Fylkir - 01.12.2022, Blaðsíða 25
25FYLKIR - jólin 2022
°
°
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Gleðileg jól
og farsælt komandi ár
þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða!
Eyþór fór einnig oft til Vestmann-
eyja og sinnti sjúklingum á sinni
heimaslóð. Á þessum tíma voru
launakjör lækna mjög léleg og
keypti Gunnar reiðhjól undir son
sinn lækninn meðan hann vann
í Vestamanneyj-
um og síðan bíl
þegar hann hóf
störf í Reykjavík.
Í minningargrein
um Eyþór kem-
ur fram að hann
var mjög virtur
læknir, vandað-
ur og ósérhlíf-
inn, sérstakur
persónuleiki og
góður drengur.
Fjölskyldumaðurinn
Gunnar Ólafsson
Afkomendur Gunnars Ólafssonar,
sem eru enn á lífi og muna vel eftir
honum, höfðu þetta um hann að
segja: „Hann var mikill karakter og
hnussaði í honum.“ Hann át allan
fisk með roði og þakkaði sína góðu
heilsu mikilli fiskneyslu. Kaffi drakk
hann alltaf úr undirskálinni. Pípu-
hatturinn var ávallt á sínum stað.
Hann var sterkur, ákveðinn og oft
ljúfur afi. En hann átti það líka til að
gera upp á milli barnabarna sem
olli sárindum.
Um jól voru stundum sendar
góðar jólagjafir upp á land sem
ekki fengust almennt í verslunum.
Minningar eru um fallegan kjól, og
saumakarfa með loki er ein gjöf
sem enn er í eigu afkomanda.
Gunnar Þormar, faðir minn, átti
mjög góðar minningar um afa
sinn. Hann dvaldi á sumrin í góðu
yfirlæti í Vestmanneyjum og átti
þar sínar bestu æskuminningar.
Gunnar Ólafsson var mikill fjöl-
skyldumaður og lét sér annt um
sitt fólk og var staðráðinn í því að
veita börnum sínum betri lífsgæði
en hann sjálfur ólst upp við. Hann
lagði mikla áherslu á menntun og
vildi að börn sín færu til útlanda til
að víkka sjóndeildarhringinn. Sjálf
fóru hann og Jóhanna í siglingar
og heimsóttu börn sín þegar þau
dvöldu erlendis. Í bréfaskrifum
við sitt fólk sýnir
Gunnar á sér hlið
sem öðrum var
hulin. Hann var
umhyggjusamur
eiginmaður, faðir
og afi og fylgdist
vel með sínu fólki.
Hann var örlátur
við dætur sínar,
þær voru ávallt vel
klæddar og fóru í
skemmtisiglingar
til útlanda sem ekki tíðkaðist al-
mennt á þessum tíma. Sonum sín-
um hefur hann veitt meira aðhald.
Hann gerði miklar kröfur til þeirra,
sérstaklega Ólafs og Sigurðar sem
störfuðu með honum í fyrirtækinu.
Lifað með minningunni
um langafa
Gunnar Ólafsson var langafi minn.
Við hittumst aldrei í lifanda lífi. Við
eigum sama fæðingarár en á sitt
hvorri öldinni. Á uppvaxtarárum
mínum var ákveðin nálægð við
hann vegna þess að brjóstmynd
af honum var alltaf á æskuheimili
mínu á besta stað í stofunni, svo
að hann var sem einn af heimilis-
fólkinu.
Brjóstmyndin er nú komin í
Safnahúsið í Vestmanneyjum.
Styttan var lengst af í eigu föður
míns, Gunnars A. Þormar, sem lést
á síðasta ári. Gunnar Ólafsson átti
sérstakan stað í lífi pabba enda var
hann nafni hans. Væntanlega var
styttan þó upphaflega hér í Vest-
manneyjum.
Til að komast að því hvaða mann
langafi, Gunnar Ólafsson, hafði að
geyma, fyrir utan athafnamanninn,
hef ég lesið mörg persónuleg bréf
sem hann sendi ömmu minni og
föður mínum og hef átt samtöl við
afkomendur hans sem enn muna
eftir honum. Einnig eru mörg gull-
korn að finna í bókinni Endurminn-
ingar, sem hann skrifaði sjálfur og
var gefin út árið 1948.
Öll gögn, myndir, persónuleg
bréf og annað sem er enn í fórum
okkar fjölskyldunnar verða afhent
Safnhúsi Vestmanneyja.
Rúm 60 ár eru liðin frá dánar-
degi Gunnars Ólafssonar. Samt
lifir minningin um sterkan mann
sem setti svip sinn á samfélagið.
Við afkomendurnir getum litið til
hans með stolti. Eftir að Jóhanna
langamma lést árið 1944 bjó
Gunnar einn á heimili þeirra í Vík
við Bárugötu fram á síðasta dag
og var 97 ára að aldri þegar hann
lést árið 1961.
Gunnar át allan fisk með roði og
þakkaði sína góðu heilsu mikilli
fiskneyslu. Kaffi drakk hann alltaf
úr undirskálinni. Pípuhatturinn
var ávallt á sínum stað. Hann var
sterkur, ákveðinn og oft ljúfur afi.
Gunnar ásamt syni sínum Eyþór á ferð í útlöndum, líklega Ósló.
Gunnar Ólafsson með barnabarni sínu Gunnari Þormar.