FLE fréttir - 01.01.2009, Qupperneq 14
ingu varð veruleg breyting á starfsemi félags-
ins. Faglegur framkvæmdastjóri sinnir ýmsum
faglegum málum svo sem vinnu fyrir fagnefnd-
irfélagins, samskiptum innan NRF, samskiptum
við fjármálaráðuneytið og skattayfirvöld, auk
annarrar faglegrar vinnu. Með faglegum fram-
kvæmdastjóra hefurvinna formanns og varafor-
manns vegna ýmissa verkefna í þágu félagsins
breyst, en helsti ávinningur með ráðningu hans
er sá að félagið er nú mun virkara í allri faglegri
vinnu. Með auknum verkefnum félagsins, ekki
síst á sviði endurmenntunar hefur verið ákveðið
að ráða faglegan framkvæmdastjóra í fullt starf
á næsta ári. Gunnar Sigurðsson sem gengt hef-
ur því starfi frá upphafi hefur ákveðið að láta
af störfum snemma árs 2009. Á næstunni mun
stjórn félagsins því auglýsa eftir nýjum fram-
kvæmdastjóra og telur stjórnin nauðsynlegt að
til starfsins veljist löggiltur endurskoðandi.
( nýjum lögum um endurskoðendur eru talin
upp þau verkefni sem FLE ber að sinna en jafn-
framt tiltekið að heimilt sé að stofna sérstaka
félagsdeild til að sinna öðrum verkefnum. FLE
hefur í 73 ára sögu sinni starfað sem ein heild og
því væri það stórt skref að breyta því fyrirkomu-
lagi. Stjórn félagsins telur að þau verkefni sem
félagið hefur sinnt og hefur í hyggju að sinna
rúmistöll innan upptalningar laganna. Hins veg-
ar er nauðsynlegt að tryggja að skipulag félags-
ins sé óvéfengjanlega í samræmi við lög m.t.t.
skylduaðildarinnar jafnframt því sem það tryggi
hagsmuni félagsmanna sem best. Það er því
verkefni nýrrar stjórnar að nýta þann tíma sem
eftir lifir árs þar til nýju lögin taka gildi að skoða
þennan þátt gaumgæfilega og leggja fram til-
lögur til breytinga verði þess talin þörf.
Formaður hvatti félagsmenn til að vera
ófeimna við að koma hugmyndum sínum og til-
lögum á framfæri - með því móti verður FLE
áfram sá styrki vettvangur og bakhjarl íslenskra
endurskoðenda sem það hefur verið í yfir 70 ár.
Skýrsla faglegs framkvæmdastjóra
Gunnar
Sigurðsson
endurskoðandi
fagtegur fram-
kvæmdastjóri FLE
Gunnar Sigurðsson, faglegur framkvæmdastjóri
FLE flutti yfirlit um störf á vegum félagsins á
árinu:
Hér á eftir verður einkum fjalla um fagleg
efni sem hafa komið inn á mitt borð í samstarfi
við norrænu endurskoðunarfélögin, og önnur
áhugaverð mál.
Fyrst vil ég nefna mál sem hefur verið nokk-
uð lengi í umræðunni, en það er takmörkun á
skaðabótaábyrð endurskoðenda, en ég hef áður
fjallað um málið og greint ykkur frá niðurstöð-
um norrænsvinnuhóps, sem sendi frá sérskýrslu
um það fyrir um tveimur árum síðan. Þetta hef-
ur einnig verið á dagskrá hjá ESB og FEE og nið-
urstaðan er sú að ESB hefur nú nýlega gefið út
Tilmæli um takmörkun
á skaðabótaábyrgð
endurskoðenda
Helstu forsendur fyrir takmörkun á skaðabóta-
ábyrgð endurskoðenda eru að starfsemi verð-
bréfamarkaða og lánastofna byggja m.a. á því
að viðskiptaaðilar þeirra, skráð fyrirtæki, hafi
aðgang að endurskoðunarþjónustu á markaði
sem tryggi eðlilega samkeppni endurskoðunar-
fyrirtækja og að endurskoðunarfyrirtækin séu
fús að veita slíka þjónustu. Þróun viðskiptahátta
og aukin alþjóðleg starfsemi skráðra fyrirtækja,
aðstæður á hinum alþjóðlega fjármálamarkaði,
ásamt sókn þeirra eftir fjármagni frá almenningi
hefur leitt til aukinna áhættu á ýmsum sviðum í
rekstri þeirra. Áhætta endurskoðunarfyrirtækja
þeirra hefuraðsama skapi aukist, þannig að sífellt
verður erfiðara fyrir endurskoðunarfyrirtækin að
tryggja sig fullkomlega gegn skaðabótakröfum
sem kynnu að vera settar fram gagnvart þeim ef
eitthvað fer úrskeiðis í rekstri þessara fyrirtækja.
Hætta er á að slíkar skaðabótakröfur geti kom-
ið fram í þeim mæli að endurskoðunarfyrirtæk-
in eða tryggingarvernd standi ekki undir þeim.
Þau geti því liðið undir lok, en það hefur í för
með sér að endurskoðunarfyrirtækjum sem eru
einkum á þessu markaði, hin fjóru stóru, fækk-
ar, sem aftur getur leitt til þess að ekki er tryggt
að skráðu fyrirtækin hafi nægan aðgang að
hæfri endurskoðunarþjónustu og eins að sam-
keppni milli endurskoðunarfyrirtækjanna minnki
sem getur haft alþekkrar afleiðingar í för með
sér fyrir skráðu fyrirtækin. Einnig hamlar hætta
á himinháum skaðabótakröfum því að önnur
minni endurskoðunarfyrirtæki fari inn á þennan
markað, eins og æskilegt væri við slíkar aðstæð-
ur. Tilmælunum er því ætlað að koma í veg fyrir
14» FLE Itéili*. janúar 2009