FLE fréttir - 01.01.2009, Page 10

FLE fréttir - 01.01.2009, Page 10
skoðenda, um 30%, sem hafa aflað sér réttinda en eru ekki praktíserandi, heldur vinna t.d. sem fjármálastjórar hjá fyrirtækjum. Sumir þeirra viðhalda réttindum sínum en aðrir leggja þau inn og í þeim hópi gæti fjölgað núna í kjölfar breytinganna, þar sem kröfurnar eru að aukast og það er orðið dýrara að viðhalda réttindunum. Að lokum eru það svo þeir sem eru komnir á ald- ur og hættir störfum. Hjartans mál að félagið sé fyrir alla sem hlotið hafa löggildingu „Félag löggiltra endurskoðenda vill leggja áherslu á að félagið sé fyrir alla þá sem hlot- ið hafa þessi réttindi, hvort sem menn hafa lagt þau inn eða ekki, það er okkur mikið hjartans mál" segir Margret með augljósum þunga. „I hópi þeirra sem ekki eru praktíserandi eru marg- ir fróðustu menn landsins um reikningsskil og þeir skapa vettvang umræðu og þróunar í fag- inu. Grunnhlutverk okkar endurskoðenda er að skoða ársreikninga og staðfesta réttmæti þeirra en við erum líka mestu sérfræðingarnir í reikn- ingsskilum. Enginn annar aðili í samfélaginu hefur gert reikningsskil að sinni sérgrein." Brýnt að löggildingin sjálf sé metin að verðleikum Burtséð frá mikilvægi þess að sinna ákveðnum skyldum varðandi endurmenntun og tryggingar, þá eru mikil verðmæti fólgin í því að fá löggild- ingarpróf sem endurskoðandi. Það er meiri við- bót í því en öðrum sambærilegum réttindapróf- um. „Sem dæmi þá fara t.d. tveir til þrír mánuðir á hausti í undirbúning og svo þarf þetta þrjá til fjóra umganga í að Ijúka prófinu. Fæstum tekst að Ijúka því á einu bretti og algengast að það sé gert í þremur áföngum." Margret bætir því við að eins og sakir standa þá megi einungis þeir kalla sig endurskoðendur sem sinna kröfunum um endurmenntun og tryggingar osfrv. „Þess vegna er það mjög aðkallandi að finna lausn á því að þeir sem Ijúka löggildingarprófi fái við- hlítandi titil." Á undanförnum uppgangstímum hefur verið gríðarleg spurn eftir endurskoðendum og þótt þessi viðsnúningur hafi orðið í efnahagslífinu þá hefur eftirspurnin síst minnkað. „Ég er stolt af því að fylgjast með því hvernig skilanefndir og Fjármálaeftirlitið sogar til sín þessa starfskrafta núna. Það segir sína sögu um hvað mikil þekk- ing er til staðar hjá þeim sem hafa þessa mennt- un og reynslu," bætir Margret við máli sínu til stuðnings. Höfum augljóslega verið á réttri braut I kjölfar lagabreytinganna hefur félagið ver- ið með stefnumótunarvinnu sem hefur falist í því að skoða félagið í heiid, fyrir hverja það er og hvaða þjónustu félagið vill fá. Margret seg- ir það Ijóst að fyrir utan lagabreytingarnar hafi sú skoðun ekki leitt til neinna stórfelldra breyt- inga. „Það sýnir glöggt að við höfum verið á réttri braut," og fer ekki á milli mála hve málefni félagsins eru henni hugleikin. Meginniðurstöður þessarar vinnu eru því engar U-beygjur, heldur frekar að bæta þurfi ýmsa þætti og leggja frek- ari áherslur á aðra. Eins er Ijóst að til þess að geta sinnt þessu þarf aukinn mannskap. Und- anfarið hefur félagið verið með 2 starfsmenn í hlutastarfi en nú hefur verið ákveðið að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf og þarf viðkom- andi að vera endurskoðandi. Þessum starfs- manni er ætlað að sjá um endurmenntunarþátt- inn auk margra þeirra verkefna sem hafa hvílt á faglegum framkvæmdastjóra, formanni og stjórn félagsins. Margret fyrsta konan sem veröur formaður FLE Félag löggiltra endurskoðenda var stofnað árið 1935 og verður því 75 ára árið 2010. Halda á upp á það með því að skrifa sögu félagsins og gera endurskoðendatal og er hvort tveggja í vinnslu. Margret var kjörin formaður félagsins árið 2007 og jafnframt fyrsta konan til að gegna þeirri stöðu. Hún segir að sér hafi verið afar vel tekið þótt endurskoðendur hafi óneitanlega tal- ist hefðbundin karlastétt hingað til. Sem dæmi fékk fyrsta konan ekki löggildingu fyrr en um miðjan áttunda áratuginn. „Þátttaka kvenna er að aukast - kynjahlutfallið er greinilega að jafnast a.m.k. í stærri fyrirtækjunum," segir Mar- gret brosandi en tjáir sig ekki meira um jafn- réttismálin. „Það hefur verið mjög gaman að vinna fyrir félagið," segir hún að lokum á sinn yfirvegaða og hógværa hátt. „Þetta er þakklátt starf." / \ An accountant visited the Natural History museum. While standing near the dinosaur he said to his neighbor: „This dinosaur is two billion years and ten months old". „Where did you get this exacf information?" „I was here ten months ago, and the guide told me that the dinosaur is two billion years old." What's an accountant's idea of trashing his hotel room? Refusing to fill out the guest comment card. When does a person decide to become an accountant? When he realises he doesn't have the charisma to succeed as an undertaker. If an accountant's wife can't get to sleep, what does she say? „Tell me about work today, dear" L____________________________________________________________________________> 10» FLE þuUliA. janúar 2009

x

FLE fréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.