Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Blaðsíða 15
14 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
15
Fyrirtækið Steypudrangur sér um vegagerðina
sem er langt komin en verkið snýst um nýbyggingu
Vatnsnesvegar á um eins kílómetra kafla, byggingu
nýrra heimreiða eða tenginga, samtals um 400 m og
endurbyggingu á um 1,2 km kafla milli Vesturhópshóla
og Þorfinnsstaða á Vatnsnesi í Húnaþingi vestra.
Brúavinnuflokkur Vegagerðarinnar fékk
það hlutverk að byggja brúna sjálfa. Brúin verður
eftirspennt plötubrú í einu hafi, 17 m löng, heildarlengd
19,13 m. Brúin verður með 9 m breiðri akbraut og með
0,5 m breiðum kantbitum, alls um 10 metra breið.
Nýja brúin verður 20 til 24 metrum sunnan við
núverandi brú sem er einbreið og í lélegu ástandi.
↑
Um miðjan september 2022 var byrjað á að moka frá staurum.
↖
Brúavinnuflokkurinn steypir sökkul í október.
←
Starfsmenn brúavinnuflokksins hafa farið reglulega
að moka frá steypumótum í desember og janúar.
↓
Staurar voru reknir niður töluvert áður en framkvæmdir hófust.
↓
Fyrri stöpull brúarinnar er tilbúinn.