Fylkir - 01.12.2022, Page 39
39FYLKIR - jólin 2022
°
°
Guðfinna Steinunn Bjarney Sigurðard.
áður Heimagötu 22
f. 10. apríl 1929 – d. 12. nóv. 2022
Benóný Benónýsson
Hólagötu 5
f. 29. des. 1947 – d. 12. nóv. 2022
Hilmar Ásgeirsson
áður Skarði, Strandvegi 43 c)
f. 1. júlí 1948 – d. 14. nóv. 2022
Jóna Kristjana Guðmundsdóttir
Sólhlíð 19
f. 31. mars 1931 – d. 18. nóv. 2022
Finnbogi Geir Guðmundsson
áður Eystra Þorlaugargerði
4. október 1937 – d. 16. nóv. 2022
Þórdís Erlingsdóttir
áður Hilmisgötu 13
f. 6. okt. 1962 – d. 18. nóv. 2022
Jóhanna Svava Jónsdóttir
frá Kirkjubæ
f. 19. febrúar 1927 – d. 29. nóv. 2022
Guðrún Jónína Ragnarsdóttir
áður Foldahrauni 39
f. 18. okt. 1962 - d. 22. nóv. 2022
Ingibjörg Guðrún Kristmannsdóttir,
Dúra - Hraunbúðum, frá Skjaldbreið
f. 16. febrúar 1941 - d. 30. nóv. 2022
Inga Þórarinsdóttir
Höfðavegi 39
f. 14. nóv. 1946 - d. 1. des. 2022
Richard Guðmundur Jónasson
áður Illugagötu 11
f. 7. janúar 1956 – d. 1. des. 2022
Kristbjörn Þór Árnason, Bóbi
áður Illugagötu 7
f. 18. ágúst 1937 – d. 5. des. 2022
Með þessu jólablaði lýkur 74. árgangi í útgáfu
blaðsins sem hóf göngu sína 18. mars 1949.
Þátturinn Látnir kvaddir hefur fylgt jólablaði
Fylkis frá 1975 og hefur skapað útgáfu blaðsins
sérstöðu. Baddý frá Ólafshúsum hefur í liðlega
30 ár annast öflun upplýsinga í þáttinn. Ljós-
myndadeild Morgunblaðsins hefur í rúman
aldarfjórðung og útvegað mikinn meirihluta
ljósmynda í þáttinn. Sérstakar þakkir til Maríu
Lilju Moritz Viðarsdóttur á ljósmyndadeild Mbl.
fyrir einstaka lipurð. Á sama hátt færum við
þakkir til fjölmargra aðila innanbæjar og utan
fyrir aðstoð við öflun upplýsinga um búsetu og
ljósmynda sem útvega þurfti sérstaklega.
Jólablað Fylkis 2022 sem er 40 bls. sem er
sama stærð og 2021 og þau stærstu og efn-
ismestu frá upphafi. Við stóðum frammi fyrir
því ánægjulega vandamáli annað árið í röð að
þurfa að stækka blaðið úr 32 bls. í 40 bls. til að
koma að því efni sem búið var að afla ásamt
jólakveðjum og auglýsingum sem standa undir
útgáfu blaðsins.
Efnistök jólablaðs Fylkis hafa á síðustu áratug-
um byggst mikið á greinum og viðtölum um
sögu, menningu og atvinnulíf í Eyjum. Þáttur-
inn Hús og fólk sem fylgt hefur blaðinu undan-
farin ár birtist nú í sjötta sinn. Nú var komið að
Gjábakka við Bakkastíg og Gjábakkafólkinu. Í
forgang hafa verið verið hús í austurbænum
sem báru nöfn og fóru undir hraun í Heimaeyj-
argosinu 1973. Í mörgum tilvikum hefur fólkið
sem í þeim bjó verið kennt við húsin.
Jólablað Fylkis hefur í langan tíma átt aðgang
að öflugum höfundum sem eru tilbúnir í mikla
vinnu við skrif og öflun heimilda. Þessi einstaka
staða kemur berlega í ljós í þessu jólablaði. Á
timarit.is sem er vefur Landsbókasafns Íslands
er hægt að finna miklar upplýsingar um útgáfu
blaða og tímarita á Íslandi. Fylkir er þar á sínum
stað og nær öll tölublöð frá upphafi er þar að
finna. Þegar komið er inn á vefinn timarit.is er
best að slá inn Fylkir Vestmannaeyjum, en þar
er að finna nær alla flóruna í íslenskri blaðaút-
gáfu í yfir heila öld. Undirritaður hefur verið í
ritnefnd Fylkis samfellt frá 1992 eða í rétt 30 ár
og lengst af annast umsjón með efnistökum og
greinarskrifum í jólablaði Fylkis og samskipti
við þá sem annast uppsetningu og prentun
jólablaðsins. Allt hefur sinn tíma. Að standa
myndarlega að útgáfu kallar á samskipti við
fjölmarga aðila og fyrir þá ómetanlegu aðstoð
ber að þakka.
Að endingu þökkum við greinarhöfundum
og auglýsendum fyrir að gera útgáfu Jóla-
blaðsins mögulega. Sæþóri Vídó Þorbjarnar-
syni sem annast umbrot og uppsetningu og
Landsprenti er þakkað fyrir gott samstarf við
vinnslu blaðsins.
Arnar Sigurmundsson,
ritstjóri Jólablaðs Fylkis.
Frá ritnefnd Jólablaðs Fylkis