FLE fréttir - 01.01.2009, Síða 7

FLE fréttir - 01.01.2009, Síða 7
SME rá&stefna í Kaupmannahöfn í byrjun september var haldin ráðstefna í Kaup- mannahöfn um SME1/SMP2 á vegum FEE3, NRF4 og SR5. Árlega er haldin ráðstefna á vegum þess- ara aðila um hin ýmsu málefni sem áhugaverð eru fyrir þá sem starfa við endurskoðun. Meginþema ráðstefnunnar var lítil og meðal stór fyrirtæki og endurskoðunarskrifstofur. Athyglivert var að sjá að mjög margir aðilar voru frá alþjóðlegu end- urskoðunarstofunum. Kom það fram í kynning- um þeirra að mjög margar skrifstofur eru út á landsbyggðinni sem tilheyra alþjóðlegu skrifstof- unum en þar starfa 10 til 20 manns. Fyrirtækin sem þau þjóna og oft á tíðum endurskoða hafa jafnvel 5 manns starfandi eða færri. Formið á ráðstefnunni var mjög áhugavert þar sem fyrst var haldin almenn kynning en síð- an var ráðstefnugestum skipt upp í vinnuhópa þar sem farið var dýpra í einstök málefni. Með því móti var hægt að velja hóp sem hentaði áhugasviði hvers og eins. Við stöllur ásamt Þórdísi Guðmundsdóttur hjá Skil sf., vorum einu íslensku ráðstefnugestirn- ir sem tilheyra endurskoðunarstofum sem ekki flokkast undir alþjóðlega endurskoðunarskrif- stofu. Teljum við það mikilvægt að minni stof- urnar sæki slíkar ráðstefnur til þess að mynda tengsl við starfsfélaga erlendis og gera sér grein fyrir að okkar vandamál eru ekki svo ólík þeirra vandamálum. Má segja að félagslegi hluti ráð- stefnunnar hafi ekki síður verið mikilvægur, þ.e. ef einstaklingurinn er duglegur að setjast til borðs og/eða mynda tengsl við aðila sem ekki tilheyrir beint hans þægindahring. Málefni ráðstefnunnar voru eftirfarandi: Áskorun hnattvæðingar fyrir SME. Hér var umræðan meðal annars um hvaða hlutverk endur- skoðandinn getur leikið til þess að styðja við vöxt og þróun á litlum fyrirtækjum sem fara t út- rás og hverjar eru þarfir þeirra varðandi skýrslu- gjafir. Það kom fram að endurskoðendur eiga að hlusta og taka eftir því hverjar eru þarfir við- skiptavinarins, fyrirtæki vilja traust. Lítil endur- skoðunarfyrirtæki eiga að mynda gott tengsla- net og viðhalda því. IFRS6 fyrir SME. Hér var rætt um þá vinnu sem hefur verið lagt í varðandi einföldun á stöðl- um fyrir SME því að mörgum finnst IFRS of viða- mikið regluverkfyrir lítil félög. Þegar hér var kom- ið áttum við í vandræðum með að skilja Fran- coise Flores (stjórnarformaður EFRAG7), hann talaði ensku en með miklum frönskum hreim svo efnið komst ekki alveg til skila. En umræðan var um þörfina á einfaldari reikningsskilareglum fyrir lítil félög. Það kom fram að meðal þeirra reglna sem mætti einfalda fyrir minni félög væru: tekju- skattsskuldbinding, afskrift á viðskiptavild í stað virðisrýrnunarprófs, sleppa jafnvel kröfum um gerð samstæðu eða draga úr þeim, gagnsæi fyrir raunvirði og gefa út viðmið varðandi þau. Fjárfesting og fjármögnun félaga. Ræðu- mennvorum.a.,Ph.dGeirA.Gunnlaugssonstjórn- arformaður í Promens hf. og Halldór J. Kristjáns- son þáverandi bankastjóri í Landsbanka fslands. Undir þessum lið var fjallað um reynslu félaga af fjárfestingum erlendis í minni félögum, reynslu af endurskipulagningu, fjármögnun og hvernig tek- ist er á við alþjóðlegt regluverk og frávik þess frá staðbundnum lögum hvað reikningsskil varð- ar. Síðan var fjallað um aðstoð við áreiðanleika- kannanir, mat og samningagerð við fjárfesting- ar og sú spurning var lögð fram hvert er hlutverk endurskoðandans í þessu sambandi og hverjar eru væntingar minni félaga til endurskoðandans. Að þessu loknu var skipt upp í vinnuhópa og þá gátu ráðstefnugestir valið einn af fjórum. Önnur okkarvaldi, Áhrifaríka endurskoðun á SME. Ræðumenn hér lögðu fram eftirfarandi spurningarnar: Er það skilvirkt til endurskoðunar að taka upp ISA? Ætti nálgun endurskoðunar að vera breytileg eftir því hver stærð og einkenni fyrir- tækisinseru? Er þörf fyrirönnur stuðningstæki og hvernig ættu þau að vera? Einnig var rætt um reynslu þeirra sem hafa notað IFAC8 leiðbeining- ar til þess að nota ISA9 við endurskoðun á minni félögum og að lokum hverjar eru væntingar og kröfur endurskoðenda til skilvirkari endurskoð- unar á minni félögum. Menn voru ekki sammála um hvort endurskoða ætti minni félög í samræmi við ISA eða ekki. Ef það ætti að breyta einhverju þá yrði að byggja á áhættumati við endurskoðun á SME og ná meginþemanu úr endurskoðunar- stöðlunum. Það er mikilvægt að til séu tæki til að einfalda verkflæðið, þau þurfa aðvera einföld í notkun og sveigjanleg. Það ætti ekki að taka Sigríður Ármannsdóttir endurskoðandi og Þorbjörg Kolbeinsdóttir APaL ehf, endurskoðun og ráðgjöf FLE {nétíirí janúar 2009 • 7

x

FLE fréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.