Feykir - 19.01.2022, Blaðsíða 3
Allir með Feyki!
Það er mikilvægt að halda úti fjölmiðli sem segir fréttir
og fjallar um fólk af Norðurlandi vestra. Það gerir Feykir.
Áskrifendur eru Feyki nauðsynlegir.
Er ekki upplagt að gerast
áskrifandi að góðu blaði
og fréttum af þínu fólki?
Hafðu samband í síma 455 7171
eða sendu póst á feykir@feykir.is BORGARFLÖT 1 | 550 SAUÐÁRKRÓKUR | SÍMI 455 7176 | FEYKIR.IS
Húnaþing vestra
Húsnæðisáætlun samþykkt
Sveitarstjórn Húnaþings vestra
hefur samþykkt Húsnæðisáætlun
Húnaþings vestra en samkvæmt
reglugerð skulu sveitarfélög gera
húsnæðisáætlun til fjögurra ára í
senn og skoða árlega hvort þörf sé á
endurskoðun áætlunarinnar með
tilliti til þróunar og breytinga sem
orðið hafa.
Á heimasíðu sveitarfélagsins
kemur fram að hlutverk húsnæðis-
áætlana sé að draga fram mynd af
því hver staða húsnæðismála er í
hverju sveitarfélagi fyrir sig, greina
framboð og eftirspurn eftir margvíslegum hús-
næðisformum og setja fram áætlun um hvernig
sveitarfélagið ætlar að mæta húsnæðisþörf, bæði
til skemmri og lengri tíma.
„Í Húnaþingi vestra hefur verið mikið byggt af
íbúðarhúsnæði á síðustu árum, en þrátt fyrir það
er mikil uppsöfnuð þörf er varðar framboð af
íbúðarhúsnæði í sveitarfélaginu.
Lóðaframboð í sveitarfélaginu er gott og mörg-
Húsin spretta upp í Húnaþingi vestra. Hér getur að líta nýleg hús á Hvammstanga en
myndin var tekin í ágúst sl. MYND: ÓAB
um lóðum hefur verið úthlutað á síðustu árum.
Vegna mikillar eftirspurnar eftir íbúðarhús-
næði hefur sveitarstjórn samþykkt tímabundna
heimild til niðurfellingar gatnagerðagjalda af
níu lóðum á Hvammstanga og tveimur á Laugar-
bakka,“ segir á hunathing.is en sveitarstjórn hefur
verið í samstarfi við leigufélagið Bríeti og m.a.
auglýst eftir byggingaraðilum til samstarfs um
byggingu íbúðarhúsnæðis á Hvammstanga. /PF
FYRIRTÆKI Á
NORÐURLANDI VESTRA
Í FREMSTU RÖÐ!
Við erum stolt af því að vera í hópi
framúrskarandi fyrirtækja á Norðurlandi vestra
samkvæmt útnefningu Creditinfo.
2021 Auglýsing um skipulag
Sveinstún, Sauðárkróki - Skipulagslýsing (3. vikur)
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á 419. fundi
sínum þann 15. desember 2021 lýsingu fyrir gerð deiliskipulags fyrir
Sveinstún á Sauðárkróki skv. 3. mgr. 40 gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagssvæðið er við suðurmörk bæjarlandsins á milli Sæmundar-
hlíðar og Sauðárkróksbrautar og sunnan Skagfirðingabrautar.
Gert er ráð fyrir að á umræddum reit verði mótuð ný og aðlaðandi
íbúðarbyggð, m.a til að svara aukinni eftirspurn eftir lóðum.
Skipulagslýsingin er auglýst frá 19. janúar til og með 10. febrúar 2021.
Skipulagslýsingin mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins,
Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15
og á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Ábendingar varðandi tillögugerðina skulu vera skriflegar og berast skipulags-
fulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins, Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki
eða á netfangið skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 10. febrúar 2021.
Árkíll 2, Sauðárkróki – Tillaga að deiliskipulagi (augl. 6. vikur)
Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti á 420. fundi sínum
þann 12. janúar 2022 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Árkíl 2 skv.
1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagssvæðið markast af
lóðarmörkum Árkíls 2 við Borgargerði. Deiliskipulagstillagan felur í sér
stækkun á byggingarreit vegna fyrirhugaðrar stækkunar á leikskólanum.
Skipulagstillagan er auglýst frá 19. janúar til og með 03. mars 2021.
Skipulagstillagan mun liggja frammi til kynningar í Ráðhúsi sveitarfélagsins,
Skagfirðingabraut 17-21, Sauðárkróki á skrifstofutíma frá 10-12 og 12:30-15
og á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar www.skagafjordur.is.
Athugasemdir og ábendingar varðandi skipulagstillöguna skulu vera
skriflegar og berast skipulagsfulltrúa eða afgreiðslu ráðhússins,
Skagfirðingabraut 17-21, 550 Sauðárkróki eða á netfangið
skipulagsfulltrui@skagafjordur.is í síðasta lagi 03. mars 2021.
Skipulagsfulltrúi
Sveitarfélagsins Skagafjarðar
Framúrskarandi fyrirtæki
Framúrskarandi fyrir-
tækin voru 17 á NV
Eitthvað skolaðist til í frétt
Feykis í síðasta blaði um
Framúrskarandi fyrirtæki á
Norðurlandi vestra sem fengu
viðurkenningu þann 21.
október sl. frá Creditinfo. Sagt
var að fyrirtækin hefðu verið
þrettán talsins á svæðinu en
það var gott betur því á
Norðurlandi vestra þóttu 17
fyrirtæki framúrskarandi auk
fjögurra annarra sem eru með
útibú eða aðra starfsemi þar.
Þau sautján fyrirtæki af
Norðurlandi vestra sem prýða
lista Framúrskarandi fyrir-
tækja eru Kaupfélag Skagfirð-
inga, FISK Seafood, Dögun,
Steypustöð Skagafjarðar, Stein-
ull hf., Vörumiðlun ehf., Öldu-
ós ehf., Sláturhús KVH ehf.,
Nesver ehf., Friðrik Jónsson
ehf., Kaupfélag Vestur-Hún-
vetninga, Vinnuvélar Símonar
ehf., Ó.K. Gámaþjónusta ehf.,
Meleyri ehf., Ámundakinn ehf.,
Raðhús ehf. og Ísgel ehf.
Þá eru fyrirtækin Terra, Ísfell,
KPMG og VÍS með starfsemi á
Norðurlandi vestra og halda úti
starfsemi á svæðinu.
Það voru fjögur fyrsttöldu
fyrirtækin sem ekki voru talin
upp í frétt Feykis fyrir viku
síðan og logo fyrirtækjanna
Terra og Ísfells fylgdu heldur
ekki með í síðasta blaði vegna
mistaka og biðjum við þessi
fyrirtæki innilega afsökunar.
/PF
03/2022 3