FLE blaðið - 01.01.2022, Blaðsíða 22
22 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
Árið 2021 var gerð breyting á lögum um tekjuskatt varðandi
frádrátt frá tekjum vegna gjafa og framlaga til almannaheilla.
Breytingarnar eru tvenns konar; annars vegar er heimilaður
frádráttur einstaklinga frá tekjum vegna gjafa til góðgerðara-
mála og hins vegar er gerð breyting á heimildum rekstraraðila
til frádráttar frá tekjum vegna framlaga til sömu málaflokka.
Hámarks frádráttur lögaðila hækkar úr 0,75% af tekjum í 1,5%
af rekstrartekjum. Jafnframt hækkar framlag til kolefnisjöfnunar
um sömu prósentutölu. Samhliða þessum breytingum er komið
á sérstakri almannaheillaskrá þar sem tæmandi eru talin þau
félög sem styðja má með framlögum þannig að lækkun á tekju-
skattstofni fáist. Með þessu má segja að umgjörðin utan um
frádráttarbærni slíkra framlaga sé orðin mun skýrari en áður var.
Skilyrði fyrir því að komast á skrá Skattsins um almannaheilla-
félög má segja að séu þrenns konar. Í fyrsta lagi er skilyrði um
félagsformið, í öðru lagi varðandi starfsemi og í þriðja lagi varð-
andi ráðstöfun styrkjanna.
FÉLAGSFORM
Einungis óhagnaðardrifin almenn félög, sjóðir og stofnanir
koma til greina sem almannaheillafélög. Hér koma því ekki til
greina þau félagsform sem almennt eru notuð í atvinnurekstri
(þrátt fyrir að þau teljist óhagnaðardrifin), þ.e. hlutafélög, einka-
hlutafélög, samlagsfélög, samlagshlutafélög, sameignarfélög
og samvinnufélög.
STARFSEMI
Sú starfsemi sem viðkomandi lögaðili þarf hafa með höndum
til að komast á almannaheillaskrá er talin upp í lögunum í 7
liðum en hún er:
1. Mannúðar- og líknarstarfsemi. Dæmi: Meðferðarstofnanir,
mannréttindastarfsemi, sambýli fatlaðra og öldrunarheimili.
2. Æskulýðs- og menningarmálastarfsemi. Dæmi: Starfsemi
íþróttafélaga, bókmennta- og listafélög og starfsemi safna.
3. Starfsemi björgunarsveita, landssamtaka björgunarsveita
og slysavarnadeilda og einstakra félagseininga sem starfa
undir merkjum samtakanna.
4. Vísindaleg rannsóknarstarfsemi. Hér fellur undir viðurkennd
vísindaleg rannsóknarstarfsemi.
5. Starfsemi sjálfstæðra háskólasjóða og annarra mennta-
sjóða. Hér falla undir menntasjóðir sem eru sjálfstæðir
gagnvart hinu opinbera.
6. Neytenda- og forvarnastarfsemi. Dæmi: Samtök sem vinna
að neytendamálum og forvörnum, til að mynda forvörnum
gegn vímuefnum og sjálfsvígum.
7. Starfsemi þjóðkirkjunnar, þjóðkirkjusafnaða og annarra
skráðra trú- og lífsskoðunarfélaga. Hér fellur undir starfsemi
þjóðkirkjunnar og trúfélög samkvæmt lögum um trúfélög og
lífsskoðunarfélög nr. 108/1999.
ALMANNAHEILLAFÉLÖG
Kjartan Arnfinnsson, endurskoðandi hjá Debet og
Ágústa Katrín Guðmundsdóttir, endurskoðandi
hjá Endurskoðun og reikningshaldi
Skilyrði fyrir því að komast
á skrá Skattsins um almanna-
heillafélög má segja að séu
þrenns konar. Í fyrsta lagi
er skilyrði um félagsformið,
í öðru lagi varðandi starfsemi
og í þriðja lagi varðandi
ráðstöfun styrkjanna