Frá þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna - 11.02.1932, Blaðsíða 42
38
Skiptir það og litlu máli um breytinga-
tillögurnar, því að yfirleitt voru menn
mjög á eitt sáttir um það, hvað rétt-
ast væri að leggja til hvers máls.
Hér á eftir eru hinsvegar birtar orð-
réttar ályktanir þær, sem gerðar voru
á þinginu um almenn landsmál.
9. Ályktanir um landsmál.
Sjálfstæðismál.
Sambandsþingi ungra Sjálfstæðis-
manna er ljós sú hætta, er þjóð vorri
stafar af sambandinu við Dani, og
heitir þingið því á alla góða íslend-
inga:
1. Að vinna kröftuglega að því, að
sambandslagasamningurinn verði
úr gildi felldur þegar í stað eða svo
fljótt sem þess. er nokkur kostur.
2. Að berjast fyrir því, að íslenzkum
kjósöndum verði ljós nauðsyn þess,
að fjölmenna á kjörstaði og greiða
atkvæði með uppsögn samningsins
1943, ef hann verður þá í gildi.
3. Að vinna að því, að íslenzkum rík-
isborgurum verði sem bezt tryggð
full ráð yfir auðsuppsprettum
landsins og þeim atvinnufyrirtækj-
um, er starfa í landinu.