FLE blaðið - 01.01.2022, Page 4
4 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
PERSÓNAN HÓLMGRÍMUR
Hverra manna ertu og hvaðan ertu?
Ég er bóndasonur að norðan. Foreldrar mínir Bjarni
Hólmgrímsson og Sigríður Guðmundsdóttir voru bændur og
bjuggu á Svalbarði á Svalbarðsstönd í Eyjafirði.
Hvernig var að alast upp?
Ég er svo heppinn að ég átti í raun alveg yndislega barnæsku.
Ólst upp í stórri og góðri fjölskyldu og í minningunni alla vega
var alltaf gaman. Að mínu mati voru það ákveðin forréttindi að
fá að alast upp á sveitabæ þar sem ýmislegt var nú brallað sem
ég er nú ekki viss um að væri allt leyft í dag.
Í hvaða skólum varstu?
Það var nú ekki kominn leikskóli á Svalbarðsströnd þegar ég var
að alast upp en ég gekk í Grunnskóla Svalbarðsstrandar, var þar
í 1. - 6. bekk en síðan fór ég í Hrafnagilsskóla í 7.-9. bekk. Eftir
grunnskóla fór ég í Menntaskóla Akureyrar og eftir það lá leiðin
suður í háskóla þar sem ég fór í viðskiptafræði í HÍ.
Hvar hefur þú búið?
Fyrstu 20 ár ævinnar bjó ég í sveitinni en flutti svo til
Reykjavíkur þar sem ég bjó fyrst í Vesturbænum og síðan í
Grafarvogi samtals í um 12 ár með um eins árs hléi þar sem ég
bjó í Winnipeg í Kanada þar sem ég var að vinna hjá Deloitte
í skiptiprógrammi. Fyrir um 16 árum fluttum við hjónin svo til
Akureyrar þar sem við höfum búið síðan.
Eiginkona og börn?
Eiginkona mín heitir Guðný Margrét Sigurðardóttir, alltaf köll-
uð Gréta. Hún er hjúkrunarfræðingur og vinnur á Sjúkrahúsinu
á Akureyri. Við eigum fjögur börn, Katrínu sem er 21 árs
og er að læra læknisfræði í HÍ, Kára sem er 18 ára og er í
Menntaskólanum á Akureyri, Bjarna sem er 17 ára og er í
Verkmenntaskólanum á Akureyri og Sigurð sem er 10 ára og er
í Brekkuskóla á Akureyri.
Hvað gerir þú utan vinnunnar?
Heimilið er stórt þannig að lífið utan vinnu snýst mikið um fjöl-
skylduna og heimilisstörf. Þá hef ég alltaf reynt að láta heilsu-
Hólmgrímur og kona hans Guðný Margrét
FLE Á BJARTA FRAMTÍÐ FYRIR SÉR
VIÐTAL VIÐ HÓLMGRÍM BJARNASON NÝJAN FORMANN FLE
Ég tel að það sé mikilvægt að endurskoðendur
á Íslandi eigi sér félag saman sem meðal annars
vinnur að hagsmuna- og framfaramálum á
starfssviði endurskoðenda og er vettvangur
skoðanaskipta um fagleg málefni stéttarinnar