Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 18

Súgandi - 01.06.2019, Blaðsíða 18
Súgfirðingafélagið stóð fyrir fjörugri árshátíð laugardaginn 2. mars sl. Veislustýra kvöldsins var hin síbrosandi og hressa Neníta Margrét Aguilar Róbertsdóttir. Ari Eldjárn, sem er fyrir löngu orðinn einn allra vinsælasti skemmtikraftur þjóðarinnar, kitlaði hláturtaugarnar með sprenghlægilegu uppistandi. Hann reytti af sér brandarana og salurinn lá í hláturskasti. Abba-dívurnar Selma Björns og Regína Ósk héldu uppi miklu fjöri með Abba slögurum sem allir þekktu og slógu rækilega í gegn. Súgfirðingar fjölmenntu, nutu lífsins í góðra vina hópi og dönsuðu fram á rauða nótt. Stjórn félagsins og allir þeir sem lögðu hönd á plóginn eiga þakkir og hrós skilið fyrir að gera árshátíðina eins glæsilega og raun bar vitni. LÍF OG FJÖR Á VEL SÓTTRI ÁRSHÁTÍÐ SÚGANDI 2019 18

x

Súgandi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Súgandi
https://timarit.is/publication/1797

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.