FLE fréttir - 01.01.2009, Page 19
Veislan smærri í sniðum
Þegar leitað er hófanna um samtal við Sig-
urð Álfgeir Sigurðarson, löggiltan endurskoð-
anda hjá Deloitte á Egilsstöðum, hefur kappinn
brugðið sér af bæ. „Hann er að skjóta rjúpu,"
segir samstarfsmaður. Enda föstudagur á Hér-
aði. „Þú nærð honum á mánudaginn."
Það stendur heima. „Það fer afskaplega vel
saman að vinna sem löggiltur endurskoðandi og
skjóta rjúpu," útskýrir Sigurður.
Nú?
„Mesta álagið í endurskoðuninni er á vorin en
rjúpnaveiðitímabilið er á haustin."
Alveg rétt!
Ekki þarf að koma á óvart að Sigurður er ómeng-
að náttúrubarn enda uppalinn í sveit, nánar til-
tekið á bænum Kollafjarðarnesi á Ströndum. „Ég
hef alla tíð búið úti á landi enda þykir mér það
meira heillandi en að búa á höfuðborgarsvæð-
inu, ekki síst þegar maður er með börn. Að auki
hef ég takmarkaða þörf fyrir allar þessar búðir."
„Ég fór í viðskiptafræði vegna peninganna
eins og flestir aðrir," segir Sigurður spurður
hvers vegna hann hafi lagt endurskoðun fyrir
sig. „Svo varð ég áhættufælnari og fór í eftirlits-
hlutverkið í stað þess að vera í framlínunni. Ég
sé ekki eftir því í dag."
Sigurður segir reikningsskilin fljótlega hafa
heillað sig í náminu við Háskóla Islands en hann
lauk viðskiptafræðiprófi árið 2004. Á lokaárinu
vann hann um skamma hríð hjá Deloitte í Reykja-
vík með námi en áramótin 2003/04 lá leið hans
til Egilsstaða. „Konan ber alla ábyrgð á því, hún
er héðan. Ég er raunar búinn að vera með annan
fótinn á Egilsstöðum frá árinu 1998."
Sigurður sinnir verkefnum víða um land, samt
aðallega á Austurlandi. Hann kemur lítið suður
til að glíma við verkefni. „Ég fer mest megnis til
Reykjavíkur vegna ýmis konar fundarsetu og í
kurteisisheimsóknir. Ef til vill væri æskilegt að
fara oftar suður og glíma við stærri og flóknari
verkefni, hér hefur hins vegar verið nóg að gera
samhliða allri þeirri uppbyggingu sem átt hefur
sérstað á Austurlandi."
Sigurður segir viðskiptavini Deloitte á Austur-
landi vera úr nær öllum geirum viðskiptalífsins,
fyrirtæki eru þó að jafnaði smærri á landsbyggð-
inni en á höfuðborgarsvæðinu. „Þetta þýðir að
við þurfum að vera með puttana í flest öllu sem
viðkemur faginu, það gerir starfið í senn fjöl-
breytt og skemmtilegt."
Mikið er lagt upp úr endumenntun og miðlun
þekkingar hjá Deloitte auk þess sem vandalaust
er að leita álits hjá sérfræðingum fyrirtækisins,
innan lands sem utan. Enda af nægu að taka,
160 þúsund manns vinna hjá Deloitte víðsveg-
ar um heim.
Líf og fjör á heimilinu
„Mér líður rosalega vel hérna fyrir austan og vil
vera hér áfram," segir Sigurður þegar framtíð-
ina ber á góma. „Náist ekki jafnvægi í efnahags-
lífinu munu mörg fyrirtæki lenda í erfiðleikum
hér eins og annars staðar, þau standa samt mun
Sigurður Álfgeir
Sigurðarson
endurskoðandi
hjá Deloitte á
Egilsstöðum
betur að vígi en fyrir sunnan. Hér hefur veislan
verið smærri í sniðum og fyrir vikið úr lægri söðli
að detta."
Varla þarf að taka fram að Sigurður vinnur
mikið eins og aðrir í faginu. „Það er ekki hlaupið
að því að vinna hóflega langa vinnudaga þegar
mörg verkefni bíða."
En þegar hann er laus á fjölskyldan hug hans
allan. „Við eigum tvö börn, fjögurra ára strák
og tveggja ára stelpu, þannig það er líf og fjör
á heimilinu. Það er líka í mörg horn að líta hjá
frúnni en hún er íþróttafræðingur og er í fjar-
námi í stjórnun við háskóla í Bandaríkjunum.
Það er magnað hvernig möguleikar fólks til
náms hafa þróast. Líklegast verður eina er-
indi hennar til Bandaríkjanna að sækja próf-
skírteinið."
Eins og fram hefur komið skýtur Sigurður
rjúpu og raunar lætur hann ekki þar við sitja,
veiðir líka gæs, svartfugl og hreindýr. Auk þess
að fara á sjóstöng en Sigurður á lítinn bát ásamt
tengdaföður sínum og bróður hans. „Það er
allra meina bót að komast á sjóinn."
Nýr framkvæmdastjóri hjá FLE
Vildi drífa í löggildingunni
Sigurður fann sig strax vel í starfi hjá Deloitte
á Egilsstöðum undir leiðsögn Sigurðar H. Páls-
sonar endurskoðanda. Eftir að hafa unnið þar í
tæp þrjú ár reyndi hann við löggildingarprófin.
„Hvers vegna fór ég í prófin? Mér fannst ég bara
vera tilbúinn og vildi drífa í þessu. Ég tók fyrst
tvö próf og síðan aftur tvö og komst falllaust í
gegnum þetta. Próflesturinn var mikil törn."
Sigurður B. Arnþórsson hefur verið ráðinn fram-
kvæmdastjóri FLE. Sigurður var formaður félags-
ins á árunum 2003-2005 og er félaginu mik-
ill fengur í ráðningu hans. Gunnar Sigurðsson
faglegur framkvæmdastjóri síðustu fjögur árin
lét af störfum um áramótin og þakkar stjórn fé-
lagins honum gjöfult og gott samstarf.
Arnbjörg Guðbjörnsdóttir verður eftir sem
áður skrifstofustjóri í 60% starfi.
Sigurður B.
Arnþórsson endur-
skoðandi fram-
kvæmdastjóri FLE
FLE janúar 2009 • 19