FLE fréttir - 01.01.2009, Page 23
Ekki bundinn vib sömu þúfuna
Stétt löggiltra endurskoöenda á Austurlandi
óx fiskur um hrygg í lok síðasta árs þegar fjór-
ir viðskiptafræðingar sem þar hafa starfað luku
löggildingarprófi. Fram að því var aðeins einn
löggiltur endurskoðandi sem bæði bjó og starf-
aði á svæðinu. „Þetta voru mikil tíðindi. Það er
orðið vel messufært hérna fyrir austan," segir
einn fjórmenninganna, Magnús Jónsson, hress
í bragði en hann starfar hjá KPMG.
Magnús segir fjölgunina ánægjulega. Hún
komi til með að styrkja greinina til lengri tíma
litið. „Þetta er mikil innspýting en þess má þó
geta að ekki eru allir að vinna við fagið. Þannig
er ein sem kláraði löggildinguna um leið og ég
að vinna sem fjármálastjóri hjá sveitarfélaginu
Fjarðabyggð. Það eru ýmsir aðrir möguleikar en
að vinna á stofu enda eru löggiltir endurskoð-
endur eftirsóttur starfskraftur."
Magnús, sem er 32 ára að aldri, fór upphaf-
lega í lögfræði en fann sig ekki í því námi. „Ég
hef alltaf haft gaman af tölum og reikningi þann-
ig ég ákvað að prófa viðskiptafræðina," segir
hann en vettvangurinn var Háskóli (slands.
Eftir þriggja ára nám urðu breytingar á högum
Magnúsar þegar hann eignaðist sitt fyrsta barn.
„Þá ákváðum við konan mín að flytja búferlum
hingað til Egilsstaða en við erum bæði fædd og
uppalinn hér fyrir austan, ég á Borgarfirði eystri
og hún á Egilsstöðum. Ég hóf störf hjá KPMG og
kláraði fjórða árið í viðskiptafræðinni með vinnu.
Nú er ég svo kominn með löggildinguna."
Sex manns starfa hjá KPMG á Egilsstöðum en
auk þess rekur félagið Skrifstofuþjónustu Aust-
urlands (SKRA) í samstarfi við aðila á Egilsstöð-
um, Borgarfirði og Seyðisfirði, en SKRA sér-
hæfir sig í þjónustu við einstaklinga og smærri
fyrirtæki. „Starfssvæði okkar er frá Djúpavogi
norður á Þórshöfn, þannig við erum mikið á
ferðinni," segir Magnús.
Maöur staðnar ekki
Hann er líka í góðum tengslum við höfuðstöðv-
ar KPMG í Reykjavík. „Fyrirtækið reynir að láta
vinnuaflið fljóta þannig að mannskapurinn nýt-
ist sem best. Við fáum fólk austur og förum
sjálf suður til að sinna ákveðnum verkefnum
þegar þannig stendur á. Það er kosturinn við
að vinna hjá svona stóru fyrirtæki að maður er
ekki bundinn við sömu þúfuna. Samgöngur milli
Reykjavíkur og Egilsstaða eru líka góðar, þann-
ig það er þægilegt að fara á milli. Þetta trygg-
ir ennfremur fjölbreytileika í verkefnum. Maður
staðnar ekki."
Magnús segir starf endurskoðenda á margan
hátt fjölbreyttara úti á landi en á höfuðborgar-
svæðinu, þar sem verkefnin séu oft stærri og
krafan um sérhæfingu meiri. Þá sé nálægðin við
viðskiptamenn oft á tíðum mikil á landsbyggð-
inni þannig menn kynnist mörgu og ólíku fólki
víðsvegar á Austurlandi. „Stór hluti af okkar
verkefnum tengist opinberum aðilum, sveitarfé-
lögum og fyrirtækjum tengdum þeim. Annars
erum við að sinna fyrirtækjum af ýmsum stærð-
um og gerðum. Það sem gefur líka lífinu lit er að
maður er alltaf að hitta skemmtilega karaktera.
Upp til sveita og út til stranda eru menn nefni-
lega ekki allir steyptir í sama mótið."
Beðinn um að tilgreina galla við það að starfa
í dreifbýli nefnir Magnús helst skort á sérhæfin-
gu og að meiri hætta sé á því að fara á mis við
nýjungar í faginu. Á móti kemur að stóru stofur-
nar, svo sem KPMG, sjá starfsmönnum sínum
fyrir reglulegri og öflugri endurmenntun. „Það
er mikill kostur enda lykilatriði að vera vel tengd-
ur."
Hér er okkar bakland
Magnús unir hag sínum afar vel á Egilsstöðum
og gerir ekki ráð fyrir að færa sig um set í ná-
inni framtíð. „Auðvitað á maður aldrei að segja
aldrei en eins og sakir standa líður mér afskap-
lega vel hérna fyrir austan. Eydís, konan mín,
er líka í góðri vinnu og hér er frábært að ala
upp börn. Við eigum orðið þrjá syni á aldrinum
tveggja til sjö ára. Hér er okkar bakland og ekki
veitir af þegar vinnudagurinn er jafn langur og
í mínu fagi. Það er enginn maður með mönn-
um nema hann vinni öll kvöld og helgar," segir
Magnús Jónsson
endurskoöandi
hjá KPMG á
Egilsstöðum
Magnús og skellir upp úr. „Fyrir vikið er nauð-
synlegt fyrir löggilta endurskoðendur að eiga
góða konu og gott bakland. Öðruvísi gengur
þetta ekki upp."
Utan vinnu segir Magnús fjölskylduna hafa
forgang. Hann fer líka talsvert á veiðar, skýt-
ur rjúpu, gæs og hreindýr. Þá er Magnús mik-
ill íþróttaáhugamaður og hefur setið í stjórn
bæði körfuboltans og fótboltans í Egilsstöð-
um. „Síðan reynir maður að sprikla með gömlu
félögunum en eftir að rofaði til í atvinnumál-
um hérna eru fjölmargir Austfirðingar á mínum
aldri snúnir heim, fólk um og yfir þrítugt. Það er
mjög ánægjuleg þróun en þetta var ekki að ger-
ast fyrir örfáum árum. Fólk fékk einfaldlega ekki
vinnu við hæfi."
Tilkynningar til
félagsmanna FLE
Almenna reglan er sú að tilkynningar
um fundi og ráðstefnur á vegum FLE eru
sendar til félagsmanna með tölvupósti.
Félagsmönnum FLE sem óska eftir að fá
slíkar tilkynningar í almennum pósti er
bent á að hafa samband við skrifstofu
félagsins.
FLE þutíiA janúar 2009 • 23