Feykir - 14.09.2022, Qupperneq 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR F
Kvennalið Tindastóls sýndi fádæma öryggi sl.
föstudagskvöld þegar það heimsótti lið Augnabliks
á Kópavogsvöll. Það var ljóst fyrir umferðina að
sigur í Kópavogi mundi tryggja Stólastúlkum sæti í
Bestu deild kvenna að ári. Lið Tindastóls tók
snemma völdin í leiknum og þær voru 0-4 yfir í
hálfleik. Heldur hægðist á leiknum í síðari hálfleik
en stelpurnar bættu við einu marki, sigruðu því
0-5, og eru í góðum gír að mæta toppliði FH á
Króknum um næstu helgi – sigur tryggir Stóla-
stúlkum efsta sætið í Lengjudeildinni.
Leikurinn fór rólega af stað en fljótlega varð
ljóst að lið Tindastóls var sterkara og ákveðnara í
sínum aðgerðum. Það voru föstu leikatriðin –
hornspyrnur – sem gáfu vel til að byrja með.
Fyrsta markið kom á 19. mínútu eftir horn frá
Hönnuh sem sendi boltann beint á kollinn á
Melissu Garcia sem skallaði boltann í fjærhornið.
Þremur mínútum síðar fengu Stólastúlkur aðra
hornspyrnu sína og enn sendi Hannah Cade
boltann inn í, hann var hreinsaður til baka til
hennar og Hannah skoraði með ágætu skoti sem
fór af varnarmanni í markið, framhjá varnarlausri
Herdísi Guðbjartsdóttur, Króksaranum í marki
Augnabliks. Gestirnir voru ekki af baki dottnir og
á 40. mínútu var það Murr sem gerði gott mark,
fékk boltann fyrir utan teig, kom sér inn á teiginn
og skoraði með góðu skoti. Fjórða markið gerði
síðan Melissa tveimur mínútum síðar með skalla
af stuttu færi eftir frábæran undirbúning Murr.
Heimastúlkur sýndu ágæta baráttu framan af
síðari hálfleik á meðan Stólastúlkur, í góðri stöðu,
tóku fótinn aðeins af bensíngjöfinni. Augnablik
náði þó aldrei að ógna marki Amber svo neinu
næmi og fljótlega kviknaði á gestunum að nýju.
Það fór ágætlega á því að Murr gerði fimmta og
síðasta mark leiksins af harðfylgi á 64. mínútu.
Það er því ljóst að næsta sumar verður lið
Tindastóls á ný í deild þeirra bestu og hreint
frábært að ná þangað strax eftir fall í fyrra.
Allir að róa í sömu átt
Feykir spurði Bryndísi Rut Haraldsdóttur, fyrir-
liða Stólastúlkna, hvað hún gæti sagt um liðið sitt
og teymið á bak við liðið. „Þetta lið er bara eins og
fjölskyldan manns, erfitt að lýsa því öðruvísi en
þannig. Auðvitað eru hæðir og lægðir en við
stöndum saman og að falla niður um deild og
halda svipuðum mannskap sýnir þrautseigjuna
og ástríðuna sem þessi hópur hefur. Elska þessar
stelpur svo einfalt er það! Ég hef verið mjög
ánægð með þjálfarana, styrktarþjálfarann, sjúkra-
þjálfarana, meistaraflokksráðið, stuðningsmenn,
framkvæmdastjóra og stjórnina í sumar. Það
voru allir að róa í sömu átt en núna þarf að bæta í
og leggja enn harðar að sér!“
Til hamingju Stólastúlkur með sætið í Bestu
deild. Nú er bara að endurheimta bikarinn um
næstu helgi – kannski fáum við að geyma hann
lengur en síðast!?! /ÓAB
Lengjudeild kvenna | Augnablik – Tindastóll 0-5
Stólastúlkur upp í Bestu deildina
Stólastúlkur og staffið í kringum liðið kampakátt eftir að hafa tryggt sér sæti í Bestu deildinni. MYND: SÆÞÓR MÁR
Næstsíðasta umferðin í 3. deild karla í knattspyrnu
fór fram á laugardaginn en þá fór Kormákur/Hvöt í
Kópavoginn þar sem þeir mættu liði Augnabliks.
Síðustu vikur hafa verið liði Húnvetninga erfiðar
og ekki náðist í stig að þessu sinni þegar áttundi
tapleikurinn í röð leit dagsins ljós en lokatölur voru
4-1 fyrir heimaliðið. Staða K/H í fallbaráttunni
batnaði þó þrátt fyrir tapið þar sem bæði lið KH og
Vængir Júpiters töpuðu sínum leikjum. Lið KH féll
því í 4. deild og átta marka sveiflu þarf til, til að
Vængirnir komist upp fyrir Kormák/Hvöt.
