Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Síða 13
12 Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
Framkvæmdafréttir nr. 723
1. tbl. 31. árg.
13
Ný undirgöng í gegnum Arnarnes fyrir gangandi og
hjólandi vegfarendur verða opnuð fyrir umferð með
vorinu. Um er að ræða mikla samgöngubót, enda er
leiðin yfir Arnarnesið ein af fjölförnustu stofnæðum fyrir
hjólandi umferð á höfuðborgarsvæðinu.
Gangandi og hjólandi vegfarendur þurfa hvorki
að fara upp bratta brekku né þvera umferðargötu á
leið um Arnarnesið þegar ný undirgöng verða komin í
gagnið, sem eykur umferðaröryggi á þessum slóðum
til muna. Katrín Halldórsdóttir, verkfræðingur hjá
Höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar, hefur haft umsjón
með þessum framkvæmdum. Hún segir göngin þannig
hönnuð að þau séu opin og björt og liggi vel í landinu.
„Við hönnunina var mikið lagt upp úr því að göngin
væru aðlaðandi fyrir vegfarendur. Þau eru bæði stærri
og bjartari en hefðbundin undirgöng. Á þaki þeirra er
stórt ljósop sem hleypir dagsbirtunni beint inn í göngin
og að auki verður sett ledlýsing í göngin, sem eru 7
metrar á breidd og 3 metrar á hæð,“ segir hún, en
göngin eru um 27 metrar að lengd.
Í gegnum þau verða aðskildar leiðir fyrir gangandi
og hjólandi vegfarendur, sem tengjast inn á núverandi
stígakerfi Garðabæjar. Til stendur að aðskilja stíga
fyrri gangandi og hjólandi vegfarendur sitt hvoru
megin ganganna meðfram Hafnarfjarðarveginum
frá Kópavogi og að Hafnarfirði. Undirbúningur á því
verkefni er þegar hafinn.
Undirgöng á Arnarnesi
bæta umferðaröryggi
Vegagerðin og Garðabær vinna saman að þessum
framkvæmdum, sem heyra undir Samgöngusáttmála
ríkisins og sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu.
Markmiðið með Samgöngusáttmálanum er m.a.
að stuðla að greiðari samgöngum og fjölbreyttum
ferðamátum á höfuðborgarsvæðinu, með jafnri
uppbyggingu innviða allra samgöngumáta.
„Stígakerfið er hannað í samræmi við
hönnunarleiðbeiningar fyrir hjólreiðar frá árinu 2019.
Markmiðið með hönnunarleiðbeiningum er að tryggja
ákveðið verklag við hönnun og gæði á öllum stígum
sem heyra undir Samgöngusáttmálann,“ segir Katrín.
Fyrstu áætlanir gerðu ráð fyrir að göngin yrðu
opnuð fyrir umferð í janúar en á framkvæmdatímabilinu
tók hönnun ganganna nokkrum breytingum, auk þess
sem veður og kuldatíð setti strik í reikninginn. Eins og
staðan er í byrjun árs lítur út fyrir að göngin verði opnuð
með pompi og prakt í vor.
↑
Frá framkvæmdum við
undirgöngin í janúar 2023.
→
Eins og staðan er í byrjun árs lítur út fyrir að
göngin verði opnuðmeð pompi og prakt í vor.