinn
hvað varðar bæði kostnað, þátttöku félagsmanna sem og ýmis
tæknileg atriði sem varða upptökur og innheimtu. Það kom
aftur á móti í ljós að þátttaka varð mun meiri en björtustu vonir
stóðu til og einnig náði félagið hagstæðari samningum og fyr-
irkomulagi hvað varðar kostnað eftir því sem leið á starfsárið.
Hvað varðar þátttöku félagsmanna þá má ætla að þar hafi ýmis
atriði haft áhrif. Stór hluti félagsmanna hefur væntanlega unnið
heiman frá sér og þar af leiðandi í ákveðinni einangrun og því
kærkomið að geta sinnt endurmenntun frá eldhúsborðinu.
Einnig náðum við til fleiri félagsmanna með því að bjóða upp
á streymi og upptökur. Það er því ljóst að félagið mun í fram-
tíðinni bjóða upp á slíka valkosti í þeim tilfellum sem slíkt fyr-
irkomulag hentar og hefur það verið í nánari skoðun. Þar þarf
bæði að hafa í huga hvers konar efni er til umfjöllunar hverju
sinni og einnig formið. Þá er verið að skoða ýmis praktísk atriði
eins og aðgang, kaup á rafrænu efni, skráningu, einingagjöf og
STARFSEMI FLE Á NÝLIÐNU ÁRI
Sigurður B. Arnþórsson er framkvæmdastjóri FLE
Eins og okkur er öllum kunnugt
þá hyllir loksins undir að sérstakur
staðall fyrir lítil og einföld félög,
eða LCE, líti loksins dagsins ljós