Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Blaðsíða 2
2 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
3
Brú sem verktakinn Ístak er með í byggingu yfir
Stóru-Laxá var forðað frá stórtjóni þegar Skeiða-
og Hrunamannavegur var rofinn þann 19. janúar
síðastliðinn til að opna nýjan farveg fyrir ána og
skapa svigrúm fyrir vatnavexti. Næsta dag, þann 20.
janúar, gerði asahláku eftir um sex vikna samfelldan
frostakafla. Mikill ís var kominn á ána og því viðbúið að
áin ryddi sig með miklu vatnsflóði og jakaburði.
Ný brú yfir Stóru-Laxá
Vegurinn við Stóru-Laxá var rofinn til að
opna nýjan farveg fyrir ána. Steypuvinna við
brúargólfið gekk vel.
Við byggingu brúarinnar var árfarvegurinn þrengdur
og verkpallar reistir yfir. Fyrirséð var að vatnsopið bæri
ekki stóraukið vatnsrennsli með jakaburði og því ráðist
í þessa framkvæmd að rjúfa veginn norðan við ána.
Þann 21. janúar, tveimur dögum eftir að vegurinn var
rofinn, ruddi áin sig fram með miklu flóði og streymdi að
hluta um hinn nýja farveg. Með stórvirkum vinnuvélum
tókst verktakanum að bægja frá ísjökum og halda
rennslinu greiðu á meðan vatnselgurinn var mestur og
forða nýja mannvirkinu frá skemmdum.
↑
Ekki er vitað til þess að brú hafi
verið yfirbyggð á þennan máta áður.
Steypuvinnan stóð yfir samfellt í 30
klukkustundir.