Ský - 01.02.1999, Blaðsíða 16
í PARÍS
Reyklaust kaffihús, blómabúð og pöbb.
Eitt reisulegasta húsið við göngugötuna á Akureyri
er fagurblátt bárujárnshús sem reist var árið
1913 og nefnt eftir heimsborginni á Signubökk-
' um, París. Það er óhætt að segja að París hafi tekið
stakkaskiptum síðastliðin tvö ár, eða frá því hjónin
Guðbjörg Inga Jósepsdóttir og Sigmundur Rafn Einars-
son keyptu húsið. Þar er nú rekið hlið við hlið kaffihúsið
Bláa kannan og blómabúð sem kennd er við bæinn. I
mars opnar svo pöbbinn Græni hatturinn í kjallaranum
og fljótlega í framhaldi af því ráðstefnusalur í risinu.
Bláa kannan hóf starfsemi síðasta sumar og hefur þegar
skapað sér sérstöðu með þvíað bjóða einungis kaffi frá
Kaffibrennslu Akureyrar og algjörlega reyklaust um-
hverfi. Guðbjörg Inga segir kaffið fara mjög vel í gesti og
ekki hefur reykleysið síður mælst vel fyrir Reyndar er
reynslan svo góð af reykbanninu að það verður Ifka
látið gilda á Græna hattinum.
Bláa kannan er opin til 23.00 virka daga og til 1.00 um
helgar í hádeginu er boðið upp á súpu og smárétti.
Á seyði á Akureyri
Leiklist
Leikfélag íslands sýnir Rommí á fimmtudags- og
föstudagskvöldum á Bing Dao Renniverkstæð-
inu við Strandgötu í febrúar og mars. Hér er á
ferðinni sama uppfærsla og í Iðnó með Erlingi
Gíslasyni og Guðrúnu Ásmundsdóttur undir leik-
stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar. Rommí
verður sýnt áfram í Iðnó á laugardags- og sunnu-
dagskvöldum.
Þann 19. mars frumsýnir Leikfélag Akureyrar í
Samkomuhúsinu leikritið Systur í syndinni eftir
þær Iðunni og Kristínu Steinsdætur. Þetta er
hádramatískt og kómískt verk í senn og byggir á
sönnum atburðum. Tæplega tuttugu leikarar og
tónlistarmenn taka þátt í sýningunni sem Kolbrún
Halldórsdóttir leikstýrir. Með aðalhlutverk fara
Helga Vala Helgadóttir (Skúlasonar),
Katrín Þorkelsdóttir og Aino Freyja Járvelá.
Uppákomur
Dagur tónlistarskólanna verður haldinn hátíðlegur
27. febrúar og verða meðal annars píanótónleik-
ar í safnaðarheimili Akureyrarkirkju.
Síðari hluta apríl verður kirkjulistavika með
ýmsum uppákomum á Akureyri.
Myndlist
Síðari hluta febrúar verður samsýning 13 fær-
eyskra listamanna í Listasafninu á Akureyri. Þann
6. mars hefst svo samsýningin „Draumur um
hreint forrn" og stendur hún til 17. apríl.
Á veggjum Café Karolína restaurant geta matar-
gestir virt fyrir sér úrval verka Errós út mars.
í Gallerí Svartfugli sýnir Jón Laxdal málverk
frá 6. til 25. mars og frá 27. mars sýnir Gerður
Guðmundsdóttir þar textílverk.
Samlagið - Listhús, kynntir verða nýir félagar, í
febrúar leirlistarkonan Anní Kampp,
í mars myndlistarkonan Amý og í apríl myndlist-
arkonan Gréta Arngrímsdóttir.
I4 ský