Feykir


Feykir - 19.01.2022, Side 11

Feykir - 19.01.2022, Side 11
RÉTTUR 1 Kalt nautakjöt í japönskum stíl Þessi réttur er bragðmikill og ferskur. Hef einnig prófað hann úr afgangs nautakjöti og elgskjöti og aldrei bregst það hversu bragðgóður hann er. Góð fitusprengd nautalund kórianderfræ ferskt rósmarin salt & pipar oregano (þurkað eða ferskt) engiferrót rautt chilli grænt chilli radísur ferskt kóriander sesamolía japönsk soja 2 lime Aðferð: Kórianderfræin sett í mort- el og mulin vel. Rósmarín saxað og oregano ef notað er ferskt. Þessu er blandað saman í kryddblöndu ásamt salti og pipar. Dreifið kryddblönd- unni á bretti og veltið nautalundinni upp úr kryddinu og þrýstið því vel utan á kjötið. Okkur finnst best að setja kjötið í Sous Vide, þá er best að finna leiðbeiningar m.v. stærðina á lundinni á netinu. Eftir það skellum við lundinni í stuttan tíma á funheitt grill til að brúna. Einnig er hægt að elda í ofni með kjöthitamæli og brúna svo á vel heitri pönnu. Mikilvægt að láta kjötið standa í minnst 15 mínútur eftir eldun. Því næst er kjötið skorið í örþunnar sneiðar og dreift jafnt á stórt fat. Engiferrót er rifin með rifjárni, chilli eru fræhreinsaðir og sneiddir fínt. Radísurnar eru sneiddar í mjóar sneiðar og kóríanderstilkarnir eru skornir langsum (ath. að það má nota stilkana líka, ekki bara blöðin). Þessu er öllu dreift yfir kjötfatið. Sesamolíu og japanskri soja er blandað saman í 1:1 hlutfalli (u.þ.b. 1/2 til 1 dl af hvoru) og út í þetta er bætt safa úr tveim lime ávöxtum. Dressingu er dreift jafnt yfir allt kjötið en gott að hafa auka dressingu til hliðar þegar borið er fram. Meðlæti: Þetta er hægt að borða eitt og sér, en okkur fínnst líka gott að borða með þessu grænt salat, t.d. spínat, stökka papriku, ristaðar furu- hnetur og avokado. RÉTTUR 2 Humar með sítrónusmjörsósu Þessi réttur hentar einnig vel sem forréttur og þarf þá að minnka hráefnamagnið en hérna er miðað við aðalrétt. Fólk hefur mismun- andi skoðun á hvernig á að undirbúa eða hreinsa humarhala og ég ætla ekki að hafa leiðbein- ingar fyrir það með þessari upp- skrift. Undirbúið 12-15 meðalstóra humarhala á mann. Marinering: 1/2 bolli ólífuolía 2 msk. sítrónusafi 2 msk. fersk basilika 3 hvítlauksgeirar Aðferð: Blandið öllu saman og penslið á humarinn. Okkur finnst best að grilla humarinn á skelinni á útigrilli, en það er einnig hægt að elda í ofni. Sítrónusmjörsósa: 1/4 dl hvítvín safi úr hálfri sítrónu 100 g smjör saffran ítalsk sjávarréttakrydd salt og pipar Aðferð: Sjóðið hvítvín og sítrónu- safa niður með kryddinu og hrærið svo smjörinu saman við. Meðlæti: Okkur finnst best að borða einfalt salat og nýbakað brauð með. Salat: spínat, ristaðar hnetur og jarðarber. Brauð: 20 g ger 6 dl vatn 1 msk. salt 1 msk. matarolía 900 g hveiti Aðferð: Hnoðið allt saman í hrærivél. Látið hefast í 2 klst. í skálinni. Skiptið svo í fimm hluta, rúllið út og mótið snittubrauð. Þetta er látið hefast á plötunni í 1 klst. undir viskustykki. Skerið svo nokkrar rákir í hvert brauð með beittum hníf, penslið yfir með eggi eða vatni. Bakið brauðin í 10–12 mínútur í 250°C heitum ofni. Til að fá stökka skorpu á brauðið er gott að setja ílát með vatni neðst í ofninn. Verði ykkur að góðu! Sandra skorar á vini sína, Lindu Fanneyju og Jóhannes, að taka við keflinu. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Húnar. Sudoku Krossgáta FEYKIFÍN AFÞREYING Feykir spyr... Ertu að horfa á Verbúðina? Spurt á Facebook UMSJÓN: klara@nyprent.is „Já, virkilega góðir þættir og vel gerðir.“ Ragnar Smári Helgason Finna skal út eitt orð úr línunum fjórum: „Já, ég er búin að horfa á tvo þætti. Mér finnst þeir mjög skemmtilegir og athyglisverðir. Það er allt svo „hrátt“ og blátt áfram í þeim. Hlakka til að horfa á fleiri þætti.“ Guðrún Jóna Valgeirsdóttir „Já, hef fylgst með Verbúðinni og finnst þetta fínir þættir. Tónlistin er góð og leikararnir flottir!" Örvar Jónsson LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Víða leynast dauðagildrur. F „Já, með betri íslenskum seríum!“ Brynja Hödd Ágústsdóttir Kalt nautakjöt í japönskum stíl og humarhalar Matgæðingur vikunnar er Sandra Gestsdóttir frá Tröð í Skagafirði. Sandra býr í Hafnafirði ásamt eiginmanni og þremur dætrum. Sandra er lyfja- og líftæknifræðingur og vinnur hjá þróunardeildinni hjá Össuri ehf. „Ég tel sjálfa mig nokkuð flinka í eldhúsinu, fylgi sjaldan upp- skriftum bókstaflega og get oft nýtt það sem er til hverju sinni á heimilinu til að bera fram góða máltíð. Mögulega eitthvað sem maður lærir á því að alast upp með þá fyrirmynd sem mamma mín er. Mig langar að deila mínum uppáhaldsuppskriftum! Þetta er matur sem er upplagt að gera þegar maður vill gera extra vel við sig og sína,“segir Sandra. ( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is Sandra Gestsdóttir | Skagfirðingur í Hafnarfirði Sandra og Árni Pétur Gunnsteinsson ásamt dætrunum þremur. MYND AÐSEND „Já, er búinn að sjá, flottir og vandaðir þættir.“ Þórður Grétar Árnason 03/2022 11 Vísnagátur Sveins Víkings Á hurðum eru þeir hafðir til nytja. Herská þjóð á fyrri öldum. Renndir úr tré á rúmstuðlum sitja. Rándýrsbörn á auðnum köldum.

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.