FLE fréttir - 01.01.2009, Blaðsíða 16
Fyrrum formenn FLE þeir Sigurður B. Arnþórsson, Þorvarður Gunnarsson og Simon Á. Gunnarsson.
I þessu löndum velta endurskoðendur fyrir sér
hvort hægt sé að bjóða fram nýja þjónustu í stað
endurskoðunar. Helst hefur komið til greina að
í stað endurskoðunar komi lögboðin „review"
eða könnun reikningsskila í samræmi við ISA
reglur, en slík könnun reikningsskila er almennt
notuð og viðurkennd „markaðsvara" í löndum
eins og Kanada og BNA.
I Danmörku hefur þessi umræða verið lífleg,
en mörgum þar finnst þó að könnunaráritun á
reikningsskil virki of neikvæð eftir orðalagi henn-
ar og hefur danska félagið því sett af stað vinnu
við að útbúa nýjan staðal með það að markmiði
að vinna enduskoðandans samkvæmt staðlinum
geti gefið áritun á reikningsskil sem veiti með
jákvæðum hætti meiri tryggingu gagnvart les-
endum reikningsskila en könnunaráritun, en þó
minni en fyrirvaralaus áritun .
Fróðlegt verður að fylgjast með niðurstöðum
þessa vinnuhóps en þeirra er að vænta um eða
eftir næstu áramót.
Endurskipulagning Norræna
endurskoðendasambandsins
(NRF)
NRF sem eru líklega elstu fjölþjóðlegu samtök
endurskoðenda, stofnuð árið 1935, hafa geng-
ið í gegn um margar „uppfærslur" gegnum árin
síðan þau voru stofnuð og standa nú frammi
fyrir einni slíkri nú um stundir. Aðdragandinn er
fyrst og fremst sá að Björn Markland sem hef-
ur verið framkvæmdastjóri sambandsins síð-
an 2004, þegar hann varð fyrsti framkvæmda-
stjóri þess í föstu starfi, lætur af störfum á miðju
næsta ári. Auk þess má gera ráð fyrir flutningi
á skrifstofu sambandsins við ráðningu nýs fram-
kvæmdastjóra frá öðru Norðurlandanna. Björn
hefur auk framkvæmdastjórastarfsins verið
tæknilegur ráðgjafi Svíans Göran Tidsström,
sem hefur átt sæti í stjórn IFAC um nokkurra ára
skeið. Rétt þykir því að fram fari nokkurs konar
úttekt á starfi sambandsins m.a. hvort auka eigi
starfsvið framkvæmdastjórans og starfshlutfall
hans en Björn hefur verið í hálfu starfi. Stefnt er
að því að gera það sem kallað er á góðri nor-
rænu „business plan" en helstu þættir í starf-
semi sambandsins hafa verið:
í fyrsta lagi sameiginleg þátttaka fulltrúa
NRF í alþjóðlegum samtökum, FEE, IFAC. NRF
hefur valið sameiginlega fulltrúa í stjórnir og
nefndir FEE og IFAC. Fulltrúarnir koma ávallt
fram sem fulltrúar NRF en ekki einstakra landa
innan sambandsins. Með þessum hætti hefur
verið talið að slíkt yki líkur á kjöri þeirra þeg-
ar margir aðrir eru í „framboði", sem titt er
og auk þess að rödd þeirra vegi meira í fjöl-
þjóðlegu starfi. Eins og er á NRF einn af fram-
kvæmdastjórum FEE og stjórnarmann í IFAC.
Gert er ráð fyrir að stjórnarmaður NRF í IFAC
verði kosinn varaforseti þess til næstu tveggja
ára og síðan forseti þess næstu tvö árin þar á
eftir. Einnig á NRF fulltrúa í ýmsum nefndum
IFAC, svo sem IAASB (auditing), IAESB (educa-
tion), IESBA (ethics), IPSASB (public sector),
CAP (compliance) og SMPC (small and medi-
um-sized practices).
Þá er mikilvægur þáttur í starfi NRF miðlun
upplýsinga og skoðanaskipti innan NRF. Miðlun
upplýsinga innan NRF fer fram með ýmsu móti,
svo sem með reglulegum símafundum fram-
kvæmdastjóra félaganna, fundum formanna
félaganna að minnsta kosti tvisvar á ári og sam-
skiptum milli einstakra fagnefnda þegar tilefni
er til. Lagt er til að samstarf einstakra fagnefnda
verði aukið og það tengt nánar starfi fulltrúa
NRF í fagnefndum IFAC. Rætt er um að fulltrú-
ar NRF haldi símafundi við undirbúning funda
IFAC með fulltrúum fagnefnda norrænu land-
anna með það fyrir augum að þeir hafi mögu-
leika á að ræða þau mál á fundunum við fulltrúa
NRF sem skipta aðilarfélög NRF mestu máli. Að
fundi loknum geti þeir síðan skipst á upplýsing-
um um framgang einstakra mála.
Þá má næst nefna vinnu við sérstök sameig-
inleg verkefni í vinnuhópum. Lagt er til að hug-
að verði enn frekar að myndun sameiginlegra
vinnuhópa um einstök afmörkuð verkefni, sem
annað hvort hefur ekki verið sinnt af IFAC eða
FEE eða þau hafa verið á dagskrá hjá alþjóða-
samtökunum en þau ekki tekið tillit til sérstakra
16» FLE l>iéttiA. janúar 2009