Feykir - 19.01.2022, Síða 11
RÉTTUR 1
Kalt nautakjöt í
japönskum stíl
Þessi réttur er bragðmikill og ferskur.
Hef einnig prófað hann úr afgangs
nautakjöti og elgskjöti og aldrei
bregst það hversu bragðgóður hann
er.
Góð fitusprengd nautalund
kórianderfræ
ferskt rósmarin
salt & pipar
oregano (þurkað eða ferskt)
engiferrót
rautt chilli
grænt chilli
radísur
ferskt kóriander
sesamolía
japönsk soja
2 lime
Aðferð: Kórianderfræin sett í mort-
el og mulin vel. Rósmarín saxað og
oregano ef notað er ferskt. Þessu er
blandað saman í kryddblöndu ásamt
salti og pipar. Dreifið kryddblönd-
unni á bretti og veltið nautalundinni
upp úr kryddinu og þrýstið því vel
utan á kjötið. Okkur finnst best að
setja kjötið í Sous Vide, þá er best að
finna leiðbeiningar m.v. stærðina á
lundinni á netinu. Eftir það skellum
við lundinni í stuttan tíma á funheitt
grill til að brúna. Einnig er hægt að
elda í ofni með kjöthitamæli og
brúna svo á vel heitri pönnu.
Mikilvægt að láta kjötið standa í
minnst 15 mínútur eftir eldun. Því
næst er kjötið skorið í örþunnar
sneiðar og dreift jafnt á stórt fat.
Engiferrót er rifin með rifjárni, chilli
eru fræhreinsaðir og sneiddir fínt.
Radísurnar eru sneiddar í mjóar
sneiðar og kóríanderstilkarnir eru
skornir langsum (ath. að það má
nota stilkana líka, ekki bara blöðin).
Þessu er öllu dreift yfir kjötfatið.
Sesamolíu og japanskri soja er
blandað saman í 1:1 hlutfalli (u.þ.b.
1/2 til 1 dl af hvoru) og út í þetta er
bætt safa úr tveim lime ávöxtum.
Dressingu er dreift jafnt yfir allt
kjötið en gott að hafa auka dressingu
til hliðar þegar borið er fram.
Meðlæti: Þetta er hægt að borða eitt
og sér, en okkur fínnst líka gott að
borða með þessu grænt salat, t.d.
spínat, stökka papriku, ristaðar furu-
hnetur og avokado.
RÉTTUR 2
Humar með
sítrónusmjörsósu
Þessi réttur hentar einnig vel sem
forréttur og þarf þá að minnka
hráefnamagnið en hérna er miðað
við aðalrétt. Fólk hefur mismun-
andi skoðun á hvernig á að
undirbúa eða hreinsa humarhala
og ég ætla ekki að hafa leiðbein-
ingar fyrir það með þessari upp-
skrift.
Undirbúið 12-15 meðalstóra
humarhala á mann.
Marinering:
1/2 bolli ólífuolía
2 msk. sítrónusafi
2 msk. fersk basilika
3 hvítlauksgeirar
Aðferð: Blandið öllu saman og
penslið á humarinn. Okkur finnst
best að grilla humarinn á skelinni
á útigrilli, en það er einnig hægt að
elda í ofni.
Sítrónusmjörsósa:
1/4 dl hvítvín
safi úr hálfri sítrónu
100 g smjör
saffran
ítalsk sjávarréttakrydd
salt og pipar
Aðferð: Sjóðið hvítvín og sítrónu-
safa niður með kryddinu og
hrærið svo smjörinu saman við.
Meðlæti: Okkur finnst best að
borða einfalt salat og nýbakað
brauð með.
Salat: spínat, ristaðar hnetur og
jarðarber.
Brauð:
20 g ger
6 dl vatn
1 msk. salt
1 msk. matarolía
900 g hveiti
Aðferð: Hnoðið allt saman í
hrærivél. Látið hefast í 2 klst. í
skálinni. Skiptið svo í fimm hluta,
rúllið út og mótið snittubrauð.
Þetta er látið hefast á plötunni í 1
klst. undir viskustykki. Skerið svo
nokkrar rákir í hvert brauð með
beittum hníf, penslið yfir með eggi
eða vatni. Bakið brauðin í 10–12
mínútur í 250°C heitum ofni. Til
að fá stökka skorpu á brauðið er
gott að setja ílát með vatni neðst í
ofninn.
Verði ykkur að góðu!
Sandra skorar á vini sína, Lindu
Fanneyju og Jóhannes, að taka við
keflinu.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Húnar.
Sudoku
Krossgáta
FEYKIFÍN AFÞREYING
Feykir spyr...
Ertu að horfa
á Verbúðina?
Spurt á Facebook
UMSJÓN: klara@nyprent.is
„Já, virkilega góðir þættir
og vel gerðir.“
Ragnar Smári Helgason
Finna skal út eitt orð
úr línunum fjórum:
„Já, ég er búin að horfa á tvo
þætti. Mér finnst þeir mjög
skemmtilegir og athyglisverðir.
Það er allt svo „hrátt“ og blátt
áfram í þeim. Hlakka til að
horfa á fleiri þætti.“
Guðrún Jóna Valgeirsdóttir
„Já, hef fylgst með Verbúðinni
og finnst þetta fínir þættir.
Tónlistin er góð og
leikararnir flottir!"
Örvar Jónsson
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Víða leynast dauðagildrur.
F
„Já, með betri
íslenskum seríum!“
Brynja Hödd Ágústsdóttir
Kalt nautakjöt í
japönskum stíl og
humarhalar
Matgæðingur vikunnar er Sandra Gestsdóttir frá Tröð í Skagafirði.
Sandra býr í Hafnafirði ásamt eiginmanni og þremur dætrum.
Sandra er lyfja- og líftæknifræðingur og vinnur hjá þróunardeildinni
hjá Össuri ehf.
„Ég tel sjálfa mig nokkuð flinka í eldhúsinu, fylgi sjaldan upp-
skriftum bókstaflega og get oft nýtt það sem er til hverju sinni á
heimilinu til að bera fram góða máltíð. Mögulega eitthvað sem maður
lærir á því að alast upp með þá fyrirmynd sem mamma mín er. Mig
langar að deila mínum uppáhaldsuppskriftum! Þetta er matur sem er
upplagt að gera þegar maður vill gera extra vel við sig og sína,“segir
Sandra.
( MATGÆÐINGUR VIKUNNAR ) siggag@nyprent.is
Sandra Gestsdóttir | Skagfirðingur í Hafnarfirði
Sandra og Árni Pétur Gunnsteinsson ásamt dætrunum þremur.
MYND AÐSEND
„Já, er búinn að sjá, flottir
og vandaðir þættir.“
Þórður Grétar Árnason
03/2022 11
Vísnagátur Sveins Víkings
Á hurðum eru þeir hafðir til nytja.
Herská þjóð á fyrri öldum.
Renndir úr tré á rúmstuðlum sitja.
Rándýrsbörn á auðnum köldum.