Fyrsta markið í Fífunni í Kópavogi g kom eftir
29. mínútna leik en um 20 mínútum þurfti að
bæta við fyrri hálfleik sökum meiðsla. Aliu Djalo
yfirgaf völlinn á tólftu mínútu uppbótartíma.
Á 63. mínútu jafnaði Acai Rodriguez leikinn
fyrir Kormák/Hvöt en eins og oft áður í taphrinu
Húnvetninga þá kom slæmur kafli þar sem
flóðgáttir opnuðust og andstæðingarnir kláruðu
leikinn. Að þessu sinni gerðu Augnablikar þrjú
mörk á átta mínútum. Fyrst skoraði Óskar
Hákonarson á 79. mínútu og Halldór Atli
Kristjánsson bætti marki við tveimur mínútum
síðar. Það var síðan Tómas Bjarki Jónsson sem
gerði fjórða mark Augnabliks úr víti á 87. mínútu.
Síðasti leikur Kormáks/Hvatar fer síðan fram
næstkomandi laugardag og hefst kl. 14:00 á
Blönduósvelli. Ljóst er orðið að það verða lið
Dalvíkur/Reynis og Sindra sem hafa tryggt sér
sæti í 2. deild að ári. /ÓAB
3. deild karla | Augnablik – Kormákur/Hvöt 4-1
Áttundi tapleikurinn í röð
Meistaramóti GSS í holukeppni
lauk nú í lok sumars og var það
Sigríður Garðarsdóttir sem
sigraði að lokum eftir úrslita-
viðureign við Sylvíu Dögg
Gunnarsdóttur. Sigga vann
leikinn á 14. holu og er þar
með sigurvegari Meistara-
móts GSS 2022.
Alls voru 22 keppendur
skráðir til leiks í holukeppn-
inni en þar er keppt í
einstaklings viðureignum í
útsláttarkeppni þar til einn
stendur uppi sem sigurvegari.
Á leið sinni að sigrinum
spilaði Sigga fyrst við Ingva
Þór Óskarsson, þá var næst
Una Guðmundsdóttir en í
undanúrslitum mætti hún
Sigríði Svavarsdóttur, for-
manni GSS. Í úrslitum mætti
hún, sem fyrr segir, Sylvíu
Dögg bekkjarsystur sinni.
Sigga segir að það sé gaman
að segja frá því að það hafi
einmitt verið Sylvía sem
hringdi í hana klukkutíma
áður en skráningu í mótið
lauk og skoraði á hana að
taka þátt í mótinu. Þá vissi
Sigga ekki einu sinni hvernig
holukeppnin virkar og í
fyrstu viðureigninni þurfti
Ingvi að kenna henni hvernig
keppnin gengi fyrir sig.
Hvenær byrjaðir þú að
stunda golf? „Sumarið 2019
fór ég á byrjendanámskeið,
eiginlega vegna þess að
krakkarnir voru byrjaðir í
golfi. Það er svolítið erfitt að
vera caddy og kunna ekki
neitt. Áhuginn verður alltaf
meiri og meiri og í sumar
náði ég markmiði sumarsins
sem var að komast undir 40 í
forgjöf! Það náðist á
Steinullarmótinu í lok ágúst,“
segir Sigga sátt. /ÓAB
Golf | Meistaramóts GSS 2022
Sigga varð meistari
Sigga með verðlaunagripinn.
MYND AF FB-SÍÐU GSS
Á Facebook-síðu körfuknatt-
leiksdeildar Tindastóls segir
frá því að gengið hefur verið
frá samningum við öflugan
flokk ungra og sprækra
heimamanna um að leika með
Stólunum á komandi leiktíð.
Þetta eru þeir Helgi Rafn
Viggósson, Orri Már Svavars-
son, Veigar Örn Svavarsson,
Eyþór Lár Bárðarson, Reynir
Barðdal og Axel Kárason.
Þessir kappar hafa nú
flestir komið við sögu áður
með meistaraflokki Stólanna
nema hvað Reynir Barðdal
kemur upp úr yngri flokka
starfinu en kappinn spilaði
körfubolta í Ameríkuhreppi
síðasta vetur ef Feykir er ekki
í bullinu. Orri Már, Veigar
Örn og Eyþór Lár voru með
liðinu síðasta vetur og eru
ungir og sprækir og síðan eru
það Axel og Helgi Rafn sem
eru sprækir en minna ungir,
báðir fæddir 1983 og verða
því fertugir á næsta ári.
„Við leggjum mikla
áherslu á að byggja á sterkum
grunni heimamanna og erum
stolt af þessum magnaða
hóp,“ segir Dagur Þór, for-
maður kkd. Tindastóls. /ÓAB
Körfuknattleiksdeild Tindastóls | Samningar
Ungir og heldri heima-
menn taka slaginn
Leikmennirnir sex ásamt Degi formanni. MYND AF FB-SÍÐU KKD. TINDASTÓLS
34/2022 5