Feykir


Feykir - 05.10.2022, Side 4

Feykir - 05.10.2022, Side 4
Króksarinn brottflutti, Hulda Jónasar, hefur verið ötul við að færa landsmönnum gullkorn liðinna ára í formi sönglaga gamalla tíma. Of langt mál er að nefna alla þá tónleika sem hún hefur staðið fyrir en nú er komið að því að heiðra eina ástsælustu söngkonu þjóðarinnar, Helenu Eyjólfsdóttur föstudaginn 21. október í Hofi á Akureyri og laugardaginn 29. október í Salnum Kópavogi. „Helena hefur staðið á sviðinu í marga áratugi og er fyrir löngu búin að syngja sig inn í hjörtu landsmanna með ógleyman- legum dægurlagaperlum. Á þessum einstöku tónleikum ætlum við að leyfa ykkur að heyra þær og rifa upp bæði í tali og tónum feril Helenu,“ segir Hulda. Á Wikipediu kemur fram að söngferill Helenu hafi hafist með söng inn á jólaplötu í formi jólakorts (einnig hljóm- plötu) árið 1954 þegar Helena var aðeins tólf ára gömul: „Næsta plata kom út 1958. Sú plata og lagið Ástarljóðið mitt setti Helenu á lista meðal fremstu dægurlaga söngvara landsins. Helena hefur í gegnum tíðina sungið með ýmsum hljómsveitum, svo sem Neo kvartettinum og Atlantic kvartettinum. Síðar söng hún með Hljómsveit Svavars Gests en lengst af með Hljómsveit Ingimars Eydal og Hljómsveit Viðburðarstjórinn Hulda Jónasar með stórviðburð í Hofi og Salnum Kópavogi Tónleikar til heiðurs Helenu Eyjólfs Finns Eydal sem hún rak um árabil ásamt eiginmanni sínum Finni Eydal (1940 - 1996). Þann 17. júní 2010 var Helena sæmd riddarakrossi Hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir framlag sitt til íslenskrar tónlistar,“ segir í grein Wikipedia. Hulda segir að Helena hafi orðið 80 ára á þessu ári og fannst henni tilvalið að skella í eina heiðurstónleika fyrir þessa dásamlegu söngkonu sem glatt hefur landsmenn með söng sínum í nærri 70 ár. „Á tónleikunum ætlum við VIÐTAL Páll Friðriksson að rekja feril Helenu bæði í tali og tónum, rifja upp fallegu dægurlagaperlurnar og sög- urnar á bak við þær. Valgerður Erlings og Helena sjálf verða á sviðinu allan tímann og spjalla á milli laga um ferilinn og sögurnar á bak við lögin. Hver man ekki eftir lögum eins og Manstu ekki vinur, María Ísabel, Ég tek hundinn, Vaggi þér aldan, Hoppsa bomm, Hvítu mávar og fleiri og fleiri.“ Á tónleikunum leikur sex manna hljómsveit undir stjórn Rögnvaldar Valbergssonar og bakraddasveit undir stjórn Húnvetningsins Hrafnhildar Víglundsdóttur. Hulda segir að fjórar frábærar söngkonur munu síðan stíga á svið og flytja lögin en það eru þær Hrafnhildur Ýr, Hreindís Ylva, Kristjana Arngríms og Sigur- laug Vordís. Þá eru þeir líka í hópnum Ívar Helgason og Grímur Sigurðsson sem söng og lék með Helenu í hljómsveit Ingimars Eydal í fjölda ára og segir Hulda hann engu hafa gleymt. Nú hefur Helena sungið ansi mörg lög um ævina, hvernig gekk að velja lögin? „Það gekk bara ljómandi vel við völdum þau í sameiningu ég og Helena og vorum yfirleitt sammála, en hún fékk auðvitað að ráða þessu í lokin og leggja blessun sína yfir þetta enda kann hún þetta.“ Helena verður heiðursgestur tónleikanna og eins og fram kemur hér að framan mega áhorfendur eiga von á því að hún taki lagið. „Já, svo sannarlega, hún ætlar að taka lagið. Hún og Grímur ætla einnig að rifja upp gamla takta og skella í eina Ingimars Eydal syrpu og svo verður hún auðvitað að taka Hvítu mávana fyrir okkur.“ Hljómsveit er skipuð þeim Guðjóni Steini, klarinett og saxófónn; Grími Sigurðssyni, trompet; Sigurði Björnssyni, bassi; Sigga Inga, trommur; Yngva Rafni, gítar og hljóm- sveitarstjóranum og hljóm- borðsleikaranum Rögnvaldi Valbergssyni. Í bakröddum syngja þau Ása Svanhildur, Hrafnhildur Ýr og Sigurjón Örn. Hulda segir það hafa gengið ljómandi vel að koma hljóm- sveit og flytjendum saman en þau eru búsett bæði fyrir norðan og sunnan. „Við höf- um haldið æfingahelgar sunnan heiða og svo hefur fólk æft sig líka bæði heima í stofu og svo í minni hópum,“ útskýrir Hulda sem langar í lokin að hvetja fólk til að koma á þessa einstöku tónleika, hrista af sér haustslenið og svífa með aðstandendum tónleikanna aftur í tímann og hlusta á allar fallegu dægur- lagaperlurnar hennar Helenu. „Tilvalið fyrir saumaklúbba, matarklúbba, vinkonur, vini, starfsmannafélög og bara alla. Það er mannbætandi að hlusta á tónlistina hennar Helenu og fallegu sögurnar hennar. Hún er einstök kona.“ Viltu vinna miða? Í tilefni þessa viðburðar verða tíu miðar í boði Gná tónleikar fyrir heppna lesendur Feykis. Það eina sem þarf að gera er að senda póst á feykir@feykir.is eða bréfleiðis á Feykir Borgar- flöt 1, 550 Sauðárkróki. Muna að setja nafn og heimilisfang sendanda og munu fimm heppin fá tvo miða hvert. Helena Eyjólfs, Svanhildur Jakobs og Mjöll Hólm voru þátttakendur á tónleikunum Út við himinbláu sundin, sem Hulda Jónasar hélt á síðasta ári. MYNDIR AÐSENDAR Hulda í góðum félagsskap Mjallar Hólm t.v. Helenu Eyjólfs t.h. og Valgerðar Erlings sem er fremst á myndinni. Kjördæmadagar hófust á mánudaginn og þá nýta þingmenn til að fara út í kjördæmi sín og hitta kjósendur, sveitarstjórnafólk, fulltrúa fyrirtækja og fleiri. Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að slíkur fundur hafi verið haldinn einmitt á mánudaginn. „Þingmenn fengu kynningu á stöðu sveitarfélagsins og farið var yfir helstu áherslumál. Á fundinum var meðal annars rædd sú ánægja íbúa með sveitarfélagið sem kemur berlega í ljós í íbúakönnunum,“ segir í frétt sveitarfélagsins. Þá var farið yfir umtalsverðar framkvæmdir í sveitarfélaginu undanfarin ár, svo sem viðbyggingu við Grunn- skólann, hitaveituframkvæmdir og íbúðauppbyggingu en einnig var sagt frá þeim framkvæmdir sem á döfinni eru. „Að lokum fór sveitarstjórn yfir helstu áhersluatriði sín. Var Vatnsnesvegurinn og aðrar brýnar vegaframkvæmdir þar efst á blaði. Staðan í landbúnaði, einkum sauðfjárrækt, bar á góma, tækifæri til flutnings óstaðbundinna starfa í sveitarfélagið, orkumál, málefni fatlaðs fólks, niðurgreiðsla sveitarfélagsins með dreifnáms- deildinni sem og nauðsynlegar úrbætur á hafnarmannvirkjum. Fjölmög fleiri framfaramál voru rædd. Þingmönnum er þökkuð heimsóknin og góðar umræður,“ segir á hunathing. is. / PF Kjördæmadagar 3.–6. október Þingmenn funduðu með sveitarstjórn Húnaþings vestra Alþingismenn nýta kjördæmadaga m.a. til að ræða við fólk og taka stöðuna á sveitarfélögunum. Hér má sjá þingmenn Norðvesturskjördæmis ræða við sveitarstjórn Húnaþings vestra. MYND: HUNATHING.IS. 4 37/2022

x

Feykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.