FLE fréttir - 01.01.2009, Qupperneq 22
fjárfestis með tilliti til öflunar nauðsynlegra upp-
lýsinga úr rekstri fyrirtækja sem ekki liggja Ijós-
lega fyrir í ársreikningum þeirra. Hann taldi að
endurskoðandinn ætti, sem fulltrúi hluthafa,
að veita hluthöfum svör við slíkum spurning-
um á hluthafafundum ef eftir þeim væri leitað.
Stjórnir og stjórnendur, sem oftast ættu hags-
muna að gæta, sætu einir að upplýsingum frá
endurskoðanda sem gætu skipt smærri hluthafa
miklu máli.
Ráðstefnunni lauk kl. 14:30 og voru þátttak-
endur 236 að meðtöldum fyrirlesurum. Þrátt
fyrir að efni ráðstefnunnar hafi verið breytt
frá upphaflegri gerð og nýjir fyrirlesarar verið
fengnir inn nokkrum dögum fyrir ráðstefnudag,
teljum við að vel haf i tekist tii. Almennt var gerð-
ur góður rómur af framsetningu hennar og mál-
efnum.
Annað af borði
menntunarnefndar FLE
Starfsemi menntunarnefndarfram að næsta að-
alfundi 2009, mun að mestu vera með sama
sniði og hún var á undangengnu ári. Ráðstefnu-
dagar fyrir hinar hefðbundnu ráðstefnur hafa
verið ákveðnir þannig:
15. janúar NámskeiðFLE-
Reikningsskilanefnd
16. janúar Skattadagur FLE
16. apríl Námskeið FLE - Skattanefnd
17. apríl Endurskoðunardagur FLE
17. sept. Námskeið FLE —
Endurskoðunarnefnd
18. sept. Reikningsskiladagur FLE
12. nóv. Námskeið FLE - Gæðanefnd
13. -15. nóv. Haustráðstefna FLE
Reiknað er með að fyrstu þrjár ráðstefnur árs-
ins verði haldnar í Reykjavík með samsvarandi
hætti og undanfarin ár. Tillaga hefur komið
fram um að halda haustráðstefnu félagsins utan
Reykjavíkur og hefur Akureyri verið nefnd í því
sambandi. Síðasta ráðstefna sem haldin var út
á landi var á árinu 2003 en þá var hún haldin á
Akureyri. Við athugun virðist líklegt að Akureyri
sé eina bæjarfélagið utan Reykjavíkur sem getur
tekið á móti þeim fjölda þátttakenda sem líkur
eru fyrir að muni mæta ef litið er til fyrri slíkra
ráðstefna. Fljótlega munu félagsmenn fá send-
an könnunarlista í tengslum við þessa tillögu en
stjórn félagsins hefur fyrir sitt leyti samþykkt
þessa staðsetningu ef nægileg þátttaka fæst.
Eins og undanfarið ár munu stutt námskeið
verða haldin dagana fyrir framangreinda ráð-
stefnudaga þar sem ánægja virðist vera um
fyrirkomulagið enda þátttaka verið mjög góð.
Ef lagabreytingar verða gerðar, vegna fjárhags-
legra eða reikningslegra aðgerða, sem snúa
kunna að okkar fagi sérstaklega, kann að verða
sett inn námskeið í tengslum við slíkt.
Birt með leyfi höfundar.
Líáur yfir land og Laf,
lífsins æðsti dýrðarfriáur.
Allt ]}aá sem að Guá vor gaf,
geislar til oss kingaá niáur.
Kyrráin ríleir, leomin nótt,
leluleleur |>agna, sættir allar.
Alkvít jöráin andar rótt,
undan vetri kjartaá kallar.
Gefist framtíá gæskuklíá
gleáistundir vinamóta.
Áfram verái yndistíá,
alls kins kesta skulum njóta.
Bjarni Jónsson endurskoðandi
22 • FLE þuUli* janúar2009