FLE blaðið - 01.01.2022, Síða 26
26 FLE BLAÐIÐ JANÚAR 2022
þeirra haft áhrif á störf félagsmanna. Því er eðlilegt að félagið
reyni að hafa áhrif með hagsmuni félagsmanna að leiðarljósi. Á
starfsárinu þótti ekki þörf á að veita neinar umsagnir um þingmál.
Endurskoðunarnefndin vann við að skoða aðra stað-
festingarvinnu endurskoðenda en hluti af aðgerðum ríkis-
valda gegn áhrifum COVID-19 gerði kröfu um staðfestingu
frá endurskoðendum. Skoðað var hvernig endurskoðendur
voru almennt að sinna þeirri vinnu, hvaða staðal og áritun var
beitt, sem og leitað leiða til að samræma vinnubrögð. Eins var
fylgst með því sem gerðist á alþjóða vettvangi varðandi nýjan
LCE staðal og eins ESEF vegna gildistöku gagnsæistilskipun-
ar Evrópusambandsins hér á landi sem snýr að rafrænu skýr-
slusniði ársreiknings og staðfestingu endurskoðanda. Fulltrúi
úr nefndinni tók jafnframt þátt í stýrihóp á vegum ráðuneytisins
um endurskoðun laga um bókhald
Gæðanefnd hefur eingöngu starfað að nafninu til þetta starfsár
vegna yfirfærslu gæðaeftirlits til Endurskoðendaráðs en mun
væntanlega móta og endurmeta starf sitt á komandi starfsári
þegar fyrir liggur niðurstaða ráðsins að afloknu þeirra fyrsta ári
á grundvelli nýrra lagafyrirmæla hvað varðar gæðaeftirlit.
Menntunarnefnd hefur haft lítið fyrir stafni undanfarið vegna
COVID-19 ráðstafana í háskólum landsins, en kom þó að
skipulagi Haustráð-stefnunnar sem tókst þó að halda með
vinnustofufyrirkomulagi í haust.
Reikningsskilanefnd hafði töluverða aðkomu að því að móta
reglu Reikningsskilaráðs nr. 6 um reikningshaldslega með-
ferð leigusamninga í reikningsskilum leigutaka. Nefndin veitti
einnig umsögn um áhersluatriði Ársreikningaskrár við eftirlit
með ársreikningum 2020 fyrir útgáfu þeirra. Þá hefur formaður
nefndarinnar verið í stýrihóp á vegum ráðuneytisins um endur-
skoðun laga um bókhald.
Skattanefnd vann að undirbúningi Skattadags FLE en mun
tækla það verkefni fram á vor að skoða hvað betur má fara
varðandi skatteyðublöð og annað sem snýr að endurskoðend-
um.
Því er ljóst að störf þessara nefnda og framlag þeirra einstak-
linga sem þar leggja sitt af mörkum eru afar mikilvæg fyrir
félagið og þeim því hér með færðar sérstakar þakkir fyrir sam-
starfið á liðnu ári.
FRAMTÍÐARMÁL
Hér verða nefnd tvö mál sem munu væntanlega hafa mikil áhrif
á störf okkar í náinni framtíð. Það er annars vegar nýr staðall
um LCE (less complexed entities) sem nú er í umsagnarferli hjá
IAASB og svo hins vegar sjálfbærniskýrslur út frá tilskipun EU.
Eins og okkur er öllum kunnugt þá hyllir loksins undir að sér-
stakur staðall fyrir lítil og einföld félög, eða LCE, líti loksins
dagsins ljós. Alþjóðlega staðlaráðið IAASB hefur lagt fram slík-
Áhugasamir félagsmenn á ráðstefnu