FLE fréttir - 01.01.2009, Side 28
Fjórir stæltir strákar mættir á teig.
sér í Michelin gæðastimpil á eldhúsið/ matseld-
ina / framreiðsluna þannig við upplífðum góða
matarhátíð þann tíma sem við dvöldum þarna.
Ferð til Skotlands er ekkert endilega farin til
að upplífa eitthvað sérstakt í matseld og því
kom þessi viðbót skemmtilega á óvart. Reynd-
ar svo að allan tímann heyrðist aldrei óánægju-
rödd með framborinn mat og er það reynsla út
af fyrir sig að aldrei skuli koma fram óánægju-
rödd með matinn í þetta stórum hóp. Kannski
er einu sinni ástæða til að nafngreina í golf-
grein alla þá endurskoðendur sem voru í þess-
um hópi og eru þeir þá nefndir I stafrófsröð:
Árni Tómasson (x), Guðjón Eyjólfsson (x), Guð-
laugur R. Jóhannsson, Guðmundur Frímans-
son, Guðmundur Hjaltason, Gunnar Hjaltalín
(x), Heimir Haraldsson, (var Guðmundsson (x),
Jón Þ. Hilmarsson (x), Jónatan Ólafsson, Ólafur
G. Sigurðsson, Ómar Kristjánsson (x), Sigurður
Tómasson (x), Stefán Franklín, Stefán Svavars-
son, Tryggvi Jónsson. Merkingin (x) fyrir aft-
an nafn þýðir að viðkomandi hefur farið í all-
ar 11 golfferðirnar til Skotlands eða alls 7 úr
hópnum. Frá upphafi hafa alls 27 endurskoð-
endur tekið þátt í þessum golfferðum til Skot-
lands, misoft hver og einn, allt frá 1 sinni til
11 sinnum.
Einn hluti af ferð okkar til Skotlands öll þessi
ár hefur verið að hitta skoska endurskoðendur
frá Edinborgarsvæðinu og eiga með þeim dag-
stund við golf og leik. Hefur aldrei brugðist að
þetta hafa verið ánægjulegir samfundir og oft
verið góðar stundir til að rifja upp fyrri ár og
kynni. Nú brá svo við að ákveðið var að sleppa
þessum samfundum og lágu til þess félagslegar
ástæður frekar en vanmáttur annars hvors að-
ilans við að mæta til golfleiks. Hinar félagslegu
ástæður skrifast annars vegar á aldursskiptingu
okkar hóps og tiltölulega stöðuga mætingu
sama hóps ár eftir ár og hins vegar sífellt yngri
þátttakendur frá skoskum endurskoðendum og
tíð mannaskipti, ný og ný andlit síðustu 2-3 árin
þannig okkur fannst við meir en áður vera á byrj-
unarreit í kynningarferli. Allt þetta var tíundað
nákvæmlega I póstskriftum við nýjan forsvars-
mann skoskra endurskoðenda og að teknu til-
liti til aðstæðna var það sameiginleg ákvörðun
beggja liðsstjóra að sleppa þessum samfund-
um árið 2008. Athuga málin betur vorið 2009
og athuga hvort skapa mætti grundvöll til að
halda þessum fundum áfram. Á þessari stundu
skal ósagt látið hvað framtíðin ber í skauti sér en
vissulega hefur þetta verið skrautfjöður í golf-
húfu hópsins frá FLE og ákveðinn söknuður ef
þetta fellur niður. Sumir segja einum sigrinum
færra fyrir FLE sem golfhóp I En hér skal aðeins
tíundað að móttaka skotanna öll þessi ár hef-
ur verið með eindæmum góð og við vissulega
fundið það að við vorum ávallt auðfúsugestir.
Sama er reyndar að segja um félagsmenn í Bal-
birnie golfklúbbnum þar sem við spiluðum alla 7
dagana í Skotlandi vorið 2008. Þeir höfðu á orði
að ef við kæmum aftur til Balbirnie þá þyrfti að
setja upp keppni milli félagsmanna golfklúbbs-
ins og þessa dagsfarsprúða golfhóps FLE frá ís-
landi. Hvort þessi góða ímynd okkar dugar í dag
eftir bankagosið 2008 vitum við að sjálfsögðu
ekki.
Seinna spakmæli þessarar greinar er haft eft-
ir Arnold Palmer og skrifast þannig : „Að fá að
leika golf í fögru umhverfi er hluti af því sem
golf snýst um". Þetta eru kannski ekki mik-
il spakmæli hjá einum frægasta kylfingi heims.
En þetta er til á prenti, haft eftir þessum mæta
manni, og greinarhöfundi fannst þetta viðeig-
andi endir á greininni þegar hann rifjar upp vel-
heppnaða golfferð endurskoðenda til Skotlands
vorið 2008.
f--------------------------------------------------------------------------N
Whaf's the definition of unlikely?
A photo-spread in Playboy titled 'The World's Top Accountants -
Nudel'.
Q: What is the definition of an accountant?
A: Someone who solves a problem you didn't know you had in a way
you don't understand.
v__________________________________________________________________________/
28 • FLE j/iéUiA. janúar2009