Fylkir - 01.12.2022, Blaðsíða 11
11FYLKIR - jólin 2022
°
°
Reyndar hafi hann aldrei verið það
sem kallast fuglaskoðari, hann hafi
„asnast út í þetta.“ Líklega er þetta
orðum aukið, ef haft er í huga náið
samband Óskars og fuglanna.
„En,“ bætir hann við, „ég er svo
óskaplega ómannglöggur og ég
held að það sama
gildi um fuglana,
ég á svo erfitt
með að greina í
sundur líka fugla.
Ég fór ekkert út á
það svið. Þó urðu
riturnar og kollan
nákomnar mér,
sérstaklega kollan,
við urðum góðir
vinir.“
Lokaorð
Það hefur ekki
verið auðvelt fyrir
Óskar að kveðja
óðalið á Höfðan-
um og flytja til
Selfoss eftir sjötíu
og sjö ár í Eyjum.
„Margt af mínu
dóti er enn í köss-
um,“ segir hann.
„Mér er mjög á
móti skapi að
henda hlutum.
Það gekk næstum
af mér dauðum að
skipta um heimil-
isfang.
Ég var innfædd-
ur á Höfðanum.
Það er ekkert
skrýtið að ég hafi
tekið nærri mér
að fara þaðan,
ég var svakalega
rótgróinn, það er
ókosturinn. Mað-
ur vill verða gamall en ekki vera
gamall.“
Óskar bryddaði upp á ýmsum nýj-
ungum í sínu starfi. Hann komst
hann upp á lagið með að góma
flögrandi pysjur með eins konar
háf eða neti, sem sparaði honum
skrefin. Einnig hugkvæmdist hon-
um að hólfa kassana sem pysjurn-
ar voru settar í, það fór betur um
fuglinn og minnkaði afföllin.
Fuglamerkin sem Óskar notaði
hafa gegnt mikilvægu hlutverki í
heila öld, varpað ljósi á líf farfugla,
áfangastaði þeirra
og viðgang stofna.
Um leið hafa þau
tengt áhugafólk og
fræðimenn þvert á
öll landamæri. Það
sem áður var hul-
ið móðu er býsna
vel rannsakað og
þekkt, með aðstoð
fjölmenns hóps
fuglamanna víða
um heim. Óskar
er góður fulltrúi
þessa hóps, enda
heimsmeistari í
greininni um skeið.
Nú er met hans fall-
ið. Sverrir Thorsten-
sen kennari á Akur-
eyri hefur náð að
merkja fleiri fugla,
rúmlega 93 þús-
und.
Þrátt fyrir stór-
tækar fuglamerk-
ingar víða um heim
eru eftir sem áður
margar eyður í til-
tækri þekkingu.
Nú er ný tækni að
leysa gömlu merk-
in af hólmi. Völ er
á ódýrum og fyr-
irferðalitlum raf-
eindatækjum, svo-
nefndum ljósritum
og GPS tækjum,
sem fest eru við
farfugla og senda
eða vista ítarlegar upplýsingar um
ferðir fuglanna. Margt hefur kom-
ið á daginn, m.a. upplýsingar um
leiðir þeirra (ekki aðeins áfanga-
stað), hraða og aðferðir fugla til að
ná áttum og rata á sömu staði ár
eftir ár. Þetta á ekki síður við um
rannsóknir á sjófuglum en öðrum
fuglum. Þá hafa stafræn tækni og
veraldarvefurinn veitt margfalt
betri og hraðari yfirsýn en áður.
Nýlega hefur hópur fugla-
fræðinga, sem fylgjast með ferð-
um sjófugla um Norður-Atlants-
haf, halað niður umfangsmiklum
gögnum úr alþjóðlegum gagna-
grunni margra rannsóknahópa
um ferðir rúmlega tuttugu fugla-
tegund, meðal annars lunda, frá
fimmtíu og sex varpstöðvum, þar
á meðal á Íslandi. Niðurstöðurnar
voru afar athyglisverðar, leiddu í
ljós að milljónir sjófugla safnast
reglulega saman á ákveðnum
stað („hotspot“) á svæði á stærð
við Frakkland í miðju Norður-Atl-
antshafi þar sem fuglarnir hvílast
og nærast. Fyrsta vísbending um
þennan stað komu úr rannsókn
um ferðir kría. Í kjölfarið hafa fylgt
niðurstöður úr merkingum margra
annarra tegunda. Kannski megi
líta á árlega samveru sjófuglanna
á þessum stað sem þjóðhátíð sjó-
fugla, þótt sumar tegundir staldri
lengur við en aðrar. Segja má að
nú eigi sér stað vísindabylting
í fuglafræði sem ekki er síður
merkileg en sú sem gömlu merkin
boðuðu á sínum tíma. Allt er þetta
mikilvægt nú á tímum, þegar al-
dauði fjölmargra fuglategunda
blasir við.
Þegar ég þakka Óskari fyrir mót-
tökurnar, með áritun á öftustu síðu
gestabókar hans, tek ég eftir því
að hann fær heimsóknir af og til.
Margir hugsa til hans og líta inn,
þakklátir fyrir störf hans og fyrir
að hafa kynnst honum. Þótt Óskar
hafi yfirleitt verið titlaður vitavörð-
ur og veðurskeytin hafi reglulega
minnt á starf hans á vegum Veð-
urstofu Íslands er hann ekki síður
þekktur fyrir merkilegt ólaunað
starf sem hann gegndi áratug-
um saman í þágu náttúruvísinda,
merkingu fugla. Þótt aðskiljan-
legir þættir ævistarfs hans virðist
í fljótu bragði eiga fátt sameigin-
legt, mynda þeir samfellda heild
þegar upp er staðið. Allir bera þeir
vott um áhuga hans á velferð lífs
á plánetu sem á í vök að verjast.
Athuganir hans á Stórhöfða – á
langferðum fugla, dagsformi veð-
urs, mengun og breytingum á
andrúmslofti og gróðurfari – eru
snar þáttur náttúrfræða og nátt-
úruverndar nú á tímum, eins kon-
ar vitavarsla, fyrir annan og stærri
Stórhöfða, Móður jörð.
Þakkir
Ítarlegri umfjöllun um störf Ósk-
ars J. Sigurðssonar verður birt í
tímaritinu Náttúrufræðingnum. Ég
þakka Óskari ánægjuleg samtöl.
Einnig þakka ég Ævari Petersen,
Jóhönnu M. Thorlacius, Helga
Bernódussyni og Erpi Snæ Hansen
gagnlegar ábendingar.
Óskar með vænan hluta af skýrslum sínum um endurheimtur lunda. Ljósmynd: Gunnar Ólafsson.
Tilkynning frá Finni Guðmundssyni um endurheimtur merktra fugla.Ferðir lunda sem Óskar merkti.
Mér er mjög
á móti skapi
að henda
hlutum. Það
gekk næstum
af mér dauðum
að skipta um
heimilisfang.
Ég var
innfæddur á
Höfðanum. Það
er ekkert skrýtið
að ég hafi tekið
nærri mér að
fara þaðan, ég
var svakalega
rótgróinn, það
er ókosturinn.
Maður vill verða
gamall en ekki
vera gamall.