FLE fréttir - 01.01.2009, Page 4

FLE fréttir - 01.01.2009, Page 4
Af stjórnarborði Starfsemi félagsins á árinu sem nú var að renna sitt skeið markaðist af nýjum lögum um endur- skoðendur sem samþykkt voru á vorþingi og taka gildi í upphafi nýs árs. Áhrif laganna á starfsumhverfi endurskoðenda og Félag lög- giltra endurskoðenda eru margvísleg og hefur verið fjallað ítrekað um þau á fundum og ráð- stefnum félagsins. Sú umræða leiddi til ýmissa breytinga á samþykktum félagsins sem sam- þykktar voru á aðalfundi nú í nóvember. Litlar breytingar urðu á stjórn félagsins á að- alfundi. Formaður, varaformaður og tveir með- stjórnendur sitja áfram í nýrri stjórn en Sveinbjörn Sveinbjörnsson tók sæti í stað Maríu Sólbergs- dóttur sem verið hefur í stjórninni siðustu tvö ár. Starfió framundan Margháttuð verkefni liggja fyrir stjórn félags- ins á nýju starfsári. Ákveðið hefurverið að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf en Gunnar Sig- urðsson, sem verið hefurfaglegurframkvæmda- stjóri félagins síðustu ár, hyggst láta af störfum nú í byrjun árs. Er það von stjórnarinnar að með þessari aukningu verði verkefnum að hluta létt af stjórn félagsins og að auka megi faglegt starf félagsins ekki síst hvað varðar endurmenntun. Að venju gera fastanefndir félagsins verkefna- áætlanir sínar í upphafi nýs starfsárs. Allar nefndir munu hafa það að leiðarljósi að veita skal félags- mönnum þá þjónustu sem þeir þurfa og vilja. Helstu verkefni menntunarnefndar eru tengd endurmenntunarmálum svo sem við að skilgreina hvað teljist endurmenntun og hvað sé staðfestan- leg endurmenntun í samræmi við alþjóðlega menntunarstaðla, skipuleggja skráningu endur- menntunareininga í Ijósi breyttra laga og síðast en ekki síst að beita sér fyrir nægu framboði end- urmenntunar fyrir félagsmenn. Skipulag haust- ráðstefnu félagsins er í höndum menntunar- nefndar en sem fyrr er gert ráð fyrir að skipulag annarra ráðstefna og hluti af námskeiðum félags- ins verði i höndum viðkomandi fagnefnda. Endurskoðunarnefnd, reikningsskilanefnd og skattanefnd munu sem fyrr standa fyrir fagleg- um ráðstefnum og námskeiðum auk þess að fylgjast með og taka þátt í þróun á þeim svið- um sem þær fjalla um og miðla upplýsingum til félagsmanna. Gæðanefnd mun að venju annast gæðaeftirlit meðstörfumfélagsmanna.enskoðungæðaeftir- litsmanna á endurskoðunarverkefnum vegna ársins 2007 stendur nú yfir. Þegar ný lög taka gildi um áramótin flyst ábyrgðin á gæðaeftirliti yfir til endurskoðendaráðs og þarf þá að móta samstarf við ráðið en félaginu er ætlað að ann- ast gæðaeftirlitið áfram en endurskoðendaráð ber ábyrgð á eftirlitinu, setur reglur um það og samþykkir gæðaeftirlitsmenn. Á aðalfundinum nú í nóvember var nafni rit- nefndar breytt í kynningarnefnd og eru henni nú ætluð víðtækari verkefni en áður. Nefndin mun auk útgáfu FLE-frétta móta upplýsingastreymi til félagsmanna og standa fyrir kynningu á störf- um félagsmanna. Með margumræddum lögum er öllum endur- skoðendum með gild réttindi skylt að vera félagsmenn í FLE. Þessi breyting þarf ekki ein og sér að þýða breytingu á félagsaðild en þó taldi stjórn félagsins nauðsynlegt að hyggja að því hvort skipta þyrfti félaginu í tvær deildir þ.e. þá deild sem sinnir þeim verkefnum sem tilheyra skylduaðildinni og svo aðra sem allir þeir sem hlotið hafa réttindi sem endurskoðendur geta átt aðild að, óháð því hvort þeir hafa lagt inn réttindi sín eða ekki. Eftir nánari skoðun á þeim verkefnum sem félagið sinnir og að fengnum upplýsingum frá Lögmannafélaginu, þar sem einnig er skylduaðild, var það niðurstaða stjórn- arinnar að ekki væri ástæða til að deildaskipta félaginu. Stjórn félagsins telur mikilvægt að fé- Fráteknar dagsetningar • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 7. janúar 2009 kl. 12 • Námskeið, Grand Hótel, fimmtudagur 15. janúar 2009 • Skattadagur FLE, Grand Hótel föstudagur 16. janúar 2009 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 4. febrúar 2009 kl. 12 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 4. mars 2009 kl. 12 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 1. apríl 2009 kl. 12 • Námskeið, Grand Hótel, fimmtudagur 16. apríl 2009 • Endurskoðunardagur FLE, Grand Hótel föstudagur 17. apríl 2009 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 6. maí 2009 kl. 12 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 3. júní 2009 kl. 12 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 2. september 2009 kl. 12 • Námskeið, Grand Hótel fimmtudagur 17. september 2009 • Reikningsskiladagur FLE, Grand Hótel föstudagur 18. september 2009 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 7. október 2009 kl. 12 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 4. nóvember 2009 kl. 12 • Námskeið, Akureyri, fimmtudagur 12. nóvember 2009 • Haustráðstefna FLE, Akureyri, föstudagur 13. og laugardag 14. nóvember 2009 • Aðalfundur FLE, Akureyri, laugardagur 14. nóvember 2009 • Árshátíð FLE, Hótel KEA, Akureyri, laugardagur 14. nóvember 2009 • Hádegisverðarfundur, Grand Hótel miðvikudagur 2. desember 2009 kl. 12 4 • FLE janúar2009

x

FLE fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.