Súgandi - 01.06.2019, Page 11

Súgandi - 01.06.2019, Page 11
Þann 10. ágúst kl. 9-11.40 stendur Fornminjafélag Súgandafjarðar fyrir Vestfirska fornminjadeginum í Grunnskóla Suðureyrar. Sjónum verður beint að þeim fjölmörgu áhugaverðu málum sem varða sögu Vestfirðinga. Á dagskránni verða eftirfarandi erindi: Sigurður Pétursson sagnfræðingur mun segja frá verstöðum og sjóþorpum fyrr á öldum og hvers vegna ekki varð til þéttbýli á Íslandi, líkt og í öðrum löndum, á 15.-19. öld. Dr. Matthias Egeler mun segja frá keltneskum áhrifum á miðöldum. Hann mun sérstaklega einblína á örnefni og sagnahefðina þar sem áhrifin eru hvað mest og koma inn á sterk tengsl örnefna við þjóðsögur sem safnað var á Íslandi á 19. öld. Jón Jónsson sagnfræðingur mun halda erindi um aftökustaði. Jón hefur skoðað marga slíka staði og sögur um þá. Margir þekktir aftökustaðir eru á Vestfjörðum og mikilvægt að saga þeirra gleymist ekki. Valdimar Halldórsson staðarhaldari á Hrafnseyri mun segja frá Hrafni Sveinbjarnarsyni höfðingja sem setti svip sinn á sögu Vestfjarða. Helga Guðný Kristjánsdóttir og Björn Birkisson hafa verið að vinna að því að staðsetja þekkt örnefni á kort í samvinnu við landeigendur og áhugafólk á Vestfjörðum. Um er að ræða mikilvægt framlag til sögu þjóðarinnar. Þau munu segja frá aðferðafræðinni og sýna myndir. Eyþór Eðvarðsson mun halda erindi um landnámsskálabygginguna í botni Súgandafjarðar. Skálinn er tilgátuhús byggt á fornleifauppgrefti af svokölluðum Grélutóftum á Hrafnseyri í Arnarfirði. Sagt verður frá Grélutóftunum og hvað þar kom í ljós og fjallað um landnámsskálann. Með fyrirvara um breytingar. Ókeypis inn og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. 11 SUMARBLAÐ Vestfirski fornminjadagurinn haldinn á Suðureyri í annað sinn

x

Súgandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.