Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 6

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 6
6 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 7 Nú styttist í að ný umferðarmerkjareglugerð taki gildi en drög að henni lágu frammi í samráðsgátt á síðastliðnu ári. Ég, sem þetta rita, hef mikið komið að vinnu við reglugerðir umferðarmerkja allt frá árinu 1988. Verkefni mín hafa verið hreinteikningar merkja, ný merki, textagerð og yfirlestur. Ég þekki því þessa sögu síðustu 35 árin nokkuð vel og svo datt mér í hug að sjá hvaða heimildir ég gæti fundið um notkun umferðarmerkja á Íslandi frá upphafi bílaaldar. Í 6. tbl. síðasta árs birtist grein sem ég tók saman um kílómetrasteina sem er einn kafli þessarar sögu þar sem þeir teljast umferðarmerki í víðasta skilningi þess orðs. Það verður því ekki fjallað um þá í þessari samantekt. Þessi skrif eru þankar sem ná varla máli sem sagnfræði en vonandi einhverjum til fróðleiks og skemmtunar. Sögunni er skipt upp í tvo hluta, vinstri umferð og hægri umferð. Síðari hlutinn verður væntanlega birtur í næsta blaði. Háskamerki og gulir steinar Saga umferðarmerkja á Íslandi – Fyrri hluti, vinstri umferð Höfundur: Viktor Arnar Ingólfsson Elstu erlendu merkin Steinar sem merktu vegalengdir voru fyrstu vísarnir að umferðarmerkingum og nær saga þeirra aftur til Rómarveldis. Vegvísar á krossgötum voru þekktir á miðöldum og í Portúgal urðu til umferðarlög árið 1686 og í framhaldi af því voru einhverskonar biðskyldumerki sett upp í Lissabon. Það var þó ekki fyrr en á seinni hluta 19. aldar sem sett voru upp „nútíma“ viðvörunarmerki við vegi í Evrópu og var það í framhaldi af tilkomu stórhættulegra ökutækja sem fóru hratt yfir, reiðhjólanna. ↑ Mynd 2. Nokkur bannmerki frá Genf 1949. ↑ Mynd 1. Táknin fjögur frá París 1909, a) ósléttur vegur, b) hættulegar beygjur, c) þverun járnbrautarteina, d) vegamót.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.