Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 4
4
SÚGANDI 2019
Ég heiti Björg Sveinbjörnsdóttir og er yngsta
dóttir Elínar Bergsdóttur, sem flakkaði vestur
á firði úr höfuðborginni um miðjan 7. áratug
síðustu aldar, og Sveinbjarnar Jónssonar sem er
borinn og barnfæddur Súgfirðingur.
Ég bý á Ísafirði ásamt sambýlismanni mínum
Þórarni Gunnarssyni og dætrum okkar tveimur,
Silfu og Karítas. Elsti sonurinn, Darri, býr í
Reykjavík og er í menntaskóla. Þórarinn er
verkefnastjóri Fab Lab á Ísafirði og síðustu þrjú
ár hef ég starfað sem kennari við menntaskólann
þar sem ég kenni bæði félagsgreinar og hluta af
listgreinum. Samhliða því rek ég Hversdagssafnið
á Ísafirði ásamt samstarfskonu minni, Vaidu
Bražiūnaitė. Þar einblínum við á allt hið töfrandi
sem gerist í hversdeginum, lítið og smátt, og
bjóðum gestum og gangandi að lesa og hlusta
á sögur og minningabrot tengd hinu daglega
lífi. Einnig er hægt að horfa á myndbönd í litla
bíósalnum okkar baka til. Safnið hefur verið
starfrækt síðan sumarið 2016 og við höfum
verið svo lánsamar að fá meðbyr frá samfélaginu
og styrk frá uppbyggingasjóði Vestfjarða til
að koma því á laggirnar. Það má segja að
áhugi minn á töfrum hversdagsins sé ein af
ástæðum þess að við fjölskyldan fluttum vestur.
Árið 2014 fékk Vaida mig til að flytja erindi á
kvikmyndahátíð sem hún var að skipuleggja
en það var einmitt erindi um bók sem ég gaf út
um ömmu mína, Guðjónu Albertsdóttur, sem
Súgfirðingur
lætur ljós
sitt skína
„Framtak hvers og eins
og rödd skiptir máli.“