Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Síða 17

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Síða 17
16 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 17 Byrjum bara að spyrja; hvað í ósköpunum er vaktstöð? Árni Gísli: Vaktstöðin sinnir fjölþættum verkefnum. Við erum með starfstöð bæði hér í höfuðstöðvum Vegagerðarinnar í Garðabæ og aðra starfsstöð á Ísafirði. Vaktstöðin í Garðabæ vinnur með suðvesturhornið á landinu en vaktstöðin á Ísafirði þjónustar landið utan suðvesturhornsins. Ástæðan fyrir þessari skiptingu er að umferð er lang mest á suðvesturhorninu og því gott að aðgreina landið á þennan hátt. Yfir nóttina sameinast stöðvarnar og vaktstöð í Garðabæ tekur allt landið. Við vinnum allan sólarhringinn, alla daga ársins. Í heildina eru starfsmenn um tuttugu. Að lágmarki eru tveir starfsmenn á vakt þegar mjög lítið er um að vera og að hámarki eru fimm eða sex starfsmenn yfir allt landið þegar aðstæður krefjast þess. Yfirleitt gerist það yfir vetrartímann. Á vaktinni allan sólarhringinn Í Vegvarpinu, hlaðvarpi Vegagerðarinnar, er fjallað um ýmis mál sem snúa að starfsemi Vegagerðarinnar. Í fyrsta Vegvarpi ársins var fjallað um vaktstöð Vegagerðarinnar sem starfar allan sólarhringinn, alla daga ársins. Viðmælendur G. Péturs Matthíassonar voru þeir Árni Gísli Árnason forstöðumaður upplýsinga og vöktunar og Páll Hróar Björnsson vaktstjóri á vaktstöð Vegagerðarinnar í Garðabæ. Stærstu verkefnin hjá vaktstöð eru vöktun jarðganga. Í umferðarmestu jarðgöngunum eru myndavélar og vaktstjórar bregðast við ef til dæmis bílar stoppa, eitthvað hrynur af bílum, eða ef nýta þarf jarðgöng fyrir forgangsakstur. Miklar kröfur eru gerðar til öryggis í jarðgöngum og vöktun þeirra er einn þáttur í því að tryggja að við séum fljót að bregðast við ef eitthvað gerist. Hitt stóra verkefnið er vetrarþjónusta en við erum samræmingaraðili fyrir vetrarþjónustu. Við köllum út verktaka sem eru með samninga hjá okkur, erum í samskiptum við eftirlitsmenn á vegum úti og vinnum í mjög góðu samstarfi við þjónustustöðvar Vegagerðarinnar um allt land. Starfsfólkið á þjónustustöðvunum er okkar fólk á staðnum. Við erum í miklum samskiptum við það ásamt fullt af verktökum, sem bæði sjá um snjómokstur eða eru eftirlitsverktakar á ákveðnum svæðum. ↑ Frá upptöku á Vegvarpi um vaktstöðvar Vegagerðarinnar. G. Pétur Matthíasson ræddi við Pál Hróar Björnsson og Árna Gísla Árnason.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.