FLE fréttir - 01.01.2009, Page 5

FLE fréttir - 01.01.2009, Page 5
Gleggri á tölur en rjúpur lagið verði hér eftir sem hingað til sameiginlegur vettvangur allra félagsmanna. Á starfsárinu mun stjórn félagsins fjalla um Námsstyrkjasjóð og framtíð hans en eins og félagsmönnum hefur verið kynnt hafa engar út- hlutanir farið fram úr sjóðnum frá stofnun hans og því talið rétt að huga að því á hvern hátt hann getur betur nýst félagsmönnum og faginu til framdráttar. Enduskoðendaráð hefur ekki verið skipað en samkvæmt nýju lögunum á fjámálaráðherra að skipa í það f imm menn. Stjórn félagsins mun beita sér fyrir því að ráðið verði skipað hið fyrsta. Erlent samstarf Aðild FLE að Norræna endurskoðendasamband- inu (NRF) er félaginu mikilvæg. Á vegum þess er miðlað upplýsingum, staðið sameiginlega að framboði til nefnda og stjórna á alþjóðavett- vangi auk þess sem sambandið hefur unnið að ýmsum sameiginlegum verkefnum þar sem nor- rænir hagsmunir eru taldir fara saman. Kostnaði við verkefni NRF er skipt á milli aðildarfélagana í hlutfalli við félagafjölda þannig að öll lönd- in eiga fjárhagslega jafna möguleika á því að taka þátt og þar með að eiga fulltrúa í hinum alþjóðlegu nefndum og stjórnum. FLE greið- ir 3% af kostnaði NRF. Nú er unnið að því að endurskoða starfsemi sambandsins með það að leiðarljósi að virkja það enn frekar til hagsbóta fyrir aðildarfélögin m.a. með því að auka sam- starf fagnefnda félaganna og tryggja að upplýs- ingar sem NRF miðlar nýtist sem best. Staða endurskoöenda I Ijósi þess efnahagsfárviðris sem nú geisar hefur stétt endurskoðenda ekki farið varhluta af þeirri umræðu sem verið hefur um ábyrgð á ástand- inu. I þeirri umræðu hefur oft gætt mikils mis- skilnings um hluverk og ábyrgð endurskoðenda. Af umræðunni má ráða að endurskoðendur séu beinir þátttakendur í stjórnun og ákvarðana- töku hjá þeim fyrirtækjum sem þeir endurskoða. Þá er óhæðið sem starfsgrundvöllur okkar bygg- it á að sama skapi oft misskilið. Stjórn félagsins hefur í hyggju að koma á framfæri upplýsing- um um endurskoðendur, hlutverk þeirra, verk- efni, ábyrgð og óhæði. Starf endurskoðenda er nú mikilvægara en nokkru sinni. „ Ég verð víst að gangast við því," segir Sveinn Ara- son, sem tók við starfi ríkisendurskoðanda á liðnu sumri, þegar hann er spurður hvort hann hafi alið allan sinn starfsaldur hjá stofnuninni. Hann brosir. En hvað er svo sem athugavert við það? Er nokkur ástæða til að söðla um líki mönnum vel í vinnu og séu sífellt að fá ný og krefjandi verkefni í hendur? Þar að auki viðurkennir Sveinn að umbun felist í því að vinna sig jafnt og þétt upp á vinnustað líkt og hann hefur gert undanfarinn hálfan fjórða ára- tug. Og í þessu fagi verður ábyrgðin varla meiri. Sveinn er fæddur og uppalinn á Húsavík og var á menntaskólaárunum innanbúðarmaður hjá Óla frænda sínum Kristinssyni í versluninni Klemmu sem seldi allt milli himins og jarðar, eins og Sveinn man það. „Óli opnaði síðar matvöru- búð og þarna komst ég fyrst í tæri við bisness, eins og það heitir í dag." Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan- um á Akureyri vorið 1968 og þaðan lá leiðin í viðskiptafræðinám við Háskóla Islands. Með náminu vann Sveinn hjá Ríkisbókhaldi og kunni því ágætlega. „Þar voru tölurnar," segir hann dreyminn á svip og gefur til kynna að hann hafi snemma fundið sína hillu í lífinu. „Tölur hafa verið mínar ær og kýr allar götur síðan." Sumarið eftir að Sveinn lauk háskólanámi vann hann hjá Ríkisbókhaldi en færði sig yfir til Ríkisendurskoðunar um haustið. Spurður að því hvort hann eða stofnunin hafi haft frumkvæði af þeim flutningi svarar hann: „Þeir vissu af mér þarna uppfrá." Sveinn setti stefnuna þegar á löggildinguna og segir það hafa verið ákveðin þægindi að búa sig undir hana í örygginu hjá Ríkisenduskoðun heldur en í harkinu á einhverri stofunni úti í bæ. „Maður þurfti að eiga fyrir salti í grautinn." Skírteiniö gefiS út 1. apríl Hann varð löggiltur endurskoðandi árið 1976. „Skírteinið var gefið út 1. apríl, þannig ég er ekkert að flagga því að óþörfu. Það gæti mis- skilist," segir hann kíminn. Um þær mundirvann Sveinn hálft starf í hálfan vetur hjá endurskoð- unarstofunni N. Mancher & Co. Aðspurður hvort Sveinn Arason ríkisendur- skoðandi hann hafi líka unnið með hálfum huga hristir hann höfuðið hlæjandi. „Nei, það gerði ég nú ekki en það var dýrmætt að öðlast svolitla stofu- reynslu. Ég kynntist líka ágætu fólki þarna." Sveinn unni hag sínum vel hjá Ríkisendurskoð- un og sneri sér eftir reynsluna hjá Mancher al- farið að störfum sínum þar. „Ég hef unnið mig hægtog bítandi upp hérna, veriðfulltrúi, deildar- stjóri, skrifstofustjóri og nú í því starfi sem ég gegni í dag. Þetta hefur verið ágæt sigling." Fyrsta áratuginn eða svo sem Sveinn starfaði sem löggiltur endurskoðandi segir hann Ríkis- endurskoðun aðallega hafa fengist við „gamal- dagsfjárhagsendurskoðun" en á þeim tíma heyrði hún undir fjármálaráðherra. „Hlutverk okkar var að fara yfir bókhald og fylgiskjöl stofnana og fyrir- tækja. Að því búnu gáfum við út kvittun og gerð- um athugasemdir ef tilefni var til. I kjölfarið var viðkomandi stofnun látin svara athugasemdum. Ef við töldum að menn hefðu ráðstafað fjármun- um með óviðeigandi hætti kom fyrir að þeim var gert að endurgreiða þá. Það var þó sjaldgæft. Al- gengara var að menn fengju áminningar og þeim sagt að gera þetta ekki aftur." Árið 1987 varðgjörbreyting á högum Ríkisendur- skoðunar þegar hún var gerð að sjálfstæðri stofn- un á vegum Alþingis sem skyldi vera óháð hand- höfum framkvæmdavaldsins. „Við þetta opnaðist stofnunin mikið," útskýrir Sveinn. „Nú erum við mikið í sambandi við þingið en það var nánast ekkert áður. Stærsta breytingin er þó líklega að til varð svokölluð stjórnsýsluendurskoðun. Þeirri vinnu lýkur alltaf með skýrslu- eða álitsgerð sem gerð er opinber. Þær skýrslur vekja oft mikið umtal og athygli í þjóðfélaginu, eins og dæmin sanna." FLE l>iMu janúar 2009 • 5

x

FLE fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.