Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 19

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar - 06.02.2023, Page 19
18 Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. Framkvæmdafréttir nr. 723 1. tbl. 31. árg. 19 En það er þannig að þegar neyðarakstur þarf að komast þá er því bjargað þó allt sitji fast? Árni Gísli: Það er þannig í okkar áætlunum. Ef þarf að koma bíl í forgangsakstri um veginn þá er það reynt eins og unnt er. Þá fer tæki á undan sem getur rutt og komið sjúkrabíl eða öðrum tækjum í forgangsakstri áfram. Í sumum tilvikum þurfum við að leita liðsinnis björgunarsveita. Við reynum auðvitað gera allt sem við getum. Í jarðgöngum höfum við gripið til þess ráðs að loka göngum til að forgangsakstursbílar með sjúklinga komist í gegn sem allra fyrst. Páll, fólk verður vart við að til dæmis Hvalfjarðargöngum er lokað nokkuð oft? Páll Hróar: Já, eins og Árni Gísli nefndi þá er yfirleitt alltaf lokað þegar sjúkrabíll í forgangsakstri þarf að fara gegnum göngin. Það gerist reglulega. Svo eru það yfirleitt bílar sem virðast sækja í að bila í göngum. Það er þá ekki óvanalegt að það sé biðröð við gangamunna? Páll Hróar: Já, en biðin er yfirleitt ekki löng. Í forgangsakstri er biðin kannski í kringum sjö til átta mínútur. Árni Gísli: Ég er sjálfur búinn að vera í rúmt ár hjá Vegagerðinni og það kom mér mjög á óvart hvað við erum að loka jarðgöngum oft. Það er alveg ótrúlegt hve margir bílar bila í göngum, en kannski ekki svo skrítið því það er jú landslag í jarðgöngum, það eru brattar brekkur til dæmis í Hvalfjarðargöngum. Oft verða menn til dæmis bensínlausir, því þegar lítið er í tönkum og bíll fer upp bratta brekku þá færist bensínið til í tanknum og nær ekki að dælast til vélarinnar. Það er mjög oft sem bílar verða eldsneytislausir, þeir ofhitna eða eitthvað hrynur af þeim. Þá eru göngin lokuð til að tryggja öryggi þeirra sem eru í göngunum, og þannig að tæki geti komist til að hjálpa. Með þessu er hægt að opna göngin hratt aftur. Ef það myndast erfiðar aðstæður, með umferðaröngþveiti eða öðru, þýðir það að lokunin varir lengur og hefur þá áhrif á mun fleiri í mun lengri tíma. Það eru mjög margir sem fara um Hvalfjarðargöng á hverjum degi, eru það ekki um 7 til 8 þúsund bílar að meðaltali á hverjum degi allt árið, og þá mun fleiri á sumrin? Páll Hróar: Raðirnar við göngin eru fljótar að verða mjög langar ef lokunin varir lengur en í tíu mínútur. Við höfum verið að reyna að stytta biðtímann með því að hleypa umferð til skiptis inn í göngin til að láta hlutina ganga sem greiðast fyrir sig. En hvernig er að koma skilaboðum til fólks sem er að bíða? Páll Hróar: Það er náttúrulega lang best að sækja upplýsingar á umferdin.is. Þar er skilaboðum komið til skila til vegfarenda. Umferðin hefur verið að breytast, við erum með allt öðruvísi vegfarendur, ferðamönnum fjölgaði og fækkaði svo aftur í covid. nú eru þeir að snúa aftur. Finnum við fyrir þessu? Árni Gísli: Það er óhætt að segja það. Við finnum fyrir því bæði í auknu umferðarmagni og svo í ferðamönnum sem eru óvanir að aka í þessum aðstæðum sem eru hér. Þeir eru jafnvel í fyrsta sinn að upplifa snjó eða jafn mikinn vind og hér getur orðið. Svo er það þannig að vegakerfið okkar er ekki hraðbrautakerfi eins og er í mörgum öðrum löndum og því mikil viðbrigði fyrir marga. Við erum líka að sjá mun fleiri á ferðinni utan sumartímans. Það eru krefjandi aðstæður að tryggja að þessir ferðamenn hafi upplýsingar um það sem þá varðar og að tryggja að þeir hafi hæfni til að aka í aðstæðum sem þeir mögulega hafa aldrei séð áður. En hvað gerið þið á sumrin? Árni Gísli: Á sumrin minnkum við aðeins starfsemina hjá okkur. Þá er tækifæri til að koma fólki í orlof. Þá eykst líka umferð í gegnum jarðgöng og fjölgar atvikum þar sem þarf að fylgjast með. Við erum líka með vöktun og erum að taka á móti upplýsingum um skemmdir á vegum. Eins eru fleiri hlutir sem geta gerst eins og skriður og aðrar aðstæður á vegum sem þarf að bregðast við. Ég hef oft sagt að hópurinn okkar á vaktstöð sé hópurinn á bak við tjöldin. Ef þú ekur í gegnum jarðgöng hugsar þú kannski ekki til þess að þarna sé fólk að fylgjast bæði með mælum og myndavélum. Sömuleiðis þegar þú séð snjómoksturstæki, þá ertu lítið að spá í því að það eru margir sem koma að því að skipuleggja moksturinn, eru að fylgjast með upplýsingum sem koma frá snjómoksturstækjunum og frá tækjum í bílum eftirlitsmanna. Við tryggjum að vegfarendur komist örugglega leiðar sinnar ef það er hægt. → Tvær vaktstöðvar eru starfræktar hjá Vegagerðinni, önnur í Garðabæ og hin á Ísafirði. Þar er fólk á vakt allan sólarhringinn við að vakta aðstæður á vegum, skipuleggja vetrarþjónustu og loka vegum ef þörf krefur.

x

Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framkvæmdafréttir Vegagerðarinnar
https://timarit.is/publication/1142

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.