FLE fréttir - 01.01.2009, Side 12

FLE fréttir - 01.01.2009, Side 12
Lagt við hlustir Stjórn félagsins tók strax þá stefnu að félagið skuli eftir sem áður vera fyrir alla þá sem hlotið hafa löggildingu sem endurskoðendur á (slandi óháð því hvort þeir hafa lagt inn réttindi sín eða ekki. Það þýðir að nauðsynlegt er að skilgreina þjónustu félagsins með tilliti til þess að þessir hópar kunni að hafa mismunandi þarfir. I október var haldinn vinnufundur félags- manna þar sem fjallað var um þá þjónustuþætti sem félagið á að veita bæði með tilliti til lag- anna og út frá þeim þörfum sem einstakir hópar félagsmanna kunna að hafa. Á vinnufundinum var þátttakendum skipt í 6 hópa. Hóparnirgerðu svo grein fyrir sínum niður- stöðum og vangaveltum í lok fundarins. Niður- stöður hópanna leiddu í Ijós að grunnskilningur félagamanna á tilgangi og uppbyggingu félags- ins er mjög í takt við þá stefnu sem stjórn félags- ins hefur tekið. Hópurinn sem fjallaði um endurmenntun lagði áherslu á að tryggja þyrfti framboð og fjöl- breytni og lagði til að ráðinn yrði endurmennt- unarstjóri. Þá varpaði hópurinn fram ýmsum spurningum og vangaveltum varðandi skilgrein- ingar á því hvað væri staðfestanlegt, hvernig eftirliti yrði háttað og aðkomu FLE að því auk þess sem rætt var um ráðstefnur félagsins. Þessi atriði eru nú komin á verkefnalista sem bíður nýrrar stjórnar. Niðurstöður hópsins voru því á sömu nótum og stjórn hefur rætt um. Þ.e. að nauðsynlegt sé að leggja enn aukna áherslu á menntunarmálin og Ijóst að það þýðir auknar kröfur til félagsins og kallar á aukið vinnuframlag af hálfu starfs- manna félagsins hvort sem það er með fjölg- un eða auknu starfshlutfalli. Það er því Ijóst að ekki verður brugðist við nýjum lögum og þörf- um félagsmanna til endurmenntunar nema með auknum tilkostnaði af hálfu félagsins. Hópurinn sem fjallaði um grunnmenntunina velti því fyrir sér hvort félagið eigi að koma að grunnmenntuninni á einhvern hátt, hvort það sé ekki hlutverk hins opinbera. Það er Ijóst að félagið hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að koma að grunnmenntuninni í neinum mæli jafn- vel þó það vildi blanda sér í þetta hlutverk rík- isins. En hinu má ekki gleyma að þrátt fyrir að grunnmenntunin sé ekki í höndum FLE hefur allt frumkvæði í menntun stéttarinnar í gegnum áratugina komið frá FLE. Varðandi Námsstyrkja- sjóð velti hópurinn því fyrir sér hvort hlutverk sjóðsins væri of þröngt skilgreint, hvort breyta þyrfti markmiðum hans eða jafnvel leggja hann niður. Hópurinn benti á að breyttar þjóðfélags- aðstæður gerðu það áhugaverðara en áður að sækja sér framhaldsmenntun og því væri e.t.v. rétt að halda sjóðnum óbreyttum næstu árin og taka málið upp síðar í Ijósi reynslunnar. Það virð- ist tímabært að huga að breytingum á sjóðn- um í því skyni að nýta fjármuni hans stéttinni til framdráttar. Stjórn FLE hefur farið þess á leit við stjórn Námsstyrkjasjóðs að hún fari yfir mark- mið sjóðsins og komi með tillögur til breytinga ef henni sýnist þörf á því. Að svo stöddu liggja því ekki fyrir neinar tillögur um breytingar á skipulagsskrá sjóðsins. Þriðji hópurinn fékk það verkefni að fjalla um hlutverk félagsins við hagsmunagæslu í víðum skilningi. Hlutverk félagsins er að gæta hags- muna stéttarinnar sem heildar og koma fram fyrir hennar hönd en ekki einstakra félags- manna. Einnig þarf félagið að standa vörð um starfsheitið og reyna að auka skilning á þeim mismun sem er á milli endurskoðenda og ann- arra sem starfa við uppgjör og skattframtöl svo dæmi séu nefnd. Hópurinn sem fjallaði um hlut- verk félagsins í upplýsingamiðlun taldi mjög gott að félagið dreifði upplýsingum um laga- breytingar og dómsúrskurði til félagsmanna. Þá taldi hópurinn mikilvægt að hægt væri að nálg- ast staðla og slíkt í gegn um vef félagsins. Það er Ijóst að upplýsingamiðlun félagsins til félags- manna um ýmislegt sem fag þeirra og störf varð- ar er mikilvægur þáttur í starfi félagsins og er nauðsynlegt að lögð verði áhersla á að gera hana eins gagnlega en um leið eins markvissa og kostur er. Hópurinn sem fjallaði um faglega starfið taldi að félagið ætti að beita sér fyrir, annars vegar kynningu og hins vegar túlkunum á stöðlum og lögum. Rætt var um áhrif á mótun alþjóðlegra starfa og bent á að slíkt gerðist fyrst og fremst í gegn um NRF. Hópurinn taldi að FLE ætti að vera sá aðili sem fjallaði um reikningsskil á fagleg- an hátt í samfélaginu og kom með þá athyglis- verðu hugmynd að reikningsskilanefnd félags- ins yrði víkkuð út með þátttöku annarra svo sem þeirra sem starfa við reikningsskil og fræði- manna. Hugmyndin um útvíkkun reikningsskila- nefndarinnar er mjög áhugaverð. Það þarf þó að horfa til þess að flestir bestu reikningsskilamenn landsins eru félagsmenn í FLE hvort sem þeir eru starfandi endurskoðendur, starfandi við reikn- ingsskil úti í fyrirtækjunum eða fræðimenn. Eft- ir sem áður gæti það orðið reikningsskilum til framdráttar á íslandi ef aðrir aðilar tækju beinan þátt í störfum reikningsskilanefndar FLE. Engar tillögur liggja þó fyrir um breytingu á reiknings- skilanefndinni í þessa veru enda þyrfti áður en til 12» FLE j/iMin janúar 2009

x

FLE fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.