Nýja skákblaðið - 01.02.1940, Blaðsíða 10
5
NÝJA SKÁKBLAÐIÐ
Skákmót Reykjavíkur 1940
Skákmót Reykjavíkur fyrir
árið 1940 hófst sunnudaginn 19.
janúar í K.R.-húsinu. Þáttakan
á þinginu var mjög góð. Teflt
var í fjórum flokkum, meist-
araflokki, 1. flokki, 2. flokki og
3. flokki. Alls voru keppendur
54 í öllum flokkum samanlagt.
í meistaraflokki voru 10
keppendur, flestir þekktir og
reyndir skákmenn.
Eins og taflan ber með sér,
urðu þeir Eggert Gilfer og Ás-
mundur Ásgeirsson hlutskarp-
astir og urðu því að tefla ein-
vígi, til að fá úr því skorið,
hvor þeirra yrði sigurvegari og
þar með Skákmeeistari Reykja-
víkur fyrir árið 1940. Stjórn
Taflfélags Reykjavíkur, sem
hafði alla umsjón með mótinu
ákvað að sá þeirra, sem fyrr
inni þrjár skákir, skyldi vera
sigurvegarinn.
Einvígi þeirra Ásmundar og
Glfers lauk þannig, að Ásmund-
ur vann þrjár fyrstu skákirnar
og þar með titilinn: Skákmeist-
ari Reykjavíkur 1940. Flestir
íslendingar munu sjálfsagt
kannast við Ásmund Ásgeirsson
í sambandi við sigra hans á skák
borðinu hér heima og erlendis.
Skal það .ví ekki rætt hér nán-
ar. Skákblaðið óskar Ásmundi
til hamingju með unninn sigur
og meistaratignina og væntir
þess, að hann megi halda henni
Ásmundur Ásgeirsson.
sem’ lengst, henni sé þar með
bezt borgið í höndum slíks af-
reksmanns og Ásmundar Ás-
geirsson er á íslenzkan mæli-
kvarða hvað skák viðvíkur. í 1.
flokki voru 9. keppendur. Efstur
varð Sigurður Gissurarson með
7 vinninga. 2. Magnús Jónas-
son 6 v. 3. Oli Valdimarsson með
5x/2. 4. Ingimundur Guðmunds-
son 4 vinninga. 5. Geir J. Helga-