FLE fréttir - 01.01.2009, Side 26

FLE fréttir - 01.01.2009, Side 26
Fyrra spakmæli dagsins er haft eftir hinum fræga bandaríska rithöfundi MarkTwain: „Golf ereyði- legging á góðum göngutúr". Mark Twain and- aðist árið 1910. Ef hann í dag bara vissi hversu margir einstaklingar um allan heim eru daglega að eyðileggja góðan göngutúr I Golfár endurskoðenda 2008 var ekki stórt í sniðum og viðburðir færri en oft áður. Enn þykir þó við hæfi en koma þvi helsta til skila í árlegum golfpistli þannig allir í félaginu, jafnt þeir sem leika golf sem og aðrir sem ekki hafa enn lát- ið golfdraum sinn rætast, megi verða sem best upplýstir um það sem gerist á þessum vettvangi. ((raun er hér um að ræða nákvæmlega sömu byrjun og í golfgrein síðasta árs.) Um langt árabil hafa liðsmenn golfdeildar FLE haft árlega keppni við annars vegar lög- menn og hinsvegarviðtannlækna. Keppninvið tannlækna fór fram í byrjun júlí á Kálfatjarnar- velli, Vatnsleysuströnd. Tannlæknar voru höfð- inglegir þetta árið og komu með nýjan bikartil að keppa um. Slíkum rausnarskap verður aðeins svarað á einn veg og lauk viðureigninni með sigri tannlækna. Þeir hafa löngum verið dug- legri við holufyllingar en við og það var okk- ar hlutskipti þetta árið að tapa með minnsta mun. Keppnin við lögmenn var haldin í byrjun júní á Hvaleyrarvelli og lauk þeirri viðureign með jafntefli og lögmenn halda því enn áfram þeim bikar sem lið þessara aðila hafa keppt um mörg undanfarin ár. Lögmenn náðu að sigra árið 2005 og hafa síðan haldið bikarnum með jafntefli eða þá að keppni hefur fallið niður. Þetta árið eru endurskoðendur án bikars og er orðið nokkuð um liðið síðan sú staða kom upp. Eins og alltaf í þessari íþrótt þá ríkir sá íslenski olympíuandi að meira virði sé að vera með en handleika verðlaun. Meðan endurskoðendur komu oftar saman í golfleik en nú er orðið, þá var Meistaramót FLE haldið í lok golftímabils sem einskonar ver- tíðarlok. Meistaramótið fór nú fram í 27. sinn fimmtudaginn 11. september á Korpúlfsstaða- velli (Korpuvelli). Korpúlfsstaðir í Reykjavík eiga sér merka sögu og er fyrst getið í Kjalnes- ingasögu. Þar er getið um Korpúlf bónda, gam- all maður og forn í brögðum. Korpúlfsstaðir var sjálfstæð jörð 1234, m.a. eign Viðeyjarklaust- urs, varð síðan eign konungs og seld árið 1810. Svo er lítið af jörðinni að frétta fyrr en kemur fram á 20. öld. Einar Benediktsson skáld eign- aðist jörðina við arf eftir föður sinn og seldi síð- Balbirnie House hótelið. Sigurður Tómasson, endurskoðandi og forseti alþjóðadeildar Golfhóps FLE an Thor Jensen jörðina árið 1922. Thor hóf strax miklarjarðabæturog búreksturog byggði húsið, semennstendur, árið 1929.1 þessu húsivar íbúð ráðsmanns og herbergi fyrir fjölda vinnufólks, stór matsalur fyrir 70 manns og svo fjós ásamt hlöðu fyrir 300 kýr þegar mest var. Fjósið var á þeim tíma talið hið fullkomnasta á Norðurlönd- um og túnið taldist vera 106 hektarar. Búrekstur stóð þó ekki lengi þarna því Alþingi sá til þess að samþykkja Mjólkursölulög árið 1934 sem voru eins og „hengingaról á mjólkurframleiðendur í Reykjavik og nágrenni" svo vitnað sé í kynningar- rit. Þetta var allt mikil pólítík og líklega ekki rétt að fjalla meir um slíkt í golfgrein. Búrekst- ur dróst því fljótt saman á Korpúlfsstöðum og lagðist af árið 1970. Reykjavíkurbær hafði keypt jörðina af Thor Jensen árið 1942 og hefur átt síðan. Enn þann dag í dag vekja byggingarnar á Korpúlfsstöðum athygli fyrir glæsileik og bera fagurt vitni um stórhug framkvæmdamanns. Og golfarar þeytast nú um túnin sem Thor lagði mikla vinnu í að rækta. Dagsetning meistaramótsins vakti athygli og kallaði á athugasemd athuguls golfara. Þeir sem þekkja til staðhátta við Korpuvöll vita að stórhýsið þar þjónar margskonar tilgangi og í nyrðri endandum hefir Golfklúbbur Reykjavík- ur sína aðstöðu við Korpuvöll. Við þann enda rísa 2 turnar viðfestir aðalbyggingunni — súrheys- turnar. Tvíburaturnar. Að halda golfmót í skugga tvíburaturna þann 11. september þótti bera vott um að mótshaldari vildi storka örlögunum. Varla hafa menn þó talið að súrheysturnarnir ættu eft- ir að lenda í árekstri við flugvél og hrynja yfir golfara þennan dag en þetta aðeins sett fram sem skemmtilegur og sérstakur áhittingur. En það var fleira eftirminnilegt sem skeði í Reykja- vík þennan dag, 11. september 2008. Ráðherra afhenti verðlaun fyrir Árskýrslu ársins 2007 og 26 • FLE f/iMiA. janúar2009

x

FLE fréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: FLE fréttir
https://timarit.is/publication/1809

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